Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 49

Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 Húsin prfla »lla leið upp á tinda. er Qörug í tali og einlæg í fasi og hefur yndi af starfinu. Sheraton er afar vinsælt á Madeira og er byggt á fögrum stað, sundlaugar á tveim- ur „hæðum" í klettunum. Af þeirri neðri er bara að stinga sér beint í sjóinn. Matstaðimir og pöbbinn á Sheraton að ógleymdu hvers konar skemmtiefni veldur því meðal ann- ars að þar er þéttsetinn bekkurinn nánast árið um kring. Ég veitti því athygli við komuna, að leigubíllinn sem Wily Sousa sendi eftir mér, var málaður í nýjum lit — gulur með blárri rönd en ekki svartur og blágrænn eins og allir leigubílar i Portúgal hafa verið. Flestir bílar á Madeira hafa skipt um lit á þennan hátt. í öðra lagi sá ég að leigubílstjórinn var kona. Ég hafði ekki áður vitað að konur keyrðu leigubíla á Madeira. Idalina Marques leigubílstjóri segir mér að hún sé ein af sjö kon- um, sem era leigubílstjórar á eynni, en þær vinna ekki allar að stað- aldri við aksturinn. Hún segir að það séu sex ár síðan hún byrjaði að keyra á móti manni sínum. Þau hjón eiga stóra fjölskyldu og þessi vinnutilhögun hentar þeim prýði- lega. Jú, víst yrðu útlendingar oft hissa þegar þeir sæju að kona væri við stýrið. En þeir sýni henni aldrei annað en velvilja og kurteisi. Það er mest að gera á sumrin og svo frá því í október og fram í mars. Jú, víst fannst mörgum Madeirabú- um kyndugt, þegar hún tók upp á að verða leigubílstjóri. „En það vora aðallega karlmennimir," segir hún hlæjandi. „Þeir litu það homauga til að byija með. Það er alitaf svo- leiðis með störf sem hafa verið setin | af karlmönnum. En þetta er ekki Fereira Silva hótelstjórí ásamt einum barþjóna sinna. Idalina leigubílstjórí. margt að bjóða, sem glatt getur ferðamenn í leyfum sínum. Mér _er í minni fyrsta kvöldið mitt þá. Ég sat í veitingasalnum að fá mér snarl á Sheraton og var að tala við svissn- eska konu við næsta borð. Þjónninn vísaði til sætis rétt hjá ungum, íslenzkum hjónum. Þau vora í hörkurifrildi. Frúin hrifsaði matseð- ilinn illskulega af þjóninum og hélt áfram að lesa jrfir manni sínum. Svo skall á ísköld þögn og allt í einu stóð maðurinn á fætur og hrað- aði sér út. „Nú fór í verra," hugsaði ég og var að velta fyrir mér, hvort ég ætti að blanda mér í málið. En eftir nokkur andartök kom maður- inn aftur. Hélt á þessari líka undursamlegu orkideu, sem hvergi sjást fallegri en á Madeira, og rétti konu sinni. „Við getum ekki verið að eyða tímanum í að rífast á svona stað. Og svo öll þessi blórn," sagði hann vandræðalega. Segi menn svo, að íslendingar eigi ekki til dulitla rómantík. Það er meðal ann- ars þetta, sem ég á við með því að segja að ég trúi því að maður verði betri á Madeira. Hvort sem það nú endist eða ekki. Nú búa á eynni um þijú hundrað þúsund manns, þar af þriðjungur í höfuðborginni Funchal. Uni bæinn má reika á björtum dögum, fara á markaðinn og horfa á blómaskrúð- ið, grænmetið, allt milli himins og jarðar er selt þama. Og mannlíf sem er litríkt og óstressað. Setjast niður í smástað við höfnina og fá viður- kenningarhróp fyrir að geta beðið um bjór á portúgölsku. Snæða fiski- rétti á litlum stöðum, þar sem maður velur bara eftir bijóstvitinu. Keyra til bæjarins Camara do Lob- os og borða enn meiri fisk, og prófa líkjör eyjarseggja, marakusá. Frá- bær drykkur það. Hitta gamla og góða