Morgunblaðið - 02.11.1986, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 02.11.1986, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 JERRY Lee Lewis, einn af frumkvöðlum rokktónlistarinnar, er væntanlegfur til landsins síðar í vikunni og heldur hann ferna tónleika í veitingahúsinu Broadway. Er ekki að efa að koma Jerry Lee er mikill hvalreki á fjörur rokkaðdáenda enda var hann í hópi skærustu stjarna rokktónlistarinnar á gullaldarárunum og var þá nefndur í sömu andrá og Elvis, Fats Domino, Chuck Berry og Little Richard. Þótt Jerry Lee Lewis hafi frá fyrstu tíð verið einn umdeildasti rokkari sögunnar og hneykslað marga með dramatísku og stormasömu lífi sínu ber enginn brigður á að hann er rokkari af guðs náð og hæfileikar hans á því sviði eru ekki dregnir í efa. Síðar á ferli sínum naut hann vinsælda sem „kántrý-söngvari“ og því má búast við að unnendur þeirrar tónlistar fái einnig eitthvað fyrir sinn snúð. Enn þann dag í dag flykkjast aðdáendur á tónleika hans þar sem kappinn fer á kostum, rétt eins og í þá gömlu góðu daga þegar hann stóð á hátindi frægðar „Leiktu þetta eftir, surtur“ Ágrip af sögu Jerry Lee Lewis, sem væntanlegur er hingað til lands Jerry Lee Lewis hefur gengið í gegnum allt það sem sem tónlistar- bransinn býður upp á, bæði það besta og versta. Hann hefur baðað sig í geislum frægðarsólar og sokk- ið niður í dýpstu niðurlægingu, hafist upp á ný sokkið aftur, enn dýpra. Hann hefur velt sér upp úr veraldlegum auði og horft á eftir öllum eigum sínum í gapandi gin skuldheimtumanna. Hann hefur einnig horft á eftir tveimur sona sinna í gröfina og skilið við fimm eiginkonur. Jerry Lee hefur oftar en einu sinni setið í fangelsi fýrir óreglu, vanskil og anr.an skepnuskap, -í einu tilfellanna var honum gefíð að sök að hafa skotið á vin sinn í öl- æði. Hann hefur jafnvel legið undir þeim hræðilega grun að hafa átt þátt í dauða einnar sambýliskonu sinnar, þótt allt bendi til að því hafi verið logið upp á hann. Það hefur alltaf verið til fólk sem hefur fundið hvöt hjá sér til að níða Jerry Lee Lewis niður í svaðið. Hann hefur þó staðið af sér alla storma og rokkar enn, - eða eins og titill einnar plötu hans gefur til kynna: „The Killer rocks on“. Sjálfur hefur Jerry Lee, sem alinn er upp í sértrúarsöfnuði, útskýrt sveiflumar í lífi sínu í ljósi barát- tunnar á milli góðs og ills og í rauninni hefur allt hans líf endur- speglað þann þátt í persónuleika hans, sem einkennist af togstreitunni á milli Guðs og Djöfulsins. „Þúgetur ekki þjónað tveimur herr- |um“, sagði hann eitt sinn. „Annað hvort ertu verfæri Guðs eða Djöfulsins. Og ég verð að viðurkenna að í tónlist minni hefur Djöfullinn oft náð undirtökunum og spilað í gegnum mig.“ í SKÍT OG DRULLU Jerry Lee Lewis fæddist 29. sept- ember 1935, í bænum Ferriday í Louisiana í Suðurríkjunum, sonur hjónanna Elmo Kidd Lewis og Mary Ethel. Forfaðir hans var auðugur plantekrueigandi og dómari í Louis- iana. Eftir Þrælastríðið fór að halla undan fæti hjá ættinni og flestir eftirkomendanna áttu illa æfi í skít og druliu á ökrum Suðurríkjanna. Þegar hér var komið sögu fram- fleytti Elmo Lewis fjölskyldu sinni með landbúnaðarstörfum við kröpp kjör. Jerry Lee minnist þess að hafa setið, ásamt eldri bróður sínum Elmo yngra, á hnjám föður síns og hlustað á hann segja frægðarsögur af forfeðrunum og hvemig Thomas gamli dómari hafði rotað hest í einu höggi. Elmo minntist ekkert á skítinn og drulluna. Litlu drengimir hlustuðu hugfangnir á og létu sig dreyma stóra drauma. Sá eldri lést af slysförum skömmu síðar, en hinn átti eftir að rísa hærra en jafnvel Thomas dómari, og jafnframt sökkva dýpra en allir hinir til sam- ans. Dag einn kom Elmo gamli ak- andi heim á gamla pallbílnum sínum með píanó á pallinum. Þar með voru örlög Jerry Lee ráðinn. Hann sýndi snemma mikla hæfileika við hljóðfærið og var ekki hár í loftinu þegar hann fór að ferðast um með föður sínum um Concordia Parrish, þar sem þeir feðgar fluttu tónlist sína af vörubílspalli gamla manns- ins. Drengurinn var líka látinn koma fram við guðsþjónustur í söfn- uðinum „Kirkju Guðs“, þótt tónlist hans þætti þar ekki alltaf guði vel- þóknanleg. Eitt sinn vann Jerry Lee til verð- launa í hæfileikakeppni í héraðinu og komst þar með í útvarpsþátt í svæðisútvarpinu. Hans var jafnvel getið í bæjarblaðinu. Um svipað leyti komst faðir