Morgunblaðið - 09.11.1986, Síða 20
20 ~C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
1965
1986
Úrfátækt
íframa
0
A undanförnum rúmlega 20 árum hefur brezki kvikmyndaleikarinn Michael
Caine leikið aðalhlutverk í rúmlega 50 kvikmyndum. Hann hefur efnazt
vel, á eigin villu uppi á einni af hæðunum í Beverly Hills í Kalif orníu,
með sundlaug, og að sjálfsögðu, tennisvelli, gufubaði og bílskúrum fyrir
Rolls Royce-inn og hina bílana þrjá. Svo á hann einnig stærðar óðal
ofarlega við Thames-fljótið í Englandi og segir hngsanlegt að hann flytjist
þangað á næsta ári frá Hollywood svo 12 ára dóttir hans, Natasha, geti
gengið í enskan skóla.
En lífið hefur ekki alltaf
leikið við Michael Caine,
eða Maurice Joseph
Micklewhite, eins og
hann heitir réttu nafni.
Hann er sagður hafa tekið sér naf-
nið Michael Caine eftir að hafa lesið
auglýsingu um kvikmyndina „The
Caine Mutiny" í upphafí leikferils
sins.
Michael Caine fæddist í fátækra-
hverfi í suðurhluta London 14.
marz árið 1933 og ólst þar upp
með Stanley bróður sínum í tveggja
herbergja íbúð foreldranna. Fljót-
lega eftir að síðari heimsstyijöldin
hófst var bræðrunum komið fyrir
uppi í sveit til að koma þeim undan
loftárásum Þjóðverja á London.
Michael, sem þá var sjö ára, var
komið fyrir hjá asmasjúkri og geð-
illri konu lögregluþjóns í Berkshire,
vestur af Lundúnum, sem einnig
hafði tekið að sér annan dreng frá
London. Kona þessi var óspar á að
beija drengina, og þegar hún
skrapp út í búð til að kaupa inn,
læsti hún þá inni í skáp. „Hún vildi
ekki taka okkur með sér þar sem
við vorum allir í marblettum og
sárum eftir barsmíðamar, og hún
þorði ekki að láta okkur sjást.“
En einhver sá til þeirra og sam-
tök er beijast gegn illri meðferð
barna skárust í leikinn; því hefur
Michael Caine ekki gleymt, og hef-
ur lagt mikið af mörkum til
bamavinafélaga. Hann var tekinn
frá konu iögreglumannsins og kom-
ið fyrir á óðalssetri í Austur-Anglíu.
Þar komst Michael fyrst að því að
lífíð þurfti ekki endilega að vera
grimmt, ógeðfellt og stutt. Hann
bjó þama hjá góðviljuðum óðals-
bónda, og þangað kom móðir hans
til að aðstoða við húsverkin. Fengu
þau mæðgin þægilega starfs-
mannaíbúð til eigin nota og bjuggu
þar tii stríðsloka. Þama segist
Michael Caine hafa kynnzt lysti-
semdum lífsins. Hann drakk
dreggjamar af matarvíninu, reykti
vindlastubbana, og nældi sér stund-
um í væna sneið af akurhænu af
fati óðalseigandans.
Caine segir að strax á þessum
bemskuárum í Austur-Anglíu hafi
honum verið ljóst að hveiju hann
vildi stefna í lífínu. Hann var lítt
hrifinn af bændauppreisnum, og
hafði enga löngun til að bera óðals-
eigandann út. Hann vildi sjálfur
vera óðalsbóndinn, og nú er hann
orðinn það. „Nú á ég hús óðalseig-
andans í þorpinu mínu á bökkum
Thames-árinnar. Að vísu er það
ekki sama óðalið í raun, en ég
ímynda mér það samt.“
Um skeið var Michael Caipe við
nám í Wilson’s Grammar Shool í
Peckham, en þar voru nemendur
flestir gyðingar. Ætlunin var að
hann héldi námi áfram og færi í
háskóla, en ekkert varð úr því.
Hann hætti námi 16 ára og fór út
á vinnumarkaðinn þar sem hann
vann þau störf er til féllu á hveijum
tíma. Ekki var það þó beinlínis
vegna fátæktar fjölskyldunnar.
Faðir hans vann á fiskmarkaðnum
í Billingsgate, og vikulaun hans þar
fyrst eftir stríðið vom um 50 pund.
