Morgunblaðið - 09.11.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
C 21
MeA Diane Keaton, Elliot Gould og James Caan í „Harry and Walter
Go to New York".
1976 með Sean Connery í mynd-
inni „The Man Who Would Be
King“.
störf í bandaríska bókasafninu í
höfuðborginni Georgetown.
Caine segir að bezti leikur hans
til þessa hafi verið í hlutverki drykk-
fellds og vonsvikins kennara í
enskum bókmenntum í myndinni
„Educating Rita“, en fyrir það hlut-
verk var hann tilnefndur til Óskars-
verðlauna árið 1984. Hann hlaut
ekki verðlaunin, en tilnefningin
varð honum mikil lyftistöng.
Minnist hann þess að þetta sama
ár var hann staddur í London, og
hitti þá á götu úti Ieikkonuna Joan
Littlewood. Þau höfðu áður leikið
lítillega saman, en ekki sézt í mörg
ár. Að sögn Caines var samtal
þeirra eitthvað á þessa leið:
Littlewood: „Ég var að sjá „Edu-
cating Rita.“
Caine: „Er það?“
Littlewood: „Þetta er í fyrsta
fjárans skiptið sem þú hefur leikið
síðustu tuttugu árin.“
Caine: „Þakka þér kærlega fyrir
Joan.“
Littlewood: „Taktu þetta ekki
nærri þér, ég býst við að þú hafir
grætt milljónir á að leika ekki.“
Caine: „Það hef ég Joan, það hef
ég.“!
I nýlegri heimsókn til London fór
Caine í Þjóðleikhúsið þar til að sjá
leikritð „Pravda" og heillaðist af
leik Anthony Perkins í hlutverki
grófa og áhrifamikla blaðaeigan-
1983 í „Educating Rlta“, sem
hann telur sinn bezta leik.
dans. „Vandi ykkar er sá að þið
vitið ekki á hvað þið trúið," segir
eigandinn eitt sinn við einn ritstjór-
anna sem reynir að halda í það sem
hann á eftir af frjálslyndi og heiðar-
leika. Þessi setning hafði mikil áhrif
á Caine. Honum fannst hún ekki
aðeins eiga við um frjálslynda um-
bótasinna, heldur Breta yfirleitt, og
samband þeirra við Guð. Bendir
hann á að í Bandaríkjunum stundi
um 40% þjóðarinnar einhverskonar
kirkjuferðir, en í Bretlandi sé þetta
hlutfall aðeins um 2%.
Og trúir Michael Caine sjálfur á
Guð?
„Algerlega og skilyrðislaust. Ég
ólst upp við svo margar trúarstefn-
ur að ég kynntist göllum þeirra
allra. Faðir minn var kaþólskur,
móðir mín mótmælendatrúar. Ég
stundaði nám í gyðingaskóla, og
konan mín er múhameðstrúar. Ég
hef séð hve þeim semur öllum illa,
svo ég stend raunar utan við þetta
allt. En ég trúi vissulega á Guð.
Eftir standa bara Guð og ég, og
við fylgjumst með öllum hinum,"
segir hann og hlær.
Og biðst hann fyrir?
„Eg fer ekki reglulega með bæn-
ir. En ég segi takk fyrir. Sá sem
hefur fengið jafn mikið út úr lífinu
og ég, gerir meira af því að þakka
fyrir sig en að biðja um eitthvað."
(Hcimild: The Observer.)
1973 tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir
leik slnn í „Sleuth".
Þjóðleikhúsið:
S-afrískt leikrit á Litla sviðinu
Svipmynd úr sýningu Café Teatret á Woza Albert.
CAFÉ Teatret í Kaupmannahöfn
heimsækir Þjóðleikhúsið og flyt-
ur gestaleik á litla sviðinu nk.
þriðjudags-, miðvikudags-, og
fimmtudagskvöld. Leikritið
„Woza Albert", verður flutt á
frummálinu, blöndu af ensku,
Zulu og afrikans. Leikhópurinn
hefur stutta viðdvöl hér í leikför
sinni um Norðurlönd.
Höfundar, leikarar og aðrir flytj-
endur „Woza Albert", eru frá
Suður-Afríku. Leikritið er bannað
í föðurlandinu, en hefur verið flutt
við miklar vinsældir í Evrópu og
Bandaríkjunum. Það fjallar um
upprisu „Morena“, sem er kristlík-
ing, og þýðingu hans fyrir ólíkar
manngerðir í Suður-Afrísku sam-
félagi. Þegar Morena fyllist hryll-
ingi yfir aðskilnaðarstefnu
stjómvalda og hvetur svertingja til
verkfalla er hann handtekinn og
ásakaður um að vera kommúnisti
og æsingamaður.
TÍU ÁR Á ÍSLANDI
Verulegur afmælisafsláttur á vörum frá Rosenthal!
Um leið og við þökkum viðskiptavinum okkar ánægjuleg viðskipti bjóðum
við 20% staðgreiðsluafslátt næstu daga
af öllum vörum verzlunarinnar.
studiohúsið
á homi Laugavegs og Snorrabrautar Simi 18400
TlMABÆR