Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 53

Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 53 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna #Mf l# RÍKISÚ7VARPIÐ Vill ráða markaðsstjóra á auglýsingadeild Ríkisútvarpsins. Markaðsstjórinn ber ábyrgð á sölustarfi, afgreiðslu og vinnslu auglýsinga fyrir hljóðvarpið, rás 1. Ennfremur annast hann samskipti deildar- innar við hljóðvarpið. Æskilegt er, að umsækjandi hafi til að bera góða þekkingu á íslensku máli og mikla markaðsþekkingu. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember nk. og ber að skila umsóknum til Ríkisútvarpsins, Skúlagötu 4, á eyðublöðum sem þar fást. Félag starfsfólks í húsgagnaiðnaði auglýsir: Vegna mikillar vinnu í húsgagnaiðnaðinum í Reykjavík vill félagið benda á að verulegur skortur er á faglærðum húsgagnasmiðum hjá þeim húsgagna- og innréttingaframleið- endum sem eru í Félagi húsgagnar og innréttingaframleiðenda. Vil ég, f.h. félagsins benda þeim félagsmönn- um sem eru að vinna önnur störf á þessa staðreynd og þá einnig þeim sem ekki eru félagar, en vilja koma aftur til starfa í hús- gagnaiðnaðinum. Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 30, 2. hæð. Starfsmaður. Ritari (948) Fyrirtækið er innflutningsfyrirtæki í Reykjavík. Starfssvið: Umsjón og framkvæmd með er- lendum og innlendum innkaupum, telex, bréfaskriftir, toll- og verðútreikningur, eftirlit flutningskostnaðar, birgðahald o.fl. Við leitum að manni sem hefur verslunar- menntun, góða enskukunnáttu, hæfileika og getu til að starfa sjálfstætt, á auðvelt með ákvarðanatöku og er þægilegur í daglegri umgengni. í boði er mjög gott framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki með samstiltum hópi manna. Góð laun. Laust 1. janúar 1987. Launagjaldkeri (970) Fyrirtækið er þjónustufyrirtæki í Reykjavík. Starfssvið: launaútreikningur, tölvuritun og almenn skrifstofustörf. Við leitum að manni sem hefur verslunar- skólapróf eða sambærilega menntun, löngun og getu til að starfa sjálfstætt og skipulega. í boði er: gott framtíðarstarf. Laust 1. janú- ar 1987. Bókari (1120) Fyrirtækið er innflutningsfyrirtæki í Reykjavík. Starfssvið: Almenn bókhaldsstörf (s.s. merk- ing fylgiskjala, afstemmingar og uppgjör) í fjárhags- og viðskiptamannabókhaldi. Um er að ræða nokkuð flókið og umfangsmikið bókhald, sem krefst haldgóðrar þekkingar og reynslu af bókhaldsstörfum. Við leitum að manni með verslunarmenntun og reynslu af bókhaldsstörfum. Viðkomandi getur hafið störf strax eða eftir nánara sam- komulagi. Vinsamlegast sendið umsóknir á eyðublöð- um sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar númeri viðkomandi starfs. Hagvangurhf RÁÐNINGARPJÓNUSTA CRENSÁSVECl 13, 108 REYKJAVÍK Sími: 83666 RIKISSPITALAR LAUSARSTÖÐUR Starfsfólk óskast til ræstinga við Landspít- ala og Vífilsstaðaspítala. Upplýsingar veita ræstingastjórar í síma 29000-494. Starfsfólk óskast til vaktavinnu við eldhús Landspítalans. Um fullt starf er að ræða eða 75%. Ennfremur vantar fólk í 50% vinnu frá kl. 16.00-20.00. Upplýsingar veitir yfirmatráðsmaður Land- spítalans fyrir hádegi í síma 29000. Starfsfólk óskast til vinnu á vistdeildum full- orðinna og barna á Kópavogshæli. Starfið er fólgið í meðferð og umönnun þroska- heftra vistmanna. Unnið er á tvískiptum vöktum; morgunvakt frá kl. 08.00 til 16.00 eða kvöldvakt frá kl. 15.30 til 23.30. Upplýsingar um ofangreind störf veitir fram- kvæmdastjóri eða yfirþroskaþjálfi Kópavogs- hælis í síma 41500. Starfsfólk óskast til vinnu við þvottahús ríkisspítalanna, Tunguhálsi 2. Boðið er upp á akstur til og frá vinnustað að Hlemmi. Upplýsingar veitir forstöðumaður þvottahúss í síma 671677. Starfsmaður óskast við dagheimili ríkisspít- ala, Sólhlíð. Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimil- isins í síma 29000-591. Reykjavík, 2. nóvember 1986. Rafiðnaðarmenn Óskum eftir að ráða starfsmann í tæknideild. Starfið felst í viðhaldi og uppsetningum á tölvubúnaði af ýmsum gerðum. Rafeinda- virkjun eða sambærileg menntun æskileg, ásamt einhverri þekkingu á tölvum og góðri enskukunnáttu. Skriflegar umsóknir er greini ma. frá aldri og fyrri störfum óskast sendar fyrir 20. nóv- ember nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Ríkisútvarpið — Sjónvarp vill ráða dagskrártæknimann í myndbanda- deild og tæknistjóra við upptökur. Rafeinda- virkjun eða hliðstæð menntun er nauðsynleg. Nánari upplýsingar gefur rekstrarstjóri tæknideildar í síma 38800. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember nk. og ber að skila umsóknum til Sjónvarpsins, Laugavegi 176, á eyðublöðum sem þarfást. Símavarsla Starfskrafta vantar við símavörzlu. Vakta- vinna. Tilboð ásamt aldri og fyrri störfum sendist augld. Mbl. merkt: „C — 1722“. Bókaverslun í miðbænum óskar eftir starfskrafti hálfan daginn frá kl. 13.00-18.00. Umsóknir er greina aldur og fyrri störf sendist augld. Mbl. fyrir 7. nóvember merkt: „A.B. - 698". Sölustarf Vegna skipulagsbreytinga í söludeild óskum við nú eftir að ráða sölumann til starfa. Um er að ræða lifandi starf sem býður upp á mikla möguleika. Æskilegt er að viðkomandi hafi bifreið til umráða og geti hafið störf um miðjan des- ember. Umsóknir leggist inn á augld. Mbl. fyrir 6. nóvember 1986 merktar: „Nói og Síríus hf. og Hreinn hf. — sölustarf — 1662“. acohf LAUGAVEG 1GB ■ REYKJAVÍK Mjólkurfræðingur Óskum að ráða mjólkurfræðing til starfa í ísgerð Mjólkursamsölunnar. Umsóknir skulu berast skrifstofu okkar fyrir 10. nóvember nk. Mjólkursamsalan — ísgerð. Skrifstofa Brautarholti 16, (3. hæð) Reykjavík. Sími 692200. Veitingastjóri Óskum eftir að ráða veitingastjóra til starfa. Til greina kemur heilsdags- eða hlutastarf. Upplýsingar aðeins gefnar á staðnum nk. þriðjudag og miðvikudag milli kl. 15.00 og 17.00. H946lll986\ Brautarholti 20. RÍKISSPÍTALAR LAUSAR STÖÐUR JMŒlÉ Aðstoðarlæknir óskast við kvennadeild Landspítalans í 6 mánuði frá 1. janúar nk. Umsóknir á umsóknareyðublöðum fyrir lækna sendist skrifstofu ríkisspítala fyrir 28. nóvember nk. Upplýsingar veita yfirlæknar kvennadeildar í síma 29000 Hjúkrunarfræðingar óskast á legudeildir og vökudeild Barnaspítala Hringsins. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda- stjóri Barnaspítala Hringsins í síma 29000- 285. Hjúkrunarfræðingar óskast á skurðdeiid Landspítalans. Sérmenntun æskileg. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda- stjóri skurðdeilda í síma 29000-508. Ljósmóðir eða hjúkrunarfræðingur með Ijósmóðurmenntun óskast til starfa á með- göngudeild 23-b frá 1. janúar nk. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri kvenna- deildar Landspítalans í síma 29000-509. Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri óskast til starfa á geðdeild Landspítalans, deild 14. Æskilegt er að umsækjandi hafi sérmenntun í geð- eða öldrunarhjúkrun. Upplýsingar veita hjúkrunarframkvæmda- stjórar Geðdeildar Landspítalans í síma 38160. Fóstra og starfsmaður óskast við dag- heimili ríkisspítala, Sólhlíð. Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma 29000- 591. Reykjavík, 2. nóvember 1986.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.