Morgunblaðið - 09.11.1986, Síða 22
8£ O
22 C
38ef aaaMavövi ,e HuoAauvinu? .ötaAjaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
fclk f
fréttum
íslenskrí söngkonu
hrósað í Michigan
að þykir alltaf frétt þegar
íslendingum gengur vel á
erlendri grundu, en fyrir skömmu
barst Morgunblaðinu úrklippa frá
Michigan þar sem greint var frá
góðri ffammistöðu íslenskrar
söngkonu, Sigrúnar Gestsdóttur.
Sigrún, sem syngur sópran, kom
fram á tónlistarhátíð, sem haldin
var þar dagana 23. júlí til 7. sept-
ember. Tónleikar Sigrúnar voru
haldnir hinn 17 ágúst s.l.
í dómi um frammistöðu Sig-
rúnar segir m.a.:
„Á eftir Brahms kom fram
íslenska sópransönkonan Sigrún
Gestsdóttir, sem söng lög eftir
ýmis tónskáld. Hún er með ein-
staklega fallegan raddhljóm, allar
áherslur á fullkomlega réttum
stað og mikla leikræna tilfinn-
ingu...
Sigrún Gestsdóttir.
...þegar á heildina er litið var
frammistaða hennar frábær.
Rödd hennar hefur sömu eig-
inleika og rödd Elizabeth
Schwarzkopf hafði — ljúflegan
skírleika og þrótt...
...Sigrún hefur ekki jafnfull-
komna tækni og Schwarzkopf,
eða Rita Streich, sem hún líkist
líka, en að það er ógleymanleg
lifsreynsla að hlýða á söng
hennar.
Sigrún er íslenskum tónlistar-
unnendum að góðu kunn; hefur
sungið á opinberum tónleikum og
í útvarpssal. Hún hefur einnig
tekið þátt í nokkrum sýningu ís-
lensku óperunnar og söng m.a.
hlutverk Michaelu í Carmen, þeg-
ar hún var sýnd fyrir tveimur
árum. Nú er Sigrún við nám í
Vínarb'org.
Magnús og Jóhann, en Eyvi vorftur í för moft þeim
kumpánum á Gauknum.
I
Morgunblaðið/Einar Falur
valdimar Flygenring og Ágúst Karlsson.
Hljómsveitin Menn
Þeir Valdimar Flygenring og Ágústsson mjmda í sameiningu hljómsveitina
Menn, en hún var að gefa út hljómplötu. Plötuna nefna þeir kumpánar
Reisn, en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er völlur á þeim Valdimari og Ágústi.
Valdimar er ekki við eina ijölina felldur, er leikari og minnast lesendur þess-
ara síðna þess e.t.v. að hann fékk hlutverk við auglýsingagerð hins heimsþekkta
tískufyrirtækis Calvin Klein.
Þeir sem fylgst hafa grannt með íslensku tónlistarlífi síðustu ára muna e.t.v.
eftir hljómsveitinni Hinni konunglegu flugeidarokksveit og Tjúttlingunum, en í
þeim störfuðu þeir báðir. Þá var Ágúst gítarleikari í hljómsveitinni Með nöktum.
Menn gefa plötu slna út sjálfir, en Fálkinn sér um dreifingu hennar.
Ballöðu-
tónlist á
Gauknum
Undanfarin ár
hefur alltaf verið
lifandi tónlist öðru
hveiju á veitinga-
staðnum Gauk á
Stöng. Hafa þar bæði
komið fram hljóm-
sveitir og einstakir
tónlistarmenn. Má
minna á að Bítlavina-
félagið á upptök sín
að rekja til Gauksins,
sem og fleiri hljóm-
sveitir.
Nú á næstunni
munu þeir Eyjólfur
Kristjánsson, Magnús
Sigmundsson og Jó-
hann Helgason koma
fram saman og ætla
þeir að leika og syngja
tónlist í ballöðustíl.
Ætlun piltanna er
að flytja þá tónlist,
sem vinsælust var áð-
ur enn hippabylgjan
reið yfír hinn sið-
menntaða heim. Er
þar aðallega um að
ræða lög með sveitum
eins og Simon & Gar-
funkel, Crosby, Stills
and Nash og jafnvel
Robert Zimmerman,
sem yfírleitt gengur
undir dulnefninu Bob
Dylan.
Þeir félagar koma
fyrst fram á þriðjudag
í næstu viku og svo
kvöldið eftir, en síðan
verða þeir til taks á
mánudags- og þriðju-
dagskvöldum fram í
desember.
Mezzoforte
á fullum skrlði
ezzoforte
er líkleg-
ast sú
hljómsveit
íslensk
sem
lengst
hefur náð
ytra og er það enn að sannast nú
á síðustu dögum.
í framhaldi af útgáfu síðustu
plötu þeirra félaga, No Limits, hafa
þeir lagt upp í hljómleikaferð um
Evrópu og hefur hún gengið vonum
framar. I samtali við Steinar Berg
ísleifsson, útgefanda, kom fram að
viðtökur í Þýskalandi og Norðurl-
öndum væru engu líkar.
„Núna er að seljast upp á síðustu
tónleikana í Þýskalandi og bættum
við þó tveimur við. Það sem er þó
ef til vill merkilegast við þetta er
sú staðreynd að þetta gerist ein-
mitt þegar samkeppnin er sem
mest í Þýskalandi. Einmitt nú eru
allar helstu stjömumar á ferð þar
og má nefna Huey Lewis, Euryth-
mics, A-Ha og Iron Maiden.“
Hvað með plötusölu?
„Hún hefur rokið upp á síðustu
dögum, bæði í Þýskalandi og í ná-
grannaríkjunum — ekki síst
Norðurlöndum, en þar er einnig að
seljast upp á alla tónleika og höfum
við þurft að bæta við tónleikum
þar.“
Hvað telur þú að valdi þessu?
„Mezzoforte hefur alltaf verið
mjög vinsæl í Evrópu, en núna höf-
um við unnið markvisst að því að
gera hljómsveitina þekkta fyrir að
flytja vandaða tónlist með „breiðan"
áheyrandahóp. Þetta hefur svo
sannarlega skilað sér því nú hefur
þýska sjónvarpið samið um þátta-
gerð um Mezzoforte. Tónleikar í
Hanmborg verða teknir upp og úr
því og öðm efni verður soðinn sam-
an 40 mínútna þáttur um Mez-
zoforte. Það er þó ekki það eina,
því að búið er að semja um að sveit-
in komi fram í tveimur sjónvarps-
þáttum öðmm í desember. Annar
þeirra er unglingaþáttur, en hinn
er rakinn poppþáttur. Til merks um
hvaða stöðu Mezzoforte hefur náð
má nefna hina flytjenduma.sem
fram koma í þættinum, en það em
Randy Crawford, Toto og John
McLaughlin. Þetta em engin smá-
ræðisnöfn og sést því á hvaða bekk
Mezzoforte er skipað".
Mezzoforte með helstu hjálparkokkum.
COSPER
97sí CQSPER
Ég hef konuna alltaf með mér, þá losna óg viA
að kyssa hana bless.