Morgunblaðið - 02.11.1986, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
25
Elly
Ameling
mmk! ■ -
Tónlist
Jón Asgeirsson
Elly Ameling og Rudolf Jansen
komu fram á vegum Tónlistarfé-
',lagsins í Austurbæjarbíói. Efnis-
skráin var í raun þrískipt, þar
sem fyrstar voru á blaði tvær
„antik“ aríur eftir Gluck og Vi-
valdi, þá sönglög eftir Debussy
og Poulenc en niðurlag tónlei-
kanna voru ellefu lög eftir Hugo
Wolf. Arían „0 del mio dolce
ardor", eftir Gluck er frábærlega
fallegt tónverk, þar sem lögð er
áhersla á líðandi tónskipan en í
Vivaldi aríunni, Armatae face,
eru hraðar línur er reyna á leik-
andi raddtækni. Þessu skilaði
Elly Ameling frábærlega vel.
Lögin eftir Debussy, þrír grískir
söngvar og þijú lög við ljóð eftir
Malarmé, eru mjög fallegar
tónsmíðar, þar sem hlutverk
píanósins er undursamlegur leik-
ur með blæbrigði og tónferlið í
söngnum meira mótað til að túlka
textann en að leika með laglínur.
Allt þetta var einstaklega fallega
flutt og sömuleiðis fimm lög eftir
Elly Ameling
Poulenc, sérstaklega kirkju-
garðslagið, sem er undarlega
fallegt. Hjá Poulenc er blandað
Rudolf Jansen
saman leikrænni túlkun, sem er
samofin í söng og undirleik og
lagbrotum er bera svip af frönsk-
um alþýðulögum. í síðari hluta
tónleikanna voru eingöngu
söngverk eftir Hugo Wolf. Þar
mátti heyra þematísk vinnubrögð
í píanóinu þannig að undirleikur-
inn er oftlega sjálfstætt píanó-
verk og í þeim verkum var
undirleikur Rudolf Jansens blátt
áfram snilldarlegur. Söngur Elly
Ameling í þessum snilldarverkum
Wolfs er í raun meiriháttar tón-
listarviðburður, því söngur
hennar verður ekki hlutaður nið-
ur í túlkun, raddbeytingu eða
eitthvað annað er lýtur að söng-
tækni; hann er í raun opinberun
listrænnar fegurðar sem ekki
verður skilgreind.k I sönglögun-
um eftir Hugo Wolf náðu Elly
Ameling og Rudolf Jansen að
opna um stund sýn til heima, sem
alla jafna eru huldir mönnum,
nema þá er hljóðnar af fánýtu
skarki manna, sem „hljóðblindar"
allt mannlífið í dag.
FRIÐARAR
1986
Fjörutíu ára aiild islands að Sameinuiu þjóðunum
Félag Sameinuðu
þjóðanna:
Rit tileink-
að friðar-
árinu
FÉLAG Sameinuðu þjóðanna
hefur gefið út rit i tilefni af frið-
arári Sameinuðu þjóðanna og þvi
að fjörutíu ár eru nú liðin siðan
ísland varð aðildarríki að sam-
tökunum.
Félagið minntist tímamótanna
með öðrum hætti um síðustu helgi,
en þá var haldin ráðstefna á Hótel
Sögu um ófriðar- og hættusvæði í
heiminum. Ritið sem nú hefur verið
gefið út hefst með stuttu ávarpi
Steingríms Hermannssonar, for-
sætisráðherra. Matthías Á. Mathi-
esen utanríkisráðherra skrifar um
framlag íslendinga til friðarmála
og birt er ávarp aðalritara Samein-
uðu þóðanna, Javier Pérez de
Cuéllar. Þá ritar Ólafur Egilsson,
skrifstofustjóri í utanríkisráðuneyt-
inu um friðargæslu og afvopnun
og kemur þar m.a. fram að um 150
stríð hafa geysað víðsvegar um
heiminn frá lokum síðari heims-
styijaldar. Valdimar U. Valdimars-
son sagnfræðingur skrifar grein þar
sem hann veltir fyrir sér starfi ís-
lendinga og afstöðu á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna og síðast en
ekki síst er í ritinu að finna kafla
úr ævisögu Abba Eban, fyrrverandi
utanríkisráðherra ísraels. Þar lýsir
hann atbeina Thors Thors á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
árið 1947 þegar greidd voru at-
kvæði um stofnun Israelsríkis. Thor
var frummælandi þennan dag og í
kaflanum kemur fram að Abba
Eban þakkar honum að verulegu
leyti lyktir málsins.
Auk greina þessara er að finna
í ritinu upplýsingar um útgjöld til
hermála í heiminum og ýmsar stað-
reyndir aðrar. í stjóm Félags
Sameinuðu þjóðanna eru Knútur
Hallsson, formaður, Ásgeir Péturs-
son, Björn Þorsteinsson, Guðrún
Erlendsdóttir og Jón Skaftason.
Varastjórnendur eru Eiður Guðna-
son, Gunnlaugur G. Snædal og Þór
Guðmundsson. Framkvæmdastjóri
og ritstjóri er Ragnar Ólafsson.
GENERAL SYNING
BILA
MOTORS
CHEVROLET
MONZA
OPEL
CORSA
OPEL
KADfcTT
ISUZU
PKKUP
isuzu
IROOPERa^
Verðum með sýningu á þessum bílum í sýningarsal okkar
að Höfðabakka 9
laugardaginn 1. nóvember — opið frá 10.00 til 17.00
sunnudaginn 2. nóvember — opið frá 13.00 til 17.00
GM
CHEVROLET
-&■
m
BiLVANGURstf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300