Morgunblaðið - 09.11.1986, Side 8
s c
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
STUNDARSIGUR: Þeir steyptu Stalín af stallinúm en hann gekk
aftur í gervi sovéskra skriðdreka.
Fórnarlömbin eru
feimnismál enn í dag
Ium það bil tveggja mflna fjar-
lægð frá aðalfangelsinu í
Búdapest er Rakoskeresztur-
kirkjugarðurinn leynilegur grafreit-
ur Imre Nagy forsætisráðherra og
280 annarra „gagnbyltingar-
rnanna", sem voru lítflátnir eftir
uppreisnina árið 1956.
Kirkjugarðurinn er tveggja
fermflna stór og í norðausturhomi
hans er svæði 301, umhirðulaust
og vaxið illgresi og aðeins kunnugt
fáum andófsmönnum og ættingjum
hinna látnu. Um þennan grafreit
var ekki vitað fyrr en 1958 þegar
móðir Jozsefs Nagy, sem tekinn var
af lífi í Gyuto-fangelsinu, fylgdist
á laun með flutningi kistunnar og
sá hvar hann var jarðsettur.
Fimm eða sex krossar, gerðir úr
rörbútum, eru hér og þar innan um
runnana, þymikvistina og bróm-
beijatré, ástand garðsins er í
samræmi við afstöðu yfírvaldanna
til uppreisnarinnar, minningamar
um hana em best geymdar hjá hin-
um dauðu.
Miklos Haraszty, einn kunnasti
andófsmaður í Ungverjalandi, segir,
að grafimir sýni það best hve til-
raunir Kadars til að koma á „eðli-
legu ástandi" risti í raun gmnnt.
„Það væri lágmarkstillitssemi að
leyfa ástvinum hinna látnu að
merkja grafímar," segir hann.
Talið er, að 4—500 manns hafí
verið teknir af lífí frá því í nóvem-
ber 1956, þegar Rauði herinn bældi
niður uppreisnina, og fram til ársins
1963 þegar Kadar lýsti því yfír, að
endanlega væri búið að gera upp
sakirnar við uppreisnarmenn. Opin-
berlega er aðeins viðurkennt, að
200 hafí verið líflátnir, 6.000 fallið
í bardögum, 13.000 særst og
40.000 verið fangelsaðir eða pynt-
aðir.
Imre Mecs er 53 ára gamall raf-
eindaverkfræðingur, sem á ámnum
1953—59 var eitt ár í dauðadeild
Gyuta-fangelsisins og beið þess að
vera hengdur. Dómnum yfír honum
var síðan breytt og hann var látinn
laus eftir önnur fímm ár í fangels-
inu. Hann hefur nú ákveðið að
svipta hulunni af Svæði 301, segist
skulda það minningu félaga sinna,
sem hengdir vom í fangelsinu.
Móðir Jozsefs Nagy, Istvan, sem
er nærri níræð að aldri, biðst reglu-
lega fyrir við gröf sonar síns en
um hana fékk hún nákvæmar upp-
lýsingar með því að múta gröfumn-
um. „Arum saman, alltaf 1.
nóvember, komu hingað riddaralög-
reglumenn og hleyptu hestunum
yfír svæðið til að troða niður leiðin,
sem ættingjar hinna látnu höfðu
reynt að hrófa upp,“ segir Mecs.
„Með því vom þeir á táknrænan
hátt að minna á innrás Sovét-
manna.
Ungverska lögreglan hefur að
undanfömu varað Mecs stranglega
við því að minnast á þessi mál „en
mér ber skylda til þess vegna vina
minna. í eyrum mér hljóma enn
síðustu áköllin þeirra þegar þeir
vom leiddir á aftökustaðinn“.
Á 30 ára afmæli uppreisnarinn-
ar, 23. október sl., var lögregluvörð-
urinn í Búdapest efldur svo lítið bar
á og þann dag, annan dag af tveim-
ur á ári hveiju, em rússnesku
herimir í landinu í fullri viðbragðs-
stöðu. Hinn dagurinn er 15. mars
en á þeim degi árið 1848 gerðu
Ungveijar uppreisn gegn aust-
um'ska keisaradæminu. Þess á milli
er rússnesku hermönnunum haldið
í herbúðunum vegna þess haturs,
sem ungversk alþýða hefur á þeim.
Eina opinbera minningarathöfnin
um hina blóði drifnu daga árið 1956
fór fram 4. nóvember þegar lagðir
vom kransar til að minnast þess,
að uppreisnin var bæld niður og
rússneskum yfírráðum komið á að
nýju. Nokkmm vikum áður kallaði
lögreglan fyrir sig marga tugi and-
ófsmanna, varaði þá við og sagði,
að hvers konar mótmæli yrðu brot-
in á bak aftur með harðri hendi.
