Morgunblaðið - 09.11.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
C 17
Þjófar stela þjófum frá
Danny DeVito, (t.h.) heldur gamninu uppi í Wise Guys.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÚSIÐ: WISE GUYS ☆ ☆
Leikstjóri Brian De Palma,
Handrit George Gallo. Tónlist
Ira Newborn. Framleiðandi Aar-
on Russo. Aðalhlutverk Danny
DeVito, Joe Piscopi, Harvey
Keiel, Dan Hedeya, Ray Shark-
ey. Bandarisk. MGM 1986.
Það er ekki ólíklegt að hinn
umdeildi leikstjóri Brian De Palma
hafi verið farinn að lýjast við gerð
á sínum ofsafengnu og blóðidrifnu
myndum, (Sisters, Carrie,
Dressed to kill, The Fury o.fl.),
en fram að þessu hefur hann ein-
göngu haldið sig við gerð frekar
svæsinna, ofbeldisfullra glæpa-
mynda. Lengi vel var hann undir
áberandi áhrifum frá meistara
Hitchcock, þau skiluðu sér best í
Obsession, sem var tilbrigði við
Vertigo.
En myndir De Palma urðu æ
svæsnari og í Scarface, sem var
síðasta mynd hans á undan Wise
Guys, keyrði djöfulgangurinn um
þverbak. Þar var ofbeldið svo
hamslaust að engu var líkara en
maðurinn væri búinn að tapa glór-
unni. Slíkur móður rann á garpinn
að hann krafðist þess að fá að
nota alvöru skotfæri í drápstólin í
myndinni. Því var að sjálfsögðu
hafnað, en karlanginn hann A1
Pacino bilaði víst eitthvað á taugum
meðan á upptökum stóð!
Og nú hefur De Palma ætlað að
slaka örlítið á og gera eina gaman-
mynd til tilbreytingar. En eplið
fellur sjaldan langt frá eikinni því
Wise Guys fjallar um mislukkaða
sjálfsbjargarviðleitni smákrimm-
anna DeVito og Piscopo. Þeir
leiðast útí þá bráðdrepandi freist-
ingu að ræna mafíuforingjann
þeirra, rústa Cadillac drápsmanns
gengisins og lifa síðan hátt I Atl-
antic City útá gullslegið kreditkort
morðingjans!
DeVito ætlar að bjarga líftóru
þeirra félaga með því að slá frænda
sinn fyrir kostnaðinum, en þá reyn-
ist karl dauður fyrir langa-löngu.
Og nú reynast góð ráð dýr!
í stuttu máli þá er Wise Guys
hálfmislukkuð sem gamanmynd —
ef undan er skilinn bráhress leikur
DeVito. De Palma er ókunnugur í
þessu landslagi og greinilega ekki
I essinu sínu í gamanmálum. En
þegar kappinn fær tækifæri til að
skapa spennu eða ryðja úr sér •
smávegis ofbeldi, leikur hann við
hvem sinn fingur. Hann ætti því
að snúa sér að glæpamyndinni aft-
ur því þar er hann á heimavelli.
Það má þó ekki skella allri skuld-
inni á De Palma því mynd verður
aldrei mörgum gæðaflokkum hærri
en handritið býður uppá. Það er
ósköp lítið fyndið og eitt aðal„plott-
ið“ — að láta smákrimmana vinna
hvor á öðrum — missir marks. En
sem fyrr segir er DeVito í bana-
stuði og bjargar þvf sem bjargað
verður.
urnar svo
miklu lífi, að {
getur næstui
þeirri hamii
KNOTS
■ '1 ! r
yf-. 4 jJBf, M- V. .
§k - J
- '% t
Sanitas