hans, Elmo, einnig í blöðin vegna málaferla þar sem þeim gamla var gefið að sök að hafa hótað að drepa frænda sinn vegna vangoldinnar skuldar. VÍNSTÚKUR OG VILLTAR MEYJAR Jerry Lee stofnaði hljómsveit ásamt ungum frænda sínum og spilaði hún víða um Suðurríkin. Þótt Jerry Lee væri vart af bams- aldri hafði hann þá þegar þróað með sér sinn sérstaka stfl, þar sem „boogie-woogie" var allsráðandi, og pilturinn þótti lofa góðu. En því meira sem strákur ánetjaðist hinni villtu tónlist þeim mun verr leið honum á sálinni. Það var ekki bara að tónlistin væri syndsamleg heldur einnig allt sem henni fylgdi: nætur- klúbbamir, vínstúkumar og ber- rassaðar stelpur. Hann ákvað að venda sínu kvæði í kross og gefa Guði líf sitt. Jerry Lee settist á skólabekk í Biblíuskóla í Waxahachie í Texas. Honum hafði reyndar aldrei látið vel að stunda nám og ekki riðið feitum hesti frá prófborðinu í bamaskólanum. Hins vegar þótti hann góður prédikari og eldmóður- inn fleytti honum áfram um hríð. En syndin lá í leyni og freistaði hans líkt og lausgirtu stelpumar á næturklúbbunum. Og skammt frá lá mesta syndabæli fylkisins, Dall- as, og beið hans með allt upp um sig. Jerry Lee fór að stelast út á nóttunum og sækja í næturklúb- bana í Dallas. Þess var heldur ekki langt að bíða að stíflan brysti og eitt sinn við guðsþjónustu stóðst hann ekki þá freistingu að spila sálm í „boogie-woogie". Tveimur dögum síðar sagði hann sig úr skóla. HJÓNABÖND OG BOOGIE WOOGIE Sumarið 1951, þegar Jerry Lee var fimmtán ára hitti hann sautján ára gamla stúlku, Dorothy Barton, prédikaradóttur frá bænum Sterl- ington og nokkrum mánuðum síðar voru þau gift. Dorothy flutti inn hjá Lewis-fjölskyldunni og Jerry Lee fór að prédika í „Kirkju Guðs“ á sunnudögum. Á kvöldin spilaði hann „boogie-woogie" á krám víða um sveitina. Dorothy kunni því illa að vera skilin ein eftir heima á kvöldin og gafst að lokum upp. Hún fór aftur heim til mömmu og pabba vorið 1953 og Jerry Lee hellti sér óskiptur út í músíkina og næturlíf- ið. Þá um sumarið kynntist hann sautján ára gamalli stúlku, Jane Mitcham, og mánuði áður en Jerry Lee varð átján ára sagði hún honum að ást þeirra hefði borið ávöxt og að hann yrði að giftast sér. Jerry Lee útskýrði fyrir henni að hann hefði ekki haft rænu á að ganga löglega frá skilnaðinum við konu sína og að í augum Guðs og yfir- valda í Louisiana væri hann enn kvæntur Dorothy. Skömmu síðar var barið að dyr- um hjá Lewisfjölskyldunni. Þar voru komnir nokkrir bræðra Jane Mitcham. Þeir voru vopnaðir hesta- svipum og skammbyssum og létu dólgslega. Tveir þeirra vildu ganga hreint til verks og drepa Jerry Lee, en hinir gátu sætt sig við þá mála- miðlun að hann kvæntist systur þeirra. Sú varð og niðurstaðan, eft- ir að gengið hafði verið frá skilnaði Jerry Lee og Dorothy. Jane vildi að Jerry Lee hætti spilamennskunni enda áttu þau von á barni. Hann fór að vinna við pípu- lagnir og entist í þijá daga. Þá gerðist hann sölumaður fyrir saumavélar og endaði þá starfsemi bak við lás og slá. Hann og félagi hans höfðu lent á fylleríi í einni söluferðinni og farið heldur gáleys- islega með skotvopn. Þetta var síðasta „dagvinnan" sem Jerry Lee stundaði. Sama kvöldið og hann losnaði úr steininum var hann sest- ur við píanóið í „Dixie Club“. TÓNLIST DJÖFULSINS Það var í „Dixie Club“ , sumarið 1954, sem Jerry Lee hitti Johnny Littlejohn og gekk í hljómsveit hans. Þetta sama sumar hófst ein- hver mesta bylting tónlistarsögunn- ar, þegar hvítir menn uppgötvuðu rokktónlistina. Svertingjar höfðu þá þegar verið að spila svipaða tón- list um nokkurt skeið og kölluðu það „rythm and blues". Hvítir strákar fóru nú að stæla þá svörtu og þegar Bill Haley sendi frá sér „Shake, Rattle and Roll“ í ágúst 1954 var fjandinn laus. Skömmu síðar hljóðritaði ungur suðurríkja- drengur, Elvis nokkur Presley, sína fyrstu hljómplötu hjá lítt þekktu hljómplötufyrirtæki, „Sun Studio", í Memphis. Jerry Lee var gripinn af þessari nýju bylgju, en lengi vel var hann þó tvístígandi á milli trúarinnar og þessarar nýju „tónlistar Djöfulsins". Hann hélt þó áfram að spila með hljómsveit Johnny Littlejohn og fékk hann til að leyfa sér að syngja lagið „Whole lotta shakin’ goin’ on“, sem Ray Hall hafði hljóðritað hjá Decca-hljómplötufyrirtækinu. Hvorki Jerry Lee né Johnny gerðu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.