Morgunblaðið - 09.11.1986, Side 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
SÚ NÝJA OG GLÆSILEGA I BREIÐHOLTI
Hefur þú prófað Súperstöð ESSO við Skógarsel?
Þar leggjum við áherslu á mjög fjölbreytt vöruúrval og alla
venjulega þjónustu bensínstöðva, auk sjálfsalaþjónustu
allan sólarhringinn. En það er líka sitthvað annað í boði:
• Bílaþvottur í fullkominni þvottastöð. Völ er á 13
mismunandi þvottakerfum.
• Þjónustuskýli. Þar er vatn, loft, olíusuga og ryksuga
undir einu þaki, bíleigendum til hægðarauka.
• Opnunartilboð og afsláttur á ýmsum vörum í eina viku,
til 15. nóvember.
Það er enginn krókur að koma við á Súperstöðinni - það
er þér og bílnum í hag.
Olíufélagið hf
Skógarseli 10 - Sími 75233
<
Dreki fæð-
ist í svína-
stíunni
ÚT ER komin enn ein bók i sam-
vinnu rithöfundarins Astrid
Lindgren og listamannsins Ilon
Wikland, Drekinn með rauðu
augun. Þorleifur Hauksson þýðir
og Mál og menning gefur út.
í frétt frá útgefanda segir: „í
sögunni segir frá því þegar systkin-
in koma út í svínastíu einn apríl-
morgun og sjá að grísamamma
hefur eignast tíu grísi og einn græn-
an dreka með lítil reiðileg augu!
Krakkamir verða hugfangnir af
drekanum þótt ekki sé hann auð-
veldur í umgengni og hann verður
smátt og smátt býsna hændur að
þeim."
Bókin er sett og filmuunnin hjá
Prentstofu G. Benediktssonar en
prentuð í fullum litum á Ítalíu.
Tvær bæk-
ur um Stínu
ÚT ERU komnar hjá Máli og
menningu tvær bækur um Stínu
eftir finnska rithöfundinn og
listamanninn Kristiina Louhi:
Frá morgni til kvölds með Stinu
og Stína og árstíðirnar. Olga
Guðrún Árnadóttir þýddi.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir: „Þetta em sögur fyrir yngstu
hlustenduma með litmyndum, bæði
af fólki og atvikum og líka hlutum,
því bækumar em að nokkm leyti
hugsaðar sem bendibækur. Stína
brallar margt með pabba, mömmu,
Kalla stóra bróður og Óla vini sínum
sem fólk á hennar aldri kannast
við."
Setningu og filmuvinnu annaðist
Prentsmiðjan Oddi hf., en bækumar
vom prentaðar í Portúgal.
Höfðar til
. fólks í öllum
starfsgreinum!