Morgunblaðið - 09.11.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
C 23
Bangles:
Viö erum ekki
kvennahljómsveit!
<1/
llílllÓt
SÉRVERSLUN MEÐ ELDHÚS- OG BORÐBUNAÐ
Hljómsveitin Bangles hefur not-
ið mikilla vinsælda að undan-
fömu og sló nú síðast í gegn með
laginu Walk Like An Egyptian.
Ekki hefur spillt fyrir að stór-
stjaman Prince er sérlegur einka-
vinur stúlknanna og hefur aðstoðað
þær á alla lund og gaf þeim m.a.
lag eftir sig, Manic Monday, eða
„Brjálaður mánudagur", eins og
það útleggst á því ylhýra.
í hljómsveitinni em tvær systur,
þær Debbi og Vicki Peterson, en
þær leika á trommur og gítar. Su-
sanna Hoffs syngur og leikur á
gítar, en Michael Steele leikur á
bassa.
Það sem einkennt hefur feril
þeirra er hversu hratt þær hafa
klifið vinsældalistana og hafa gagn-
rýnendur talað um að á loksins
ferðinni sé á ferðinni kvennahljóm-
sveit, þar sem engu virðist skipta
hvors kyns meðlimimir em.
„Við emm ekki kvennahljóm-
sveit! Ef þú hlustar á aðrar
„kvennahljómsveitir", þá heyrist
langar leiðir að um konur er að
ræða. Svo er ekki í okkar tilviki —
Bangles er einfaldlega rokkhljóm-
sveit", segir Vicki.
„Við fínnum samt fyrr því að
vera konur“, bætir Michael Steele
við. „Vissulega er gaman að fólk
skuli vita af manni, en nú á maður
aldrei frí. Strákar í hljómsveitum
geta dottið í það og stundað
hneykslanlegt athæfi kvöld eftir
kvöld. Það getum við ekki leyft
okkur. Annað er að strákamir þurfa
ekki að bera á sig farða eldsnemma
morguns og líta vel út frá klukkan
sjö og þar til þeir ganga til rekkju".
Bangles hafa hins vegar þurft
að standa í þessari dagskrá undan-
farin fimm ár.
„Við eram ekki að kvarta, því að
í raun höfum við verið mjög heppn-
ar“, segir Vicki. „...en þrátt fyrir
Auglýsingar
22480
Afgreiðsla
83033
Bangles: Debbi Peterson, Susanna Hoffs, Vicki Peterson og
Michaei Steele.
í TILEFNI 2 ÁRA AFMÆLIS
VERSLUNARINNAR BÚBÓT
ÐJÓÐUM VIÐ 10% AFSLÁTT
Á VÖRUM VERSLUNARINNAR
ÚT NÓVEMBER
• POTTAR
•PÖNNUR
• HNÍFAPÖR
• MATARSTELL
• KAFFiSTELL
• GLÖS
• GLERVÖRUR
• BÖKUNARVÖRUR
•FONDUE
• BORÐDÚKAR
•BÚSÁHÖLD
• RAFTÆKI
JO % a^táttwi
velgengnina er ennþá til fólk, sér-
staklega ljósmyndarar, sem vilja
fara með okkur eins og fyrirsætur,
vegna þess að við emm stelpur.
Þeir vilja klæða okkur upp og farða
okkur eftir sínu höfði, fara í alls
kyns stellingar og gera ýmsar
kúnstir — hluti sem þeim dytti ekki
í hug að biðja stráka að gera.
„Við emm ekki fyrirsætur, leikkon-
ur eða eitthvað... Við emm rokk-
hljómsveit og ekkert annað“.
NÝBÝLAVEGI24 - SÍMI41400
Hollywood auglýsir!
Innritun er
hafin í
' Cancorúe Management atitl Pranwtwns Present'
Já hún er aftur komin á fulla ferð — áttunda
heimsmeistarakeppnin í freestyle-diskódansi
sem haldin verður á Hippodrome í London þann
3. desember nk.
ÁKIK]1
WORLDDAINCE
CHdMMONsmp
Undanúrslit verða í Hollywood
sunnudagskvöldið 16. nóvember og
úrslitakvöldið þann 23. nóvember.
Aldur 18—30 ára
íslenski verðlaunahafinn fer síðan til
London þann 30. nóvember og kepp-
ir fyrir ísland.
Nánari upplýsingar veita Guðbjörg Jakobsdóttir og Jón
Gerald í síma 681585 og 641441 í dag.
Allir velkomnir