Morgunblaðið - 09.11.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986
C 31
Um Bob Dylan og
King Kong yngri
Rambó lifir. Nú stendur yfir
undirbúningur á tökum þriöju
Rambómyndarinnar og að sjálf-
sögðu er það Silvester Stallone
sem fer með titilhlutverkið.
Hann skrifar einnig handritið
að myndinni en nafn leikstjór-
ans hefur ekki verið gefið upp.
Frumsýning er ákveðin nœsta
sumar.
Konungur valsanna (The King
of Waltzes) er heiti á austurrískri
bíómynd um líf og ástir tónskálds-
ins Johanns Strauss. Þrír menn
koma til greina í hlutverkið: Martin
Sheen, Michael York og Helmet
Berger.
Það er alltaf vinsælt að fram-
leiða endurgerðir á gömlum og
góðum myndum þótt afraksturinn
sé kannski ekki alltaf til fyrirmynd-
ar. Nú stendur til að endurgera
gamanmyndina The Ladykillers,
sem Alexander Mackendrick gerði
árið 1955. Fregnir herma að Ge-
orge Burns muni leika það hlutverk
sem Alec Guinness fór með í
gömlu myndinni.
Rokkarinn Bob Dylan hélt blaða-
mannafund fyrir skömmu til
kynningar á nýjustu mynd Ric-
hards Marquand (Jagged Edge),
sem heitir Hearts of Fire. Mar-
quand sagði að myndin yrði um
„frægð og hvort þú getir ráðið við
frægð". Bob Dylan var ekki alveg
eins viss. Þegar hann var spurður
að því hvers vegna hann hefði
ákveðið að taka þátt í gerð mynd-
arinnar sagði hann: „Ég er ekki að
fást við neitt þessa stundina og
mér virtist ágætt að reyna við
þetta." Hann var spurður að því
hvort hann gæti nokkuö leikið. „Ég
býst við að ég komist að því," svar-
aði hann. Blaðamannafundurinn
stóð í 40 mínútur og Dylan sagði
fátt og mótleikarar hans í mynd-
inni, Rubert Everett og ameríska
rokksöngkonan Fiona Flanagan
sögðu ekki mikið heldur. Hearts
of Fire á að vera um ameríska rokk-
stjörnu (Dylan) og breskan söngv-
ara (Everett) og keppni á milli
þeirra um ástir stúlkunnar Flanag-
an. Síðast lék Dylan í bíómynd fyrir
meira en áratug. Þá lék hann í
vestranum Pat Garrett og Billy the
Kid.
Síðast þegar við sáum risagórill-
una King Kong lá hún kylliflöt fyrir
Jessicu Lange í fleiri en einum
skilningi. En þrátt fyrir hátt fall var
King ekki dauður heldur dasaður
og í nýjustu mynd framleiðandans
Dino de Laurentiis, King Kong lifir
(King Kong Lives), framhaldsmynd
Kong-myndarinnar frá 1976, er
apanum með gullhjartaö bjargað
af snillingnum Dr. Amy Franklin,
sem Linda Hamilton leikur. Hún
græðir gervihjarta í miklum sér-
flokki í apann og sér honum svo
fyrir leikfélaga, nefnilega kvenkyns
Kong. „Hann er hættur að ettast
við stúlkur úr mannheimum," segir
Hamilton. „Nú verður hann ást-
fanginn af kvenapa í sínum
stærðarflokki." Hafandi hitt górillu
drauma sinna er ekkert því til fyrir-
stöðu að stofna fjölskyldu og þess
er ekki langt að bíða að litli, sæti
Kong komi í heiminn. Skyldi vera
langt í sjónvarpsseríu? Fyrirmynd-
arapinn. Sérkennilegasta, hárug-
asta og elskulegasta fjölskyldan
síðan Monster-fjölskyldan var og
hét.
Bob Dylan (lengst til hægri), Rubert Everett og Flona Flanagan úr
nýjustu mynd Richards Marquand, Hearts of Fire.
Litla, sæta Kong-krúttið f örmunum á pabba.
V;
NYTT Hótel Ascot, 4ra stjörnu hótel í hjarta borgarinnar.
Ótrúlegt en satt, verð aðeins kr. 14.520.-
Verð miðast við flug, gistingu i tvær nætur og morgunverð
*Verð miðast við flug og gistingu í tveggja manna herbergi,
í 3 nætur. Morgunverður innifalinn.
Kynnið ykkur einnig vikuferðirnar okkar, otrúlega ódyrar
og í desember bjóðum við sérstakan afslatt fyrir þá sem
bóka tímanlega til London og Kaupmannahafnar.
Því ekki að gera jólainnkaupin erlendis í ár?
Það gæti borgað sig.
FERÐA.. Cuibcat
MIÐSTOÐIIM Teaud
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVÍK - S. 2 8 1 3 3
BJARNI D. SÍA