Morgunblaðið - 09.11.1986, Page 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
UTFLUTNINGUR A HUGVITI
Islenskt hugvit gefur dönskum
alkóhólistum vonina á ný
íheimsókn á meðferðarstöðinni
VON VERITAS
á Lálandi í Danmörku
Þessi fallega eik er aðeins
nokkur hundruð metrum frá
stöðinni. Eikin er
einkennismerki Von Veritas,
tákn styrk- og stöðugleikans.
Ein sagan af henni segir, að
H.C. Andersen hafi skrifað
ævintýrið eldfærin undir
greinum hennar.
ingu við tvo óvirka áfengissjúkl-
inga, sem með hjálp Vonar-stöðv-
arinnar hér heima náðu loks
tökum á sjúkdómi sínum. Þetta
voru karl og konu á miðjum aldri.
Þau sögðust áður hafa reynt flest-
allt sem danskt samfélag bauð
upp á til lækninga, án árangurs.
Mjög aukin umfjöllun um
alkóhólisma í Danmörku
í Færeyjum segja menn að vel
megi merkja árangur meðferðar-
stofnunarinnar Vonarinnar, bæði
á íslandi og á því heimili sem
rekið er í Færeyjum nú. í Dan-
mörku er talið, að sögn yfírlæknis
Von Veritas, Gert Holm, að um
þriðja hver fjölskylda þekki áfeng-
isvandamálið af eigin raun, þ.e.
að einhver nákominn sé virkur
áfengissjúklingur. Gert sagði enn-
fremur, en hann naut sjálfur
meðferðar hér heima á Voninni,
að mjög aukin umíjöllun um alkó-
hólisma sé nú í Danmörku. Megi
þar til dæmis nefna blaðaskrif og
kröfur um hert viðurlög við akstri
ölvaðra ökumanna. Um fátt var
meira talað og ritað fyrir nokkrum
vikum en hvað gera skuli við
mann sem ók bifreið dauðadrukk-
inn á bamavagn upp við húsvegg,
eftir að hafa ekið á mikilii ferð í
Það var stór dagnr á meðferðarstöðinni
Von Veritas í Vesterborg á Lálandi
í Danmörku á mánudag í síðustu
viku, þegar undirrituð var þar
í heimsókn til að kynnast út-
flutningi á íslensku hugviti,
en Islendingar eru þegar
þekktir á Norðurlöndun-
um og víðar fyrir mjög
góðan árangur í meðferð
áfengis- og eiturlyfja-
sjúklinga. Fjórir fyrstu
sjúklingar Von Veritas-
stöðvarinnar voru að
útskrifast þennan dag, en
stöðin var tekin í notkun
við hátíðlega athöfn 15.
september sl. Það var
ánægjuleg sjón að sjá starfs-
fólkið og hina sjúklingana kveðja
fjórmenningana við útidyrnar. Það
skein eftirvænting og von úr andlitum;
von um betri tíð fyrir þá sem héldu
út í lífið á ný. Þessi von ætti að
geta orðið að veruleika hjá að
minnsta kosti þremur af þess-
um fjórum samkvæmt
reynslu af meðferðinni,
fenginni hér heima. Ein
af undirstöðunum fyrir
því að svo geti orðið er
að sjúklingurinn horfist
í augu við sannleikann,
þ.e. láti af sjálfsblekking-
um eins og til dæmis „að
þetta hafi nú ekki verið
svo slæmt“, eða - „að hann
geti kannski lært að drekka
eins og maður“. Nafnið Von
Veritas - sem mætti útleggja
„von sannleikans“ er því vel til
fundin.
gegnum þrjá húsagarða og yfir
nokkur limgerði. Ungabam sem
svaf í vagninum lét lífið og hefur
atvik þetta að vonum vakið mikinn
óhug, en um leið aukna umræðu
um áfengisvandamálið.
