Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986 Arnar ÍS 125 frá Sandgerði fórst austan við Grindavík: Tveggja manna saknað NÍU tonna bátur frá Sandgerði, Amar ÍS 125, fórst við Selatanga austan við Grindavík á sunnudag. Tveir menn voru á bátnum og er þeirra saknað. Mannanna hefur verið leitað síðan á sunnudag, en leitin hefur verið árangurslaus. Mennimir heita Jón Eðvaldsson, skipstjóri og eigandi Arnars, og Jóhannes Pálsson. Jón á heima að Suðurgötu 28 í Sandgerði. Hann er 53 ára að aldri, fæddur 20. jan- úar 1933 og lætur eftir sig eigin- konu og þrjú uppkomin böm. Jóhannes Pálsson á heima að Suð- urgötu 16 í Sandgerði. Hann er 34 ára að aldri, fæddur 31. maí 1952 og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú yngri böm. Sjómennimir fóru í línuróður frá Sandgerði um miðnættið aðfaranótt sunnudags. Þeir töluðu við sjómenn á öðrum bátum um talstöð um nótt- ina, síðast klukkan rúmlega 8 á laugardagsmorguninn. Þá voru þeir skammt frá Selatöngum á sunnan- verðu Reykjanesi. Var annar maðurinn á svokallaðri baujuvakt og er ekki vitað annað en að þá hafí allt verið í lagi. Um klukkan 14 á sunnudag gengu síðan tvær ijúpnaskyttur frá Hafnarfirði fram á björgunarbát í fjörunni við Selatanga og var Amar strandaður á giynningum um 100 metrum frá björgunarbátnum. Am- ar hafði farið farið upp í grynnirigar og kastast töluvert eftir þeim, en stöðvast um 40—50 metra frá fjöru- borðinu. Hann var þá þegar mikið brotinn, stjómborðssíðan var alveg farin úr honum ásamt hálfu dekkinu og stórt gat var einnig á bakborðs- síðunni. Björgunarbátur Amars var uppblásinn en mannlaus. Rjúpna- skyttumar leituðu fyrst í nágrenn- inu en fóru síðan á lögreglustöðina í Grindavík og tilkynntu um at- burðinn, um klukkan 15.50. Sela- tangar eru um 2 km austan við Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi (gœr: Yfir norðanverðu Grænlandi er 1020 milli- bara hæð. Víðáttumikil 967 millibara djúp lægð um 400 km suður af Vestmannaeyjum þokast austur. Heldur vaxandi lægðardrag milli íslands og Noregs. SPÁ: Norðan- og norðaustanátt, allhvasst eða hvasst (7-8 vind- stig), um norðvestanvert landiö, en kaldi eða stinningskaldi (5-6 vindstig) annars staðar. Víða snjókoma eða él norðanlands en yfir- leitt þurrt syðra. Hiti nálægt frostmarki. . I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: MIÐVIKUDAGUR: Minnkandi norðaustanátt og svalt í veðri með éljum, einkum um norðanvert landið. FIMMTUDAGUR: Suðaustanátt og hlýnar í bili. Víða mun rigna um sunnan- og vestanvert landið en þurrt að kalla norðaustanlands fram eftir degi. TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■|Q° Hitastig: 10 gráður á Celsius Heiðskirt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * Skúrir V Él Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka A <(^gj| Hálfskýjað r r r * r * 5 Þokumóða Súld 'Ú8k Skýjað r * r * Slydda r * r OO Mistur -I* Skafrenningur / Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður VEÐURVÍÐA UMHEIM kl. 12.00 i gær að ísl. tíma hhi veAur Akureyri 1 snjókoma Reykjavfk 4 skýjað Bergen vantar Helsinkl vantar Jan Mayen 0 snjóói Kaupmannah. 8 alakýjað Narssarssuaq -8 skýjað Nuuk -8 skýjað Osló vantar Stokkhólmur 6 alskýjað Þórshöfn vantar Algarve vantar Amsterdam vantar Aþena vantar Barcelona 15 lóttskýjað Berlín 8 skýjað Chicago vantar Gtasgow vantar Feneyjar vantar Frankfurt 9 skýjað Hamborg 8 skýjað LasPalmas vantar London 13 alskýjað Los Angeles vantar Lúxemborg vantar Madrfd 12 léttskýjað Malaga 19 léttskýjað Mallorca 16 léttskýjað Miami vantar Montreal 8 alskýjað Nfce 17 heiðskfrt NewYork vantar Parfs 8 rigning Washlngton vantar Winnipeg -4 renningur Yfirlitsmynd af slysstað við Selatanga austan við Grindavík. Félagar úr björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík að störfum, flak Arnars ÍS fjær. Björgunarbátinn rak upp í fjöruna um 100 metrum frá bátnum. ísólfsskála og 5—6 km austan við Grindavík. Lögreglan kallaði út björgunar- sveitina Þorbjöm í Grindavík sem fór til leitar, meðal annars með björgunarbát sinn Odd V. Gíslason. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- SIF, kom fljótlega á vettvang og varðskip. Leitað var fram á kvöld og höfð vakt á svæðinu alla nótt- ina. Skipuleg leit hófst síðan strax í birtingu á mánudagsmorgun. Um miðjan dag komu félagar úr björg- unarsveitinni Sigurvon í Sandgerði til leitar með Grindvíkingum og voru 40—50 manns við leit síðdegis í gær að sögn Gunnars Tómassonar formanns björgunarsveitarinnar í Grindavík. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar var á svæðinu ásamt varð- skipi, björgunarbátnum Oddi V. Gíslasyni og gúmbátum. Björgunar- sveitarmenn gengu fjörur og kafarar leituðu í sjónum. Gunnar bjóst við að leitað yrði frameftir nóttu. Að sögn Sigurður Agústssonar varðstjóra í Grindavíkurlögreglunni hefur fundist ýmislegt brak úr bátn- um. Sigurður sagði að ekki væri sjáanlegt að sjómennimir hefðu komist í björgunarbátinn. Hann sagði að báturinn hefði verið vel útbúinn, meðal annars með sjálf- virkum sleppibúnað fyrir björgunar- bátinn og væri