En á þeim árum komust margar
ijölskyldur sæmilega af með fímm
punda vikulaun.
Ástæðuna fyrir því að hann fékk
ekki að ganga menntaveginn segir
Caine hafa verið sjálfskapaða
þröngsýni brezkra verkamanna.
„Með fáum undantekningum — það
er þegar gyðingar eiga í hlut —
senda þeir ekki böm sín til mennta.
Enn þann dag í dag eru þeir lítt
hrifnir af menntun."
í heimahúsum að styijöldinni lok-
inni varð Caine oft fyrir illri meðferð
föðurins. „Þið vitið að þeir fávísu
lumbra gjaman á þeim sem eru
öðruvísi. Þetta bitnaði á mér því
ég talaði ekki með hreim ómennt-
aðra Lundúnabúa, cockney. Ég
talaði tungu sveitamanna."
Að lokinni herþjónustu í Berlín
og Kóreu á árunum 1951—53 sneri
Michael Caine sér að leiklistinni.
Hann hafði lítið lært um leiklist
annað en það sem hann las sér til
í frístundum þegar hann hóf störf
hjá litlum atvinnuleikhúsum í Hors-
han og Lowestoft, en þar vann
hann árin 1953—55. Svo hélt hann
til Lundúna þar sem hann fékk
vinnu hjá Theatre Workshop. Á sex
ára tímabili, frá 1957 til 1963, lék
hann í rúmlega 100 sjónvarpsleik-
ritum og einu leiksviðsverki í
London, en leiksviðið heillaði hann
ekki. Þá var hann aðeins að bytja
feril sinn í kvikmyndum, en fyrsta
aðalhlutverkið fékk hann í mynd-
inni „The Ipcress File“ árið 1965.
Eftir það rak hver kvikmyndin aðra,
og lék hann að jafnaði í 2 til 5
myndum á ári.
Caine var eitt sinn spurður að
því hvað hafi valdið því að hann
sneri sér að kvikmyndaleik, það
væri ekki beint það framtíðarstarf
sem ætla mætti að sonur verka-
manns á fiskmarkaðnum stefndi að.
Jú, svaraði hann, hugsanlega hefur
föður hans fundizt þessi ákvörðun
eiga rætur að rekja til afbrigðilegr-
ar kynhneigðar eða einhvers álíka.
En „í fyrsta lagi fannst mér ég
geta þetta. í öðru lagi langaði mig
til þess. í þriðja lagi var ég aldrei
hrifinn af því hvemig leikarar fóru
með hlutverk lágstéttamanna í
kvikmyndum. Það var venjulega
einhver spjátrungurinn útskrifaður
frá Konunglega leiklistarskólanum,
RADA, sem fór með hlutverk verka-
mannsins, og reyndi svo mjög að
tala með cockney-hreim að honum
lá við köfnun.“
Mihael Caine er tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var leikkonan
Patricia Haines, sem hann kvæntist
árið 1954. Þau eignuðust eina dótt-
ur, en hjónabandið fór út um þúfur
og þau skildu. Var dótturinni þá
komið fyrir í fóstur hjá foreldrum
frúarinnar. Síðari kona hans er
Shakira Khatoon Baksh. Þau gift-
ust árið 1973, og er Natasha dóttir
þeirra nú 12 ára.
Michael Caine sá síðari konu sína
fyrst í sjónvarpsauglýsingu árið
1971, en fjórum árum áður hafði
hún verið í þriðja sæti í keppninni
Ungfrú heimur (Miss World). Eftir
að hafa séð hana í sjónvarpsauglýs-
ingunni hafði Michael upp á
símanúmeri Shakiru og bauð henni
út að borða. Hélt hann í fyrstu að
hún væri brasilísk, en svo var ekki.
Shakira er ættuð frá Kasmír, en
ijölskylda hennar hefur í þijá ætt-
liði búið í Guyana í Suður-Ameríku.
Forfeður hennar voru meðal þús-
unda Indveija og Pakistana sem
fluttu þessa sömu leið, og fóru flest-
ir þeirra til starfa á sykurekrunum.
En forfeður Shakiru hófu verzlun
í nýja heimalandinu og komust vel
af. Olst, Shakira upp á búgarði föð-
ur síns, og að námi loknu hóf hún