Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 23

Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 23
38c t HaawavöM .s fltiOAaiwvmg .aiOAjaviuðaoM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 ss 23 Selma Kaldalóns, tónskáld. Hljómplata í minningu Selmu Kaldalóns: „Hún spilaði mikið hvern einasta dag“ - Segir Jón Gunnlaugs- son læknir, sem gefur plötuna út „ÉG vildi með þessari útgáfu minnast konu minnar þar sem hún hafði mikinn áhuga á að þessi lög heyrðust eitthvað“, sagði Jón Gunnlaugsson, læknir, sem hefur gefið út hljómplötu með 24 söng- lögum eftir eiginkonu sína, Selmu Kaldalóns, sem lést af slysförum í desember 1984. „Tónlistin átti mjög sterk ítök í henni og hún spilaði mikið hvem ein- asta dag“, sagði Jón Gunnlaugsson ennfremur í samtali við Morgun- blaðið. „Hún var ákaflega snortin af tónlist föður síns og þau spiluðu mikið saman. Tónlistarandinn fylgdi henni úr fóðurgarði og fyrsta lagið samdi hún á Reykhólum, en það var „Gamla konan" við texta eftir Guð- mund Guðmundsson. Hún samdi aðalleg við ljóðin, það er að segja að ljóðin kölluðu fram lögin hjá henni. Flest lögin samdi hún hér í Reykjavík síðustu árin“, sagði Jón. Selma Kaldalóns fæddist að Ár- múla við ísafjarðardjúp 27. desember 1919, dóttir hjónanna Margrethe og Sigvalda S. Kaldalóns, læknis og tónskálds. Selma giftist árið 1944 Jóni Gunnlaugssyni, stud. med. er varð héraðslæknir á Reykhólum og síðar læknir á Selfossi og í Reykjavík frá 1965. Þeim hjónum varð níu bama auðið og ólu upp dótturson sinn. Á umslagi þessarar hljómplötu, sem Jón Gunnlaugsson og niðjar þeirra hjóna hafa helgað minning- unni um tónskáldið Selmu Kaldalóns segir Kristinn Reyr meðal annars: „Tónlistin var Selmu Kaldalóns náð- argjöf og fylginautur. Um æsku- heimili sitt og áhrifin þaðan fómst henni þannig orð: „Ég vaknaði oftast við músík á morgnana og sofnaði við músík á kvöldin". Selma nam píanóleik hjá föður I sínum og Else Stender og síðan eitt ár við Tónlistarskólann í Reykjavík. Er hún hélt út í lífið með eiginmanni sínum fylgdi tónlistarandinn úr föð- urgarði og sköpunargáfan sveif yfir heimili hinnar ungu húsmóður. Árið 1980 kom út á vegum Fálk- ans hljómplata sem hafði að geyma tólf sönglög eftir Selmu og tíu söng- lög eftir Sigvalda. í ummælum Dr. Hallgríms Helgasonar á umslagi þeirrar plötu segir meðal annars: „Selma hefur dálæti á valsins þrískiptu hrynjandi og greiðir náttúr- lega úr stuttum, haglega steQuðum tónhendingum. Tónskyn hennar er §ölvíst frekar en fjölbreytið og tón- minni óskeikult“. Á þessari nýju hljómplötu, sem ber heitið „Má ég í fang þér færa“ koma fram sjö þjóðkunnir listamenn. Það eru píanóleikaramir Jó..as Ingi- mundarson og Ólafur Vignir Alberts- son og söngvaramir Elísabet F. Eiríksdóttir, Elín Sigurvinsdóttir, Guðrún Tómasdóttir, Kristinn Sig- mundsson og Júlíus Vífill Ingvars- son. (gntinental Betri barðaralitárið Hjólbarðaverkstæði Vesturbæjar Ægissíðu, sími 23470. HAUST- HAPPDRÆTTL ___SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS.. VERÐMÆTIR VINMNGAR GREIÐSLUKORTAWÓNUSTA HRINGIÐ í SÍMA 82900 Skrifstoftin llúuluitishraut 1 er opin virka daga frá kl. 9-22 og um helgar kl. 10-17. Sjálfstæðismenn, eflum flokksstarfið, gerum skil á heimsendum happdrættismiðum GoldStar Vorum að fá nýja sendingu af þessum frábæru myndbandstækjum HQ High Quality GoldStar GHV-51 FP: Verð 37.900, - kr. stgr. / Þráðlaus fjarsýring, / 14 daga upptökuminni fyrir 4 mismunandi upptöku tíma, / ljós sýna allar aðgerðir tækisins, / faststilling á 12 stöðvum, / ETR-skyndi upptaka, / föst dagleg upptaka, / kyrrmynd, ✓ myndleitari, sjálfvirk spólun til baka, / 4 tíma upptaka. GoldStar GHV-1221 P: / "High Quality" myndbandstæki með 20% meiri myndgæði, / þráðlaus fjarsýring, /14 daga upptökuminni fyrir 4 mismunandi upptöku tíma, / faststilling á 12 stöðvum, / ETR-skyndi upptaka, / föst dagleg upptaka, / sjálfvirk spólun til baka, / kyrrmynd, / myndleitari, / 4 tíma upptaka. VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR VISA E SKIPHOLTI SfMI 29800 IEURO KREDIT AÐEINS DREGIÐ ÚR SELDUM MIÐUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.