Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 33

Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 33 FJÓRARGÓB MED POLARIS erðaskrífstofan Polarís býður fjóra spennandi möguleika í svartasta skammdeginu, fjórar góðar ferðir. Valið stendur um dvöl á Florida með óviðjafnanlegri siglingu um Karabíska hafið, ævintýraferð til Thailands eða afslöppun í sólarsælu Kanaríeyja eða Madeira. DRAUMASIGUNG UM KARABÍSKA HAFIÐ Sigling um Karabíska hafið er stórkostleg upplifun sem hefst með beinu flugi til Orlando. Þaðan er flogið til Miami og lagt upp í sjö daga ógleymanlega siglingu um Karabíska hafið með viðkomu á Bahamaeyjum, Puerto Rico og hinum óviðjafnanlegu Jómfrúareyjum. Skipið er 48 þúsund tonna sælustaður með þremur sund- laugum, spilavíti, tveimur næturklúbbum, diskóteki, heilsu- rækt, tennisvöllum og aðstöðu fyrir golf, svo lítið sé nefnt. Matsveinarnir um borð eru sannir listamenn og að sjálfsögðu eru allar máltíðir innifaldar í verðinu. Iburður, fjör og ferskleiki eru einkunnarorð ferðarinnar því fjörið er alls ekki á enda þegar siglingunni lýkur. Þá eru eftir 4 dagar í Orlando með heimsókn í Sea World, Epcot Center og Disney World. Síðasti leikur ferðarinnar er viku afslöppun í St. Petersburg undir Floridasól eins og hún gerist best. Þar er gist á Alden hótelinu sem margir íslendingar þekkja. Einnig er hægt að dvelja á Florida án þess að sigla um Karabíska hafið, þá er slappað af og lífsins notið í 18 daga á Alden hótelinu. Brottfarír eru 1/1, 17/1, 22/1 og 29/1. Verö í 18 daga ferð frá kr. 64.500,- ÆVINTYRAHEIMUR THAILANDS OG SINGAPORE ótt í Bangkok er ógleymanlegt ævintýri en ferðaskrif- stofan Polaris býður fjórar nætur í þessari borg óvæntra ævintýra. Síðan er farið á Pattaya ströndina, frægustu baðströnd Thailands og lifað í vellystingum í 10 daga. Gist er á fyrsta flokks hóteli þar sem stjanað er við gestina allan sólarhringinn. Farþegum Polaris gefst þarna gott tækifæri til að upplifa ævintýraheima Thailands og sú reynsla gleymist ekki næstu áratugina og auðveldlega má framlengja ferðina með auka- viku við Pattaya ströndina eða kóróna ferðina með aukaviku í ævintýraborginni Singapore. Þar er gist á enn einu lúxus hótelinu og leyndardómar Singapore kannaðir á nóttu sem degi. Brottfarír alla þríðjudaga. Verð í 17 daga ferð frá kr. 51.669,- (Aukavika á Pattaya kr. 3.899, aukavika í Singapore kr. 8.976) KANARÍEYJAR úsundir íslendinga þekkja paradís Kanaríeyja með lúxus hótelum, hvítum sandi og svalandi sjó. Nú gefst farþegum Polaris kostur á beinu leiguflugi í þriggja vikna ferðir í fjörið á Kanarí. Brottfarir oru 13/11, 18/12, 08/1, 19/2, 12/3, 9/4 og 30/4. VerO í 3 vikur frá kr. 39.372,- MADEIRA Madeira er sannkölluð vin í Atlantshafinu nokkru norðar en Kanaríeyjar og þar gefst farþegum Pölaris kostur á að flatmaga í sólskininu og láta sjóinn gæla við brúnan kroppinn. Flogið er beint til Madeira, dvalið á góðum hótelum í fallegu umhverfi í þrjár eða fjórur sæluvikur. Brottfarir eru 11/12, 20/1, 29/1, 26/2 og 19/3. Verð í 3 vikur frá kr. 35.460,- Innifalið í öllum verðum er flug og gisting í 2ja manna íbúðum /herb. Flugvallaskattur er ekki innifalinn. FERÐASKRIFSTOFAN POLARIS Kirkjutorgi 4 Sími622 011 POLARIS w STRIK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.