Morgunblaðið - 09.11.1986, Blaðsíða 11
3861 H38M3VÖV! .e H'.IOAOUMVIIIS .CIIGÆieVIUDHOM 3 01
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986 C 11
brennivín. Hann kvaðst ekki, að
fenginni þessari þekkingu, geta
mælt með því að bjórinn jrrði
leyfður heima. „Ég held að hann
yrði hrein viðbót við alla þá neyslu
sem þar er fyrir", sagði hann.
Sjúklingar stöðvarinnar voru
spurðir, hvort þeir samþykktu að
blaðamaður frá íslandi fengi að
fylgjast með starfí stöðvarinnar í
einn dag. Þeir samþykktu það,
þar sem hann væri svo langt að
kominn, en skiljanlega var
myndatökum innandyra hafnað,
enda óheimilar sjúklingunum
sjálfum.
Ekki komust allir til myndatöku
utanhúss i einu lagi. Hér er
annar hluti
starfsmannahópsins, sem til
staðar var, en þau eru, talið frá
vinstri: Hjónin Anna Njálsdóttir
og Eysteinn Björnsson með
dóttur sína Þorbjörgu Rún, þá
Inger Einarsdóttir, Skúli
Thoroddsen f ramk væmdastj óri
sjúkrastöðvarinnar Vonin hér
heima og lengst til hægri
Brynjólfur Árnason.
„Þarna eru heila-
frumur að deyja“
Á fyrirlestri yfirlæknisins Gert
Holm fyrir „sloppafólkið" þennan
daginn fjallaði hann um fylgisjúk-
dóma áfengissýkinnar. Hann
gerði fyrst grein fyrir efnaupp-
byggingu áfengisins og rakti
siðan nokkra alþekkta sjúkdóma,
sem áheyrendur upplýstu á eftir
að þeir hefðu marga hveija, svo
sem lifrabólgu, sykursýki o.fl.
Auk þeirra ræddi hann ýmsar
útgáfur hjarta- og æðasjúkdóma.
Þá eru magasjúkdómar algengir,
sérstaklega magakrabbi. Gert
sagði m.a., að meira en 30%
magakrabbasjúklinga gætu kennt
áfengisneyslu sinni um. Skemmd-
ir á heila eru ennfremur algengar,
enda heilafrumur viðkvæmar fyrir
eiturefnum. Gert spurði áheyrend-
ur hvort þeir hefðu ekki orðið
vart við minnisleysi og „black-
out“, sem allir virtust kannast
við. „Akkurat", sagði hann „þama
eru heilafrumur að deyja" og hann
snéri sér síðan að sykursýkinni,
sem hann sagði algenga afleið-
ingu ofneyslu áfengis. Áfengið
færi illa með briskirtilinn sem
framleiddi insúlín og því færi sem
færi. Þama var einn sjúklingur
bæði með sykursýki og skorpulif-
ur, auk þess að vera hjartaveill.
Hann kvaðst geta kennt áfenginu
og þar með einvörðungu sjálfum
sér um.
Gert sagði í stuttu viðtali við
undirritaða eftir fyrirlesturinn, að
álit stjómvalda í Danmörku á
áfengissýkinni væri opinberlega
hið sama og á íslandi, þ.e. að
þama væri um að ræða sjúkdóm,
en hann vildi ekki tjá sig frekar
um framkvæmdina, nema hvað
hann kvaðst vonast til að hið opin-
bera tæki meira þátt í því sem
verið væri að gera þama hjá þeim.
Hann kvaðst sjálfur þekkja málið
frá báðum hliðum, þ.e. sem sjúkl-
ingur og læknir og kannski gerði
hann sér þess vegna betur grein
fyrir nauðsyn þeirrar þjónustu
sem þama væri veitt.
Vandinn þekktur í þriðju
hverri fjölskyldu
Um stærð vandamálsins í Dan-
mörku sagði hann tölur líkar því
sem gerist í öðrum löndum, þ.e.
að 10% fullorðinna ættu við
vandamál að etja og að vandinn
væri þekktur í þriðju hverri fjöl-
skyldu. Hann benti þó á. að
langvarandi og mikið atvinnuleysi
hefði áreiðanlega slæm áhrif.
Líklega væri fátt eins slæmt til
að rífa niður sjálfsvitund fólks og
það að njóta ekki atvinnu. Tölur
sýndu enda, að stór hluti áfengis-
sjúklinga væri atvinnulaus, hvort
sem um afleiðingu eða orsök væri
að ræða. Um starfsfólkið sagði
hann það algjört „Alfa til Omega",
að það þekkti vandamálið af eigin
raun. Áðspurður um bjórinn og
hvað honum fyndist um bjórbann-
ið hér heima sagði hann einfald-
lega: „Það breytir engu fyrir
alkóhólista, hvort leyfður er bjór
eða ekki. Hann verður sér úti um
áfengi, einhverrar tegundar, hvað
svo sem lög og reglur segja, hve-
nær sem er.“ Gert bað að lokum
fyrir bestu kveðjur til Brynjólfs
Haukssonar læknis hjá Voninni,
sem hann sagði stórkostlegan
mann, sem hefði bjargað sér úr
sínu volæði og gert hann að því
sem hann væri í dag.
Stór liður í meðferð er AA-
prógrammið og er AA lífakkerið,
þegar úr meðferð kemur að sögn
starfsmanna Von Veritias. Hér
heima getur fólk valið um allt að
90 AA-fundi í viku, en í Danmörku
er AA-kerfið ungt og deildir ekki
margar. Þetta segir starfsfólk
stöðvarinnar standa til bóta. Þeir
sjúklingar sem rætt var við sögð-
ust þegar ætla að standa að
stofnun deilda í Kaupmannahöfn,
en þaðan var stærstur hluti hóps-
ins. Þá ætla þau sér að stofna
stuðningshóp, sem hefur það hlut-
verk að taka á móti þeim sem
útskrifast.
„Fyrsta glasið yrði dýrt -
40 þús. kr. danskar“
Einn sjúklingurinn sem rætt
var við, við skulum kalla hann
Jón, sagðist hafa drukkið illa f ein
30 ár. Hann sagðist vera sá fyrsti
sem „kommúnan" sem hann byggi
f í Kaupmannahöfn greiddi með-
ferðarkostnaðinn fyrir. Hann
kvaðst aðspurður bjartsýnn, og
Tilboð óskast
í AMC Jeep CJ-7 Laredo árgerð 1983, ásamt bifreiðum, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju-
daginn 11. nóvember kl. 12—15.
Ennfremur óskast tilboð í Hyster gafallyftara 5,5 tonna árgerð 1966 og IHC Bus 36 farþega ár-‘
gerð 1973.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
Sala varnarliðseigna
Klingjandi kristall-kærkomin gjöf
(KOSTA)fBODA
V ________/\________
Bankastræti 10. Símar: 13122 — 621812
Garðatorgi, Garðabæ. Sími: 656812