Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 5 Breiðholtssöfnuður; Séra Lárus kveð- ur söfnuð sinn SÉRA Lárus Halldórsson lætur að störfum sem sóknarprestur í Breiðholti fyrir aldurs sakir í dag og mun eftir messu kveðja söfnuðinn í Breiðholts- skóla, þar sem kvenfélag Breiðholtssafnaðar býður upp á kaffiveitingar. Séra Lárus var kjörinn sóknar- prestur Breiðholtssafnaðar árið 1972 eða sama ár og söfnuðurinn var stofnaður og hefur því verið prestur hans frá upphafí. Undir stjóm hans og eiginkonu, Nönnu Þórdísar Nikulásardóttur, hefur safnaðarstarfíð verið byggt upp, þrátt fyrir það að aðstæður hafí verið erfíðar, þar sem engin kirkja hefur verið til staðar og hafa messur farið fram í Breið- holtsskóla. Hafíst var handa um byggingu Breiðholtskirkju árið 1978 og er vonast til þess að hún verði vigð á næsta ári. 110 íslending ar á Hawaii MORGUNBLAÐINU barst í per svohljóðandi frétt frá heims- reisuklúbbi Utsýnar, sem þá var stadddur í Honolulu á Hawaii: „Orðtak innfæddra hér: „Snúið aftur til Paradísar", verður okkur efst í huga, þegar við segjum „alo- ha“ og kveðjum eftir 10 daga dvöl í jarðneskri paradís á Hawaii. Heim- sóknin í Polynesian Cultural Center hér á eynni í gær, var upplifun, sem ekki gleymist. Þar kynntumst við íbúum, menningu og háttum hinna ýmsu Kyrrahafseyja í hnotskum og sáum í lokin litskrúðugustu dans- og þjóðháttasýningu, sem um get- ur. Sama gildir um margt annað í heimsreisu 7, svo sem ferðina frá Los Angeles í Grand Canyon, eða Disneyland og Hollywood. Á morgun liggur leiðin til San Francisco og gistum við á Fairm- ont-hótelinu á Nob Hill, sem verður aðsetur okkar í 3 daga, en þar voru sjónvarpsþættimir „Hotel“ gerðir. Ferðin hefur verið samfellt ævintýr. Okkur öllum 110 að tölu líður stór- vel og v ið sendum ykkur á Fróni beztu blómakveðjur héðan úr dýrð- inni og 30 stiga hita.“ Séra Lárus Halldórsson. Umf erðarátak; •• Okumenn undir smásjánni LÖGREGLAN um allt land fylg- ist nú með hegðan ökumanna, hvemig þeir virða rauða ljósið, stöðvunarskyldu og hvort stefnu- ljós era notuð. Á fimmtudag, var fylgst með 3.600 ökumönnum við umferðar- ljós. 6 hlutu áminningu og lögreglan sá ástæðu til að sekta 9 fyrir gróft brot, þ.e. fyrir að aka yfir á rauðu ljósi. Við stöðvunarskyldu var fylgst með 1.900, 57 vom áminntir og 9 sektaðir fyrir gróft brot. Þá var fylgst með stefnuljósanotkun og 2.200 ökumenn kannaðir. 102 vom áminntir fyrir að nota stefnuljósin, seint, illa eða alls ekki. Tölvunám Ný námsbraut: Tölvutækni Tölvufræðslan mun í janúar nk. heíja eins árs nám í tölvutækni. Um er að ræða hag- nýtt nám, þar sem áhersla er lögð á þá þætti sem mikilvægastir eru við tölvunotk- un hjá íslenskum fyrirtækjum. Náminu er skipt í tvo sjálfstæða áfanga. Fyrri áfanginn nýtist fyllilega í starfi, þótt hinn síðari sé tekinn seinna. Fyrri áfangi: 12. janúar 1987 til 18. apríl 1987. Meðal efnis eru eftirfarandi þættir: ★ Um innri uppbyggingu tölva og tölvutækja ★ Tölvuvæðing fyrirtækja ★ Notkun staðlaðra forrita (notendaforrit) ★ Kerfísfræði og uppsetning tölvukerfa Seinni áfangi: 14. september 1987 til 12. desember 1987. ★ Rekstrarhagfræði ★ Forritun í æðri forritunarmálum ★ Forritagerð fyrir íslenskt atvinnulíf ★ Kerfísforritun ★ Rekstur tölvukerfa Kynningarfundur verður á náminu nk. miðvikudag 5. nóvember hjá Tölvufræðslunni, Borgartúni 28, kl. 20.00. Allar nánari upplýsingar fást í síma 687590 og 686790. TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28. Nýbúð á gömlum gmnni Við höfum opnað Herradeild PÓ að nýju eft- ir gagngerar breytingar og viljum bjóða gamla sem nýja viðskiptavini velkomna. /ú hotUanÍAÍi P&O’ Austurstræti 14. S. 12345.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.