Morgunblaðið - 09.11.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
C 15
Rissmynd af
„Einmenninu"
Einmennið"
Myndir úr Carminu,
skopmyndabók
Menntaskólans á
Akureyri.
Myndirnar eru af
Kristjáni Karlssyni
bókmenntaf ræð-
ingi og skáldi,
Jakobi Jónassyni
geðlækni, Þorbirni
Guðmundssyni
ritstj.
og Önnu
Snorradóttur
húsmóður og
þekktri
útvarpsmanneskju
homi myndarinnar situr köttur og
horfir hirðuleysislega fram í her-
bergið. Ég skoða myndina nokkra
stund en fer svo aftur niður. Þá er
Ami kominn með mynd sem líktist
helst fallegu jólakorti. „Ég lærði
þessa áferð í Bandaríkjunum fyrir
skömmu" segir hann. „Ég nota
stóra pensla til að ná þessum áhrif-
um fram, íjaðrapensla og stóra
málingarpensla, eins stóra og
þetta", nú tekur Ámi upp ostaske-
rann og mundar að mér. Svo leggur
hann myndina með amerísku áferð-
inni til hliðar og kemur þess í stað
með silfurlitan kassa með upp-
hleyptu loki.„Hér em allar skissum-
ar mínar“ segir hann, og fer að
grauta í kassanum, kemur upp með
alls kyns smámyndir og miða sem
teiknað hefur verið á.„Svona byija
margar myndimar mínar“ segir
hann og fær mér nokkur pappa-
spjöld og bréfsnifsi. Á eitt þeirra
hefur hann rissað upp baksvip af
einmanalegri mannsmynd í fjöru.
„þetta er upphafið að einmenninu
mínu“ segir Ámi og hlær. „svona
varð það seinna" segir hann og
réttir að mér ljósmynd af málverki.
„Ég seldi þessa mynd á sýningu á
Hótel Borg. Strax við opnunina kom
þar maður sem gekk beint að þess-
ari mynd og sagði:„Ég ætla að
kaupa þessa mynd". Meðan sýning-
in var opin kom hann á hveijum
degi, gekk að myndinni og sagði
jafnan þessi sömu orð:„þetta er
besta myndin, ég keypti hana og
ég _er búinn að borga hana“. „
Ég fer nú að taka blöðin mín
1 saman og Ámi tekur bollana af
borðinu.„Ég hef það svoleiðis Guðr-
ún mín að ég tek alltaf strax saman
eftir mig“ segir hann og tínir mat-
föng og mataráhöld eitt af öðru inn
í eldhúsið. Ámi fylgir mér fram að
dymm og segir um leið og hann
opnar „Það er ómögulegt að sýna
þér garðinn að vetri til. Þetta er
eins og að eiga heima í sumarbú-
stað, garðurinn er þúsund fermetrar
og alltaf logn á sumrin í norðanátt,
það er fínt að vera hér“. Ég kinka
kolli til samþykkis. Ámi segist hafa
góðan tíma heima á daginn. Hann
hættir oftast um hádegi á Morgun-
blaðinu og fer þá heim til að mála,
hringja í fréttaritara ellegar dunda
eitthvað, á þeim tíma er oft gott
næði fyrir fólk að líta inn til að
spjalla og skoða.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Dagur
armoníkunnar
í Víkingasal Hótel Loftleiða í
dag kl. 4.
40 harmoníkuleikarar á aldrinum 9 til 60
ára munu þar leiða saman hesta sína með
sóló, dúet, sextett, svo að ógleymdri
stjörnuhljómsvejt félagsins.
Kl. 21.00—23.30, dansleikur undir harm-
oníkuleik nokkurra félaga.
Allt áhugafólk um létta harmoníkutónlist
velkomið meðan húsrúm leyfir.
Harmoníkufélag Reykjavík-
ur
Skemmtun fyrlr alla fjölskylduna.
Barónsstíg 18, s: 23566.
Úrval af blússum frá MarioRosella
Ný sending frá
m.a. svört pils st. 38—50.
AM