„Fimmtudagurinn var einn af þeim
dögum þegar lögreglan hefur leyfí
til að beija fólk,“ sagði einn andófs-
mannanna. _ RomN GEDYE
■ ILLÞÝÐI
Arðvænlegasta
atvinnugreinin
Bandaríska tímaritið Forbes
birti nýlega lista yfír þá 400
Bandaríkjamenn sem auðugastir
em og skömmu síðar birti tímaritið
Fortune annan lista sem vakið hef-
ur ekki minni athygli, en þar em
taldir upp 50 helztu glæpaforingjar
landsins. Samvæmt því sem þar
kemur fram virðist afsannast hið
fomkveðna að glæpir borgi sig ekki
því samanlagðar tekjur af glæpa-
starfsemi í Bandaríkjunum á þessu
ári munu trúlega nema sem sam-
svarar ríflega 2.000 milljörðum
króna.
Fremstur í flokki glæpaforingj-
anna er Anthony Salemo, en hann
gengur undir viðumefninu Tóný
feiti og er leiðtogi glæpasamtaka
sem kennd em við Genúa. Hann
er nú fyrir rétti sakaður um að
vera aðili að „stjóm“ þeirri sem fer
með æðstu völd í mafíunni.
Salemo er sagður vera leiðtogi í
samtökum sem annast atvinnu-
rekstur jafnt á löglegum gmnni sem
ólöglegum enda þótt foringinn geri
ekki mikinn greinarmun þar á. Því
hefur verið haldið fram að Salemo
hafí meðal annars auðgazt á því
að fleyta ijómann ofan af gróða
spilavíta í Nevada. Hann hefur einn-
ig stundað okurlánastarfsemi,
hagnazt dijúgum á byggingariðn-
aðinum í New York og haft ítök í
ýmsum verkalýðsfélögum. Nefnd
sem Bandaríkjaforseti hefur skipað
til að rannsaka glæpastarfsemi tel-
ur að mafían valdi því að bygging-
arkostnaður á Manhattan í New
York sé um 20% hærri en hann
þyrfti að vera.
Tveir nafnar Salemos, þeir Anthony
Accardo, sem kallaður er „stóri tún-
fískurinn" og Anthony Corallo, em
númer tvö og þijú á fyrrgreindum
lista. Sá síðamefndi er einnig fyrir
rétti um þessar mundir sakaður um
fjárglæfrastarfsemi í New York.
Anthony Accardo getur státað af
því að hafa aldrei þurft að gista
fangelsi. Sagt er að hann hafí verið
vélbyssuskytta fyrir A1 Capone, en
hann neitar að ræða samskipti sín
við þann gamla garp á sviði glæpa-
starfseminnar.
John nokkur Gotti er leiðtogi
glæpasamtakanna Gambino og hef-
ur hið mesta yndi af því að vera í
sviðsljósinu. Það má þvi vel vera
að hann sé ekkert hress yfir þvl
að hreppa „einungis" 13. sætið á
listanum hjá Fortune. Hann berst
mikið á í klæðaburði, hárgreiðsla
hans er alltaf óaðfinnanleg og hann
ekur um á forláta Mercedes. Honum
hefur með tímanum tekist að verða
hálfgerð þjóðsagnapersóna í landi
sínu.
Sagt er að undirheimaveldi
Bandaríkjanna velti meira fé en
.samanlagður jám-, stál-, kopar- og
áliðnaður þeirra. Samt helst þeim
illa á „forstjórum" þessarar óþrjót-
andi gullnámu. Tuttugu og sex
þeirra sem eru á lista Fortune eru
ýmist í fangelsi ellegar liggja undir
ákæru fyrir glæpi og aðeins 17
þeirra eru yngri en sjötugir.
-MARTIN IVENS
■ EFTIRLEIKURINN
Þú mátt tóra
— ekkiþú
Bresku læknasamtökunum
hefur verið falið að ákveða
hveijum skuli hjálpað til að lifa
og hveijir skuli látnir deyja drottni
sínum ef til kjamorkustríðs kem-
ur.
Hópur sérfræðinga, svipaður
þeim og kom stjórninni í bobba
með úttekt sinni á afleiðingum
kjamorkustyijaldar, vinnur nú að
skýrslu um þetta efni og er stefnt
að því að hún verði tilbúin á næsta
ári. Meðal þeirra, sem talið er
rétt að líkna, eru til dæmis fram-
leiðendur garðávaxta, vélamenn
alls konar og hjúkrunarkonur.
Kom þetta fram hjá dr. John
Dawson, yfirmanni vísindadeildar
læknasamtakanna, á ráðstefnu,
sem haldin var nýlega.
