Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
Hindawi ekið frá Old Bailey dómshúsinu í London eftir að hann var fnndinn sekur og dæmdur í 45
ára fangelsi.
Assad hryðju-
verkahöfðingi
eftir Guðmund Heiðar Frímannsson
Nezar Hindawi, 32 ára gamall Jórdaníumaður, var föstudaginn
24. október fundinn sekur um það fyrir rétti í Lundúnum að hafa
ætlað að sprengja þotu ísraelska flugfélagsins E1 A1 í loft upp með
375 farþegum innanborðs. Öryggisverðir ísraelska flugfélagsins
fundu sprengju i tösku unnustu Hindawi áður en hún fór um borð
i vélina, en hún fannst ekki í röngtenleitartækjum Heathrowflugvall-
ar. Ann Murphy, sem var þunguð eftir Jórdaníumanninn, átti að
fóma á blótstalli hryðjuverkamannsins Hindawi og samverkamanna
kana { sýrlenska sendiráðinu í Lundúnum. í réttarhöldunum kom
fram ótviræð vitneskja um að Hindawi hafði starfað með sýrlenzkum
sendiráðsstarfsmönnum. Hindawi var dæmdur í 45 ára fangelsi.
Breska ríkiastjómin greip til þess
ráðs að ijúfa stjómmálasamband
við Sýrland sama dag og rétturinn
komst að niðurstöðu sinni. Hún
kallaði heim sendimenn sína í Sýr-
landi og bað alla brezka stjómarer-
indreka, sérstaklega í Austurlönd-
um nær, að vera varir um sig.
Dagana á undan hafði stjómin látið
boð út ganga um að engir Bretar
skyldu vera í vesturhluta Beirút,
sem er undir stjóm Sýrlendinga,
nema þeir nauðsynlega þyrftu.
Búizt er við því að hryðjuverkasveit-
ir, sem eru á mála hjá Sýrlending-
um, reyni að grípa til hefndarráð-
stafana annað hvort í Mið-Austur-
löndum eða Evrópu.
Það verður vart annað sagt en
að vitneskjan, sem komið hefur
fram í réttarhöldunum, hafí vakið
almennan viðbjóð meðal almenn-
ings í Bretlandi. Hindawi hafði átt
í ástarsambandi við Ann Murphy í
um tvö ár þegar hann ættaði að
nota hana sem „lifandi tíma-
sprengju". Hindawi hafði sagt
henni að hann hefði áður verið
hryðjuverkamaður en væri nú hætt-
ur því. Á ýmsu gekk á milli þeirra
og í upphafí þessa árs leit Ann
Murphy svo á að sambandi þeirra
væri lokið, enda hafði ekki bólað á
Hindawi í langan tfma. En þá birt-
ist hann allt í einu, stakk upp á því
að þau giftu sig í Landinu Helga
og færði henni flugmiða. Sjálfur
sagðist hann ekki fara með sama
flugi, heldur mundi hann hitta hana
síðar. Hann færði henni síðan nýja
handtösku og gekk frá dótinu í
hana, ók henni út á Heathrow-
flugvöli og kvaddi hana þar.
Dómarinn kallaði þetta forherta og
grimmdarlega blekkingu.
í þessum réttarhöldum hefur
tekist með nokkum veginn óyggj-
andi hætti að sýna fram á að
Sýrlendingar stunda hryðjuverka-
starfsemi f stórum stíl og beita til
þess opinberum starfsmönnum og
sendiráðsmönnum. Sama dag og
Hindawi kvaddi unnustu sína á
flugvellinum fór hann í sýrlenska
sendiráðið í Lundúnum, þar sem
sendiherrann tók á móti honum.
Þá var ljóst að sprengjan hafði
fundizt og hans var leitað um allt
Bretland. Starfsmenn sendiráðsins
földu hann um nóttina og morgun-
inn eftir reyndu þeir að breyta útliti
hans, lita á honum hárið og færa
hann í ný föt. En Hindawi óttaðist
að vemdarar hans yrðu böðlar sínir
og flúði þvf næsta dag og gaf sig
fram við lögregluna.
Vöm hans var sú að hann væri
fómarlamb ísraelsku leynilögregl-
unnar sem hefði skipt um tösku á
flugvellinum og sett tösku með
sprengju í staðinn fyrir tösku Ann
Murphy, sem hann hefði fært henni.
Dómarinn neitaði að trúa þeirri
sögu, enda bentu sönnunargögnin
öll til þess, að hér væri um sömu
tösku að ræða og Ann Murphy
hafði komið með á flugvöllinn.