En snúum okkur aftur að dag-
legu lífí á Von Veritas: „Sloppa-
fólk og fatafólk" voru fyrstu
hugtökin sem leita varð skýringa
á, en starfsfólk ræddi oft sín í
milli um þessa hópa. Einum sjúkl-
ingi var til dæmis innilega fagnað,
er hann fékk úrskurð um að kom-
ast í hóp fatafólks eftir óvenjulega
langa vist í sloppafólkshópnum.
Skýringin er einföld. í Von Verit-
as fer bæði fram afvötnun og
eftirmeðferð. Afvötnun tekur sjö
til tíu daga, en sá tími er þó sífellt
að lengjast að sögn starfsmann-
anna, því mjög mikilvægt er að
fólk sé „hreint" - þ.e. laust undan
öllum eiturefnaáhrifum þegar eig-
inleg eftirmeðferð hefst. í af-
vötnuninni getur þurft að nota lyf
ýmissa tegunda á meðan verið er
að ná sjúklingunum niður, og eru
þeir undir stöðugu lækniseftirliti
á meðan á því stendur.
Eftirmeðferð og raunar öll hug-
læg meðferð er hin sama, hvort
sem um áfengis- eða eiturefna-
sjúkling, þ.e. annarra efna er að
ræða, enda er litið á ofneyslu allra
þessara efna sem sams konar
vandamál. Meðferðarstjóri á Von
Veritas er Gunnar Þorsteinsson.
Hann sagði svo frá meðferðinni:
„Það að hafa afvötnun og eftir-
meðferð saman hefur þann kost
að sjúklingamir, sem fara strax
í náttföt við komuna hingað, fá
betur á tilfínninguna að þeir þjást
af sjúkdómi. Þá sjá þeir um leið
hina sem lengra eru komnir og
klæðast eigin fotum. Þó þeir búi
ekki á sama stað í húsinu og
sæki ekki sömu fyrrirlestra þá
borða þeir saman og hafa sameig-
inlegar setustofur og stór þáttur
í meðferðinni allri er stuðningur
sem sjúklingamir veita hver öðr-
um, bæði hér í meðferðinni og svo
síðar í gegnum AA-starfíð. Með-
ferðin sjálf, hin huglæga, byggir
síðan á fyrirlestrum, hópstarfi,
einkatímum með ráðgjöfúm og
AA-fundum.“
Hættuleg sjálfsblekking
samfara bjómeyslu
Gunnar sagði, að sér hefði
fundist mjög áhugavert að vinna
að uppbyggingu stöðvarinnar.
Starfsfólkið hefði mætt á staðinn
nokkru áður en stöðin var opnuð
og þá enginn trúað því að hægt
yrði að opna á tilsettum tíma. Það
hefði þó tekist með sameiginlegu
átaki allra þeirra sem að stóðu.
Húsið sagði hann sérstaklega
hentugt til þessa reksturs, en
danskir nágrannar sem þekkt
hefðu það og innréttingamar frá
því þar var skóli hefðu stómm
undrast breytingamar.
- Dahskir „alkóhólistar". Eru
þeir frábrugðnir þeim íslensku?
„Nei alls ekki. Þetta er ná-
kvæmlega sama vandamálið.
Fólkið er nákvæmlega eins hrætt
og einmana, þegar sjúkdómurinn
nær yfirhöndinni. Þar er ekki
spurt um þjóðemi." Gunnar sagði
aðspurður, að honum sýndist að
bjómeysla Dana væri algjör viðbót
við annað áfengi. Menn töluðu
flestir um að hafa byrjað í bjóm-
um og síðan staðhæfðu margir,
að þeir hefðu „aðeins drakkið
bjór“ í þetta og þetta langan tfma.
Gunnar sagði það hættulega
sjálfsblekkingu, því ein flaska af
bjór hefði sama áfengisinnihald
og einn einfaldur íslenskur
töðin er í glæsi-
legu húsnæði,
gamalli skóla-
byggingu, um þijú
þúsund fermetra
að stærð, og á ein-
um rólegasta stað
í Danmörku,
sunnanverðu Lálandi, sem Kaup-
mannahafnarbúar tala um sem
^alvöra-sveit". Stöðin er í eigu
Islendinga að stærstum hluta, þá
era flestir starfsmanna íslenskir,
enn sem komið er, eða 14 af 23.
