Morgunblaðið - 09.11.1986, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
C 29
Demeter lofsöngnr ár 1600 f. Kr.
í hvert sinn er jörðin af ilmandi blóma
breiðu er þakin
undrun guða á himnum og jarðneskra
manna er vakin
úr dauðsríki upp ertu risinn að vanda
Persefone ekkert að eilífu auðlegð þinni
mun granda.
RR
Þær grísku mæðgur og frjósem-
isgyðjur Demeter og Persefone
þekkjum við vel, enda ennþá síung-
ar, gjöfular og góðar til áheita.
Demeter eða Gemeter (yngra) er
móðir jörð. Ge-ografi (landafræði)
Ge-ometri (stærðfræði) Ge-ologi
(jarðfræði) o.s.frv. þekkja flestir.
Meter — mater — mutter — moder
— móðir þekkja líka allir og því
eðlilega einnig Gemeter.
Persefone er dóttir Gemeter og
Seifs. Henni var ungri að árum
rænt af Hades, myrkrahöfðingjan-
um, sem tók hana sér til brúðar,
og fór með hana til undirheima.
Persefone bjó nú í undirheimum,
og segir Hómer að hún hafí haft
þar mikil umsvif, sé hún grimm,
og ráði jafnvel meiru en myrkra-
höfðinginn sjálfur.
Færið óskalaga
þátt sjúkl inga
aftur á rás 1
Aldraðir skrifa
Mörg útvarpstæki ná ekki rás
2. Urðu það mörgum þvi mikil von-
brigði þegar óskalagaþáttur sjúkl-
inga var settur á rás 2. Kemur það
illa við marga, sér í lagi aldraða,
sem ekki ná rás 2 og hafa ekki efni
á að kaupa sér nýtt viðtæki. Líklega
hefur þetta verið ákveðið í fljótræði
en enn má bæta úr því.
Þegar kuldi þrýstir jörð og hún
er í klakaböndum blundar Perse-
fone. Svo að vori, þegar jörðin aftur
nálgast sólu og Helios, sólarguðinn,
sendir henni langan og heitan koss,
vaknar Persefone af værum blundi
og breiðir út faðminn. Þá kvikna
aftur blóm og strá, ástin hefur unn-
ið sitt kraftaverk, sigrast á dauðan-
um. Hringrás lífsins er hafin að
nýju-
Okkur hlýnar um hjartarætumar
þegar við hugsum til Persefone í
skammdeginu. Hómer sagði að vísu
að hún væri grimm, en Hómer var
blindur eins og þú veist, og leit því
aldrei fegurð Persefone.
Að lífið er hringi’ás hafa menn
vitað um þúsundir ára, en um
kveikjuna að nýju lífi hafa verið
skiptar skoðanir.
Demeter og Persefone eru þó
alltaf kærkomnar. Þær boða líf,
birtu og yl. Þær boða frjósemi, ást
og ný fyrirheit.
Nú blundar Persefone og liggur
þá náttúran öll í dvala, en vitundin
um það að hún birtist okkur aftur
að vori og skarti þá allri sinni feg-
urð, yljar okkur um hjartarætumar.
Richardt Ryel
ítrekaðar spurning-
ar til útvarpsstjóra
Hinn 25. september sl. birtust í
Velvakanda Morgunblaðsins fyrir-
spumir frá undirrituðum stílaðar til
útvarpsstjóra, herra Markúsar Arn-
ar Antonssonar. Fýrirspurnimar
voru á þessa leið:
1. Hve margir starfsmenn vinna
nú við Ríkisútvarpið:
a) fastráðnir
b) lausráðnir.
Árið 1981 voru þeir samtals
254. Alþingistíðindi, 14. h.
1980-81.)
2. Hve margir fréttamenn starfa
nú á erlendri gmnd í þágu
Ríkisútvarpsins?
3. a) Eru þeir fastráðnir?
b) Hver era launakjör þeirra?
Mér vitanlega hafa ekki borist
svör við þessum fyrirspumum.
Hvað dvelur Orminn langa?
Ég hef ekki enn gefið upp alla
von um að fá svar frá virðulegum
útvarpsstjóra viðvíkjandi fyrir-
spurnum mínum, þótt tvísýnt sé að
vísu eins og nú horfir. Þess vegna
Hvað dvelur útvarpsstjóra?
endurtek ég þær hér að nýju með
von um úrlausn. Ég tel ekki æski-
legt að þurfa að grípa til ítrekunar
í annað sinn.
Sandi, Aðaldal,
30.10. 1986.
Þórgnýr Guðmundsson,
fyrrverandi skólastjóri.
Þessir hringdu . . .
