Morgunblaðið - 02.11.1986, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ég er að svipast um eftir
stjórnunarstarfi
Ég er fertugur byggingameistari, með
víðtæka reynslu í starfsmannastjórnun,
stjórnun launadeilda og einnig ífaglegri verk-
stjórn og tilboðagerð.
Starf mitt hefur mest verið á sviði bygginga,
bæði hér á landi og erlendis, en einnig á
félagsmálasviði.
Mig vantar framtíðarstarf og get orðið laus
á næstu vikum.
Þeir sem áhuga hafa vinsamlega sendi nafn
og símanúmer til augldeildar Mbl. merkt:
„Reynsla — 1669“.
Bókhald
Traust iðnfyrirtæki óskar að ráða starfsmann
til bókhaldsstarfa. Starfið felst í merkingu
fylgiskjala, tölvufærslu og annarri vinnslu
bókhalds. Leitað er að áhugasömum og
traustum aðila, helst með einhverja reynslu
af svipuðum störfum.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist augldeild
Mbl. fyrir 7. nóvember merkt: „D — 5572".
Tryggingafélag
óskar að ráða starfsfólk til eftirfarandi starfa:
1. Sölu- og tjónaafgreiðslu.
2. Lögun og framreiðslu á eftirmiðdagskaffi
fyrir starfsfólk.
Umsóknir ásamt upplýsingum óskast sendar
augld. Mbl. fyrir 5. nóv. merkt „1721“.
Snyrtivöruverslun
í miðbænum óskar eftir starfskrafti á aldrin-
um 25-40 ára, strax. Vinnutími hálfan daginn
frá kl. 1-6.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
augldeild Mbl. fyrir 6. nóvember merkt:
„XE - 8183".
Apótek
óskar eftir starfsfólki, helst lyfjatæknum eða
fólki vönu störfum í lyfjabúð.
Upplýsingar hjá yfirlyfjafræðingi eða á skrif-
stofu (ekki í síma).
Reykja víkurapótek.
„Au-pair“
Bandarísk fjölskylda með 5 börn, 2ja-10 ára,
vill ráða til sín unga manneskju til vistar sem
fyrst.
Doctor Garth H. Ballantyne
Surgical Service -112, I/A Medical Center
West Spring Street, West Haven, CT06516,
U.S.A.
Byggingameistari
getur bætt við sig verkefnum.
Upplýsingar í síma 16780 milli kl. 17.00-21.00.
Tollverðir
Hjá Tollgæslunni í Reykjavík eru lausar til
umsóknar nokkrar stöður tollvarða.
Ráðningarskilyrði eru 20 til 30 ára aldur og
stúdentspróf eða önnur sambærileg mennt-
un. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 11.
nóvember 1986 á eyðublöðum, sem fást á
skrifstofu embættisins.
Reykjavík 13.10. 1986.
Tollgæslustjóri.
LAUSAR STÖÐURHJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Forstöðumaður óskast fyrir nýtt heimili, sem
á að annast skammtíma vistun fyrir fötluð
börn.
Óskað er eftir starfskrafti með menntun
þroskaþjálfa, fóstru eða starfskrafti með
sambærilega menntun.
Upplýsingar um starfið veita Helga Jóhann-
esdóttir, sérfulltrúi í síma 685911 og Kristín
Pálsdóttir, forstöðumaður í síma 31130.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar Pósthússtræti 9, 6. hæð,
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Starf
viðframköllun
Starfskraftur óskast til starfa á framköllunar-
stofu í Kópavogi.
Umsóknir sendist fyrir 7. nóvember til:
Filman sf.,
pósthólflO, Kópavogi.
Kortagerð
Sjómælingar íslands óska að ráða mann til
kortagerðar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma
91-10230 eða á skrifstofunni að Seljavegi
32, Reykjavík.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Starfsmenn óskast í hlutastarf við nýtt Ungl-
ingaathvarf í Seljahverfi. Vinnutími 2-3 kvöld
í viku frá kl. 16.00-23.00. Menntun og/eða
reynsla sem nýtist í starfi með unglingum
æskileg.
Upplýsingar í síma 20606 frá kl. 13.00-15.00
daglega.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar Pósthússtræti 9, 6. hæð,
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást.
Svæfinga-
hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Akraness óskar eftir svæfinga-
hjúkrunarfræðingi. Um tímabundið starf er
að ræða, þ.e. frá 1.1. 1987 til 30.9 1987.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 93-2311.
Deildarstjóri
Þekkt verslunarfyrirtæki í borginni vill ráða
deildarstjóra til starfa, sem fyrst. Viðkom-
andi sér um rekstur deildar er tengist
barnafatnaði og skyldum vörum, t.d inn-
kaup. Leitað er að duglegri konu á aldrinum
25-40 ára, sem vinnur sjálfstætt og skipu-
lega, hefur örugga framkomu og þekkir inn
á slíkan rekstur. Enskukunnátta skilyrði
vegna ferðalaga erlendis.
Nánari uppi. á skrifstofu.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist skrifstofu okkar, fyrir 9. nóv. nk.
Gudnt TÓNSSON
RÁDCJÓF & RÁÐN I NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Viðskiptafræðingur
Fyrirtækið er opinber stofnun í Reykjavík.
Starfið felst í úrlausn ýmissa tölfræðilegra
verkefna í tenglsum við bókhald.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé með
próf í viðskiptafræðum frá Háskóla íslands
eða hafi sambærilega menntun.
Vinnutími er sveigjanlegur.
Umsóknarfrestur er til og með 12. nóvem-
ber nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavördustíg la — 101 Reykjavik — Sími 621355
Starfsfólk óskast
Óskum að ráða dugmikið og áreiðanlegt
starfsfólk til framtíðarstarfa í eftirtaldar deild-
ir í verslun okkar Skeifunni 15:
— Matvörudeild (hlutastörf koma til
greina)
— Skódeild
— Snyrtivörudeild
Við leitum að fólki sem hefur góða og ör-
ugga framkomu og á létt með að veita
viðskiptavinum okkar sem besta þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
(ekki í síma) mhaudag og þriðjudag frá kl.
16.00-18.00. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á staðnum.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahald.
Heimilistæki hf
- Sætúni 8 — Slmi 27500.
WANG
Sölustjóri
óskast til starfa hjá tölvudeild Heimilistækja hf.
Starfssvið: Skipulagning og stjórnun sölu-
og markaðsmála, sala og ráðgjöf varðandi
WANG tölvur og tölvubúnað. Sölustjóri
skipuleggur og sér um framkvæmd tölvusýn-
inga og auglýsinga í samvinnu við deildar-
stjóra.
Við leitum að manni með reynslu af sölu-
og markaðsmálum og stjórnun. Viðkomandi
þarf að hafa vandaða framkomu og gott við-
mót, vera þægilegur í daglegri umgengni,
röggsamur og sjálfstæður og vera tilbúinn
að veita vandaða og góða þjónustu fyrir
hönd fyrirtækisins.
Starfsmenn Heimilistækja hf. þurfa að hafa
góða enskukunnáttu og geta sótt námskeið
erlendis. Með starfi hjá Heimilistækjum hf.
gefst þér möguleiki á að kynnast tölvubún-
aði í fremstu röð.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. fyrir 8.
nóv. nk. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þor-
varðarson hjá Hagvangi hf.
Hagvangur hf
RÁÐNINGARPJÓNUSTA
CRENSÁSVECI 13, 108 REYKJAVÍK
Sími: 83666