Flestir þeirra þekkja áfengis-
vandamálið af eigin raun, hafa
sjálfír verið í meðferð eða ná-
komnir ættingjar. Þessi fyrsti
hópur Dana í meðferð á Von Ver-
itas taldi 24 sjúklinga, en pláss
verður fyrir allt að 70 manns. í
upphafí var ákveðið að spenna
bogann ekki frekar á meðan starf-
semin væri að komast í gang og
starfsfólkið að aðlagast nýju um-
hverfi, en það hefur allt notið
þjálfunar í sjúkrastöðinni Voninni
í Reykjavík. Athyglisvert er að í
þessum fyrsta hópi sjúklinga var
aðeins að finna einn „hreinan
áfengissjúkling", ef svo má að
orði komast, allir hinir vora meira
og minna ofurseldir pillunotkun.
Kynjaskipting var ennfremur at-
hyglisverð: 15 konur og 9 karlar.
íslenska meðferðin fljótt
þekkt erlendis
Hér heima er starfsemi SÁÁ
hvað þekktust, það er afvötnunar-
stöðin að Vogi með eftirmeðferð-
arstofíiunum úti á landi. íslenska
meðferðin, með um 60—70% ár-
angri að sögn starfsmanna Von
Veritas þ.e. að sá fjöldi sjúklinga
hætti að drekka, varð fljótt þekkt
erlendis. í framhaldi af því var
meðferðarheimili fyrir Norður-
landabúa komið á fót hérlendis
fyuir tæpum tveimur áram. Það
var sjúkrastöðin Von í Reykjavík.
Þar hafa hátt í 200 áfengis- og
eiturefnasjúklingar notið með-
ferðar á þessu tímabili, flestir frá
Færeyjum, Danmörku og Svíþjóð.
Fljótlega fóra að berast fyrir-
spumir til landsins um hvort ekki
mætti setja á fót stofnanir í við-
komandi löndum og leiddi
umræðan til þess að Von Veritas
var komið á laggimar. Eignarað-
ildin að stofnuninni er tvískipt,
annars vegar er eignarfélag um
húsnæðið og hins vegar að stofn-
uninni sjálfri. Hér er um að ræða
hlutafélög, en í hvorri stjóm sitja
fjórir íslendingar og einn Dani.
Að baki er danskt fjármögnunar-
fyrirtæki, sem m.a. veitir þeim,
sem á þurfa að halda, hagstæð
lán til greiðslu meðferðarkostnað-
ar. Að sögn framkvæmdastjóra
Von Veritas, Ebbe Christiansen,
kostar meðferðin rúmar 40 þús-
und krónur danskar, miðað við
meðaltalslengd, þ.e. um fimm vik-
ur. Einn sólarhringur á stofnun-
inni kostar 1.150 d.kr. eða
rúmlega 6.000 kr. íslenskar.
Danska ríkið tekur ekki þátt í
greiðslu kostnaðar, en þegar hafa
þijú sveitarfélög tekið á sig kostn-
að meðferða og stefnir í að fleiri
bætist í hópinn. Ennfremur hafa
fyrirtæki sýnt starfseminni mik-
inn áhuga.
Ekki virðist koma til með að
verða hörgull á sjúklingum. Starf-
semi Vonarinnar hér heima var
kynnt í þekktum sjónvarpsþætti í
Danmörku í júnímánuði sl., fyrst
að hluta í beinni útsendingu og
síðar í endursýningu. Þáttur þessi
ber heitið Nátthrafninn og nýtur
mikilla vinsælda. Var í þættinum,
auk heimsóknar á Vonina í
Reykjavík, rætt í beinni útsend-