kunningja eins og Pedro Ran- ito, sem vann hjá Ríkisferðaskrif- stofunni en er nú á Madeira Palace. Hann segir mér að íslenzkur banka- stjóri hafi verið þar ekki alls fyrir löngu. Eftir lýsingu gæti það verið Davíð Ólafsson. Eg hitti iíka Carlos Alberto Silva frá Ríkisferðaskrif- stofunni og hann úðar í mig skýrslum og plöggum og auðvitað flösku af Madeiravíninu. Að ógleymdum Willa Sousa, forstjóra Windsor-ferðaskrifstofunnar. Hann þekkja margir hér frá því hann var viðskiptafulltrúi Portúgals í Noregi og kom margsinnis hingað. Hann er ættaður frá Madeira og bjó lengi utan eyjarinnar en tók við Windsor fyrir nokkram áram og rekur ferða- skrifstofuna ekki aðeins af krafti og útsjónarsemi, heldur býr hann yfir stakri hjálpfýsi og vinsemd. Og svo eignast maður alltaf ein- hveija nýja kunningja. Graca Luis, PR-stjóri á Sheraton bauð í hádeg- isverð og sýndi mikinn áhuga á að eiga von á íslenzkum gestum. Graca líkamlega erfitt starf. Og málið er auðvitað með þetta eins og annað, að vinna verk sitt vel. Það er það sem gildir." Idalina segir að launin séu auðvitað mismunandi eftir því hve verkefnin séu mikil, en venjuleg laun hennar séu oft um 30 þúsund eskútur á mánuði. Það gerir líklega milli níu og tíu þúsund krónur og er ekki svo afleitt, þar sem þau hjón vinna bæði. Á síðasta ári komu um 290 þús- und ferðamenn til Madeira. Mér sögðu menn, að meðalaídur þeirra hefði lækkað, enda hefur verið gert Qölda margt til að laða yngra fólk að en áður kom til Madeira. Fereira Silva á Casino Park hafði líka minnzt á að það væri að verða tízka hjá Spánveijum sérstaklega að koma í brúðkaupsferð til Madeira. Eftir skýrslunum hans Carlos Albertos sá ég að öll Norðurlönd nema ísland komust á blað árið 1985. Það gæti sjálfsagt farið að breytast. Svo sigldi ég á Indepentia „með ströndum hinnar miklu eyjar, Madeira. Eyjarinnar sem drengur nafnið af sínum mörgu tijám.“ Svo segir Camoes og síðan leggjum við af stað yfir sundið til Porto Santo, sem er eiginlega hálfgerð leynieyja. Og frá því segir í næstu grein. Texti og myndir: Jóhanna Kristjónsdóttir JORUNN KARLSDÓTTIR Handavmnupokinn Hetta Það er ekki seinna vænna að fara að huga að jólagjöfun- um. Sérstaklega fyrir þá sem útbúa þær sjálfir. Sumir eru langhrifnastir af því að fá heimatilbúnar gjafir. Hér er ein hugmynd, sem mig langar að stinga að ykkur: Hetta til að halda hita á kaffikönnunni eða tekatlinum. Svona hetta er ekki aðeins til að halda heitu, hún er einnig upplífg- andi fyrir kaffíborðið. í hettuna þarf 35x90 senti- metra efnisbút úr til dæmis bláu, gulu eða jafnvel hvítu bómullarefni, og smábút af rauðu og grænu efni í eplin. Einnig þarf strau-flíselín, og vatt eða þunna svampskífu til að láta innaní. Gerið snið á rúðustrikaðan pappír, 1 rúða = 2x2 sm. Hann fæst víða í örkum. Klippið þijá hluta í hettuna og reiknið með 3 sm inná- broti að neðan. Klippið eplin út og strauið flíselín aftan á þau, þræðið á hettustykkin og saumið síðan eplin á með þéttu sig-sag spori. Saumið svo hettustykkin saman, rétt á mót réttu, snúið við og pressið út saumana. Vattið eða svampurinn: Þau stykki saumast í höndunum, þeim svo stungið inn í hettuna og innábrotin saumuð upp að neðan í höndunum. Notið hugmyndaflugið og sjáið til. Þið saumið áreiðan- lega fleiri en eina hettu. Góða skemmtun, Jórunn. / RÚÐA r ax Z 1 / 1- / ° / QC 1 — ; /3L S'V\, QLóO

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.