Hindawi var sagður blaðamaður
að atvinnu og formlega starfaði
hann við arabískt blað í Lundúnum.
En það eina, sem vitað er um störf
hans við blaðamennsku, er að hann
var sendill á Al-Arab 1982, en var
rekinn eftir mánaðarstarf vegna
skapofsa.
Hindawi er kominn af velmeg-
andi fjölskyldu, sem átti app-
elsínubúgarð í Palestínu, áður en
Ísraelsríki var stofnað, en varð að
Hafez Assad Sýrlandsforseti
flýja landið yfir til Jórdaníu. Þar
gat fjölskyldan séð sinn gamla bú-
garð handan landamæranna. Fjöl-
skyldan varð illa úti í átökum
ísraelsmanna við granna sína 1967.
Hindawi var því alinn upp frá blautu
bamsbeini við hatur á Israel. Hann
var stofnfélagi í Byltingarhreyfíngu
Jórdaníu og lét ítrekað í ljósi þá
skoðun að réttlætanlegt væri að
úthella blóði ísraelsmanna hvar og
hvenær sem væri.
Þegar lögreglan handtók hann
var ekki mikið vitað um hlut hans
í hryðjuverkum. En við yfírheyrslur
kom í ljós víðtækt net hryðjuverka-
manna í Vestur-Þýzkalandi, Ítalíu
og Austurlöndum nær, við Rauðu
herdeildimar, Líbýu og Sýrland.
Bróðir Hindawi, Ahmed Hasi, er í
umsjá lögreglunnar í Vestur-Berlín
vegna sprengingar hjá menningar-
samtökum Þjóðverja og araba þar
í borg, sem talið er að Hindawi
hafi skipulagt. Það er einnig talið,
að Hasi hafí tekið þátt í sprenging-
unni á La Belle diskótekinu, sem
varð tilefni til árásar Bandaríkja-
manna á Líbýu. í júlí á sl. ári fór
Hindawi ásamt öðmm félögum í
hreyfíngunni til fundar við Gaddafi
til að biðja um fé og aðstoð. Líbýu-
mennimir bentu þeim á að leita til
Sýrlendinga. í janúar á þessu ári
var Hindawi í Damaskus og hitti
þar yfirmenn í leyniþjónustu Sýr-
lendinga. Leiðtogi þeirra var
Vf*
ari ákvörðun, en hann var staðráð-
inn í að bjóða almenningsálitinu
birginn. „Hún er konan mín og það
er ekkert rangt við það“, sagði
hann.
Þegar þau stigu út úr vélinni á
Heathrowflugvelli, hönd í hönd,
flyktust blaðamenn og ljósmyndar-
ar að þeim og spurðu hver hún
væri. „Hún er konan mín“, sagði
Jerry Lee og ljómaði af stolti. Blaða-
menn spurðu og spurðu og Jerry
Lee svaraði af samviskusemi nema
að hann hnikaði aðeins til aldri
konu sinnar og sagði að hún væri
fímmtán. Daginn eftir vom flenni-
fyrirsagnir í blöðunum og Daily
Herald sagði í fyrirsögn: „Kona
rokkstjömunnar er fímmtán ára, -
og þetta er þriðja hjónaband hans“.
Blöðin vestra tóku strax við sér og
einn blaðamannanna gróf það upp
að Myra Gale væri ekki fímmtán
ára heldur þrettán.
Mikil óvild greip nú um sig í
Bretlandi, einkum vegna neikvæðra
skrifa blaðanna og fólk var hvatt
til að sækja ekki tónleika amerísku
rokkstjömunnar. Jerry Lee Lewis
lauk aldrei tónleikaferð sinni um
Bretland. Eftir þriðju tónleikana var
ferðinni aflýst og bresku blöðin
kvöddu hann með fyrirsögnum á
borð við þessa: „Barriaræninginn
flýr“.
Við brottförina á Heathrowflug-
velli var hann spurður hvemig
honum hefði iíkað við Breta: „Þeir
em ágætir þegar á heildina er litið.
En sumir ykkar þjást af afbrýði-
semi“. Hann var þá spurður hvort
honum fínndist í rauninni ekkert
óeðlilegt við það að giftast þrettán
ára stelpu. „Þú getur haft eitt eftir
mér“, sagði Jerry Lee: „Hún er
kona“.
Jerry Lee hafði í fyrstu engar
áhyggjur af þessu og taldi að allt
yrði eins og áður er hann kæmi
aftur heim. En blöðin vestra tóku
kuldalega á móti honum og hann
varð þess fljótlega var að fjölmarg-
ir höfðu snúið við honum baki.