Þessir eru 1
stjórn Sólheima
Grímsnesi
Jón Haukur Bjarnason
hringdi:
Vegna fyrirspurnar í Velvak-
anda vil ég upplýsa hvetjir era í
stjórn Sólheima Grímsnesi. For-
maður er Pétur Sveinbjarnarson,
fyrrverandi eigandi að Veitinga-
manninum, og varaformaður er
Sigutjón Heiðarsson, skrifstofu-
stjóri Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar. Aðrir í stjórninni era: Gylft
Jónsson, fyrrverandi rektor Skál-
holtsskóla, Gísli Hendriksson,
bóndi Hallkelshólum, Halldór
Steingrímsson, starfsmaður
Landsbanka Islands og Guðjón
Árnason, starfsmaður Sólheima.
Varamenn era Anna Sveinbjöms-
dóttir, prestsfrú Hveragerði, Lára
Sigurðardóttir, húsmóðir Bjama-
stöðum, Tómas Grétar Ólason,
verktaki og Grétar Kristjónsson,
starfsmaður Sólheima.
Einkennileg
auglýsing
Óskar hringdi og vildi vekja
athygli manna á því að Akur-
eyringar væra að auglýsa eftir
nýjum hitaveitustjóra, og að því
tlti
er best væri séð, ætti sá að búa
yfir sömu eiginleikum og hita-
veitustjórinn sem Akureyringar
ráku.
Borgarspítalinn
til fyrirmyndar
Marta Þorsteinsdóttir
hringdi:
Ég hef oft þurft að dveljast á
Borgarspítalanum og vil að það
komi fram að þar er gott að vera
og allir era þar starfi sínu vaxnir
og vel það.
Þakklæti komið
á framfæri
Móðir hringdi:
Um daginn var dóttir mín í
miðbænum í Reykjavík. Týndi hún
þá veskinu sínu án þess þó að
átta sig á því strax. Hún var á
bíl og þegar hún kom að honum
aftur hafði einhver smeygt vesk-
inu undir aðra rúðuþurrkuna. Ég
vil þakka þessum einstaklingi fyr-
ir heiðarleik hans og skilvísi.
Fundin gleraugu
við Miklagarð
Nýlega fundust kvenmanns-
gleraugu í gráu leðurhulstri á
Miklagarðsplaninu. Á hulstrinu
stendur orðið „Linsan". Eigandi
er beðinn að líta við í Tölvudeild
sambandsins í Miklagarðshúsinu.
Tveggja hvíta-
gullshringja
saknað
Þann 16. október tapaði ég
tveimur hvítagullshringjum,
líklega í Laugalækjarskóla. Ef
einhver hefur fundið þá bið ég
hann vinsamlegast að hringja í
s. 37182. Fundarlaun.
Bandarískan
körfubolta í
íþróttaþáttinn
Piltur hringdi:
Ég vil lýsa yfír óánægju minni
með að það era liðnir þrír mánuð-
ir síðan síðast var sýndur úrslita-
leikur úr bandarísku MBA
deildinni í körfubolta. Mér finnst
að Bjami mætti minnka við sig
fótboltann og auka hlutdeild ann-
arra íþrótta í þættinum.
Hvernig er
textinn?
Árný hringdi og sagðist vera
á höttunum eftir sönglagatexta.
Ekki kvaðst hún kunna annað úr
textanum en þetta brot:
Hvar ertu Anna
Anna sem varst mér svo kær
Þú sem kannt allan textann ert
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 37396.
Vitni vantar
V. hringdi:
Miðvikudaginn 22. okt kl. 10.30
lentum við í árekstri á horni
Hverfisgötu og Snorrabrautar.
Hvítum Ford Escort var ekið aust-
ur Hverfisgötu og lítill silfurgrár
Subaró kom frá Skúlagötu og upp
Snorrabraut. Á gatnamótunum
laust bílunum saman. Vegna þess
hvernig dómur féll í málinu bráð-
vantar okkur vitni að þessum
atburði. Ef þú sást áreksturinn
hringdu þá vinsamlegast í s.
46071 eða 40324.
KÁPUSALAN
BORGARTÚNI 22
veröur /okuð mánudag 10. og þriðjudag //. november nk. vegna
sta’kkunar. Opnum aftur miðvikudaginn /2. nóvember.
Kostaboð frá
JIP
Níðsterkt vatnsvarið leður.
Stamir léttir sólar!
1.996
PÓSTSENDUM.
Nr: 34—42.
Svartir/m. lit.
Egilsgötu 3,
Sími: 18519.
C3I
IB
loftræstiviftur
FALKINN
____Þekking Reynsla Þjónusta_
SUOURLANDSBRAUT 8. SIMI 84670
4
TTWZtímu
vu ts ll
'IV >1«