Þeim, sem ekki geta lagt neitt
af mörkum til endurreisnar sam-
félagsins, verður neitað um alla
hjálp. Sagði dr. Dawson, að
líklega lentu læknar í þeim flokki
því að þeir kunna yfirleitt lítið
fyrir sér í viðlagahjálp og geta
ekkert gert án tækjanna sinna.
Sykursjúklingar í Bretlandi, ein
milljón talsins, og allir þeir, sem
þurfa á stöðugum lyfjagjöfum að
halda, yrðu settir á guð og gadd-
inn.
í skýrslunni verður engin af-
staða tekin til almannavarna,
heldur á hún aðeins að vera ná-
kvæm úttekt á beinhörðum
staðreyndum. Kom það fram í
máli dr. Dawson á Evrópuráð-
stefnu Samtaka lækna gegn
kjamorkuvá en hún var haldin í
Madrid. Og að hans dómi eru
menn einungis að slá ryki í augu
fólks ef þeir neita að horfast í
augu við fyrrgreindar staðreyndir.
Breska stjómin hefur ekki haft
neinar áætlanir um hveijum af
milljónum fómarlamba kjam-
orkustyijaldar skuli hjúkrað og
þess vegna ætla læknasamtökin
að vinna það verk fyrir hana.
Afleiðingar ragnarakanna yrðu
þær, að venjuleg heilsugæsla
legðist af og mikill skortur yrði á
blóði, sárabindum og lyfjum; og
því yrði að beina öllum kröftum
að því að hjálpa þeim, sem best
em hæfír til að reisa þjóðina við.
Sagði dr. Dawson, að öðmm yrði
ekki veitt nein aðstoð þótt þeir
væm slasaðir því að með því
væri verið að bmðla með tak-
markaðar birgðir.
Fyrsta skýrsla bresku lækna-
samtakanna neyddi innanríkis-
ráðuneytið til að endurskoða mat
sitt á því hve margir myndu falla
í kjamorkuárás. I áætlunum al-
mannavama er nú farið að gera
ráð fyrir, að í allsheijarkjamorku-
árás muni falla 26 milljónir manna
í Bretlandi, helmingur íbúanna,
en ekki 16 milljónir eins og inn-
anríkisráðuneytið taldi áður.
- ANDREW VEITCH
HIROSHIMA — Borginni var eytt þann 6. ágúst ’45 þegar Banda-
rikjamenn vörpuðu á hana fyrstu atómsprengjunni sem beitt
var i hernaði. Þremur dögum síðar létu þeir aðra slíka sprengju
falla á Nagasaki.
■ KOSTNAÐARHLIÐIN
Það kostar Sovétmenn meira
en 60 milljónir íslenskra
króna að hjúkra þeim 203 mönn-
um, sem urðu fyrir alvarlegu
heilsutjóni í Chemobyl-slysinu.
Kom þetta nýlega fram hjá hátt-
settum, sovéskum embættis-
manni.
Sjúklingamir liggja allir á gjör-
gæsludeild sjúkrahúss nr. 6 í
Moskvu og um hvem og einn sér
10 manna hópur lækna og hjúkr-
unarkvenna. Þeir, sem verst eru
haldnir, em skaðbrenndir af
beta-geislum en á öðmm em and-
iit og háls þakin opnum graftr-
arsámm. Dr. Leonid Ilyin,
fonnaður sovésku geislavama-
nefndarinnar, segir þó, að búist
sé við, að allir haldi lífi. Sagði
hann, að alls hefði 31 maður lát-
ist í slysinu.
Boris Gostev, fjármálaráðherra
Sovétríkjanna, sagði í september
síðastliðnum, að áætlað væri, að
fjárhagsleg skakkaföll af Chemo-
byl-slysinu næmu sem svaraði 120
milljörðum íslenskra króna.
Dr. Ilyin, sem er læknir að
mennt, sagði, að lexían, sem
Chemobyl-slysið hefði kennt
mönnum, væri sú, að almanna-
vamir væm vita tilgangslausar í
kjamorkustyijöld. „Þær munu
ekki koma að neinu haldi, sama
hve góðar þær em. Við gerðum
allt, sem í okkar valdi stóð, til að
draga úr afleiðingum slyssins, en
það fyrsta, sem við lærðum, var,
að í kjamorkustyijöld getur ekk-
ert heilsugæslukerfi ráðið við
ástandið," sagði hann.
í kjamorkustríði yrðu afleiðing-
amar 10.000 sinnum verri en í
Chemobyl. Eftir slíka styijöld í
Evrópu, þar sem beitt væri 1.000
megatonnum, lægju 314 milljónir
manna í valnum frá Uralfjöllum
til Spánar og þeir, sem eftir lifðu,
hefðu hvorki mat, vatn, húsaskjól
eða neinn orkugjafa.
- ANDREW VEITCH