Honum hafði verið hrint af stallin-
um og framundan beið hans löng
og erfíð eyðimerkurganga.
EYÐIMERKURGANGAN
Það em páskar árið 1962. Jerry
Lee vaknar með hroðalega timbur-
menn. Hann er staddur á hóteli í
Minneapolis. Ekkert er eins og það
á að vera. Síðan sumarið umtalaða
árið 1958, hefur ekkert laga hans
komist á toppinn. Hann ferðast að
vísu enn um með hljómsveit sína
en upphæðin á ávísununum verður
sífellt lægri. Jafnvel rokktónlistin
hefur breyst og er orðin máttlaus
og leiðinleg. Honum fínnst hann
vera utanveltu við allt og alla og
viskíið verður sífellt ríkari þáttur í
lífí hans. Mitt í þessum dapurlegu
hugsunum berast honum boð að
héiman um að þriggja ára sonur
hans og Mym Gale, Steve Allen,
hafí dmkknaði í sundlauginni.
Eyðimerkurgangan var rétt að
hefjast. Eftir dauða drengsins var
hann vart mönnum sinnandi og í
rauninni náði hann sér aldrei til
fulls. Þó kom ein og ein glæta inn
í líf hans af og til. Honum var boðið
í hljómleikaferð til Bretlands og nú
brá svo við, að þjóðin sem velti
honum af stalli nokkmm ámm áður
tók honum opnum örmum. Hann
tók þó eftir því að hann stakk f
stúf við þessa ungu bresku mú-
síkanta. Strákar vom komnir með
sítt hár og klæddu sig eins og fáráð-
lingar. Auk þess átti hann erfítt
með að átta sig á þessari músík,
sem hann heyrði allt í kringum sig.
Þegar hann kom heim tók hann
eftir að amerískir unglingar höfðu
einnig breyst og stelpumar vom
komnar í ósiðlega stutta kjóla. Hon-
um var boðið að koma fram í
sjónvarpsþættinum „Shinding" og
var vel tekið. En þegar hann leit í
kringum sig í búningsherberginu
fannst honum hann vera eini mað-
urinn með viti.
Sun-útgáfan var hætt og hann
var nú á samningi hjá Smash-hljóm-
plötufyrirtækinu. Hann fór æ
sjaldnar í hljóðverið enda seldust
þær lítið, þessar fáu plötur hans
sem út komu. Hann var líka farinn
að drekka upp á næstum hvem ein-
asta dag. Samningurinn átti að
renna út 1968 og nokkmm vikum
áður en að því kom var gerð lokatil-
raun til að ná einhveiju út úr Jeny
Lee Lewis. Honum var skipað að
gera „kántrý-plötu". Eitt laganna
á plötunni var „Another Place,
Another Time“ og viti menn, lagið
komst á topp „kántrý-vinsældarlist-
KÁNTRÝSTJARNAN
Nýtt skeið var mnnið upp á ferli
Jerry Lee Lewis og á næstu ámm
var hann einn vinsælasti „kántrý-
söngvari" í Suðurríkjunum og átti
fjölmörg lög á vinsældarlistum.
Hann fékk orðið 10 þúsund dollara
fyrir kvöldið á hljómleikum og fjár-
hagurinn rétti úr kútnum. Jerry Lee
fór að ferðast um í eigin flugvél
og naut þessarar endurheimtu vel-
gengni. Hann reyndi að halda sig
á mottunni í diykkjunni en Bakkus
var þó aldrei langt fjarri.
Þrátt fyrir velgengnina vom
komnir brestir í hjónabandið og
þegar Jerry Lee var á hljómleika-
ferð í Astralíu f nóvember 1970 fór
Myra Gale fram á skilnað. Þau áttu
saman litla dóttur sem fór með
móður sinni og hún var brúðarmær
þegar Myra Gale giftist síðar Peter
Malito, einkaspæjara, sem hún
hafði ráðið til að njósna um eigin-
mann sinn. Viku síðar gekk Jerry
Lee í hjónaband með 27 ára gam-
alli fráskilinni konu frá Memphis,
Jaren Elizabeth. Þau skildu eftir
hálfan mánuð en tóku saman aftur
uns þau skildu fyrir fullt og allt
1979.
Eftir skilnaðinn við Mym Gale
ákvað Jerry Lee að hætta að drekka
og neitaði að koma fram á skemmti-
stöðum þar sem áfengi var afgreitt.
Brátt sótti þó allt í sama farið og
Jeny sökk dýpra en nokkm sinni
fyrr. Eldri sonur hans ög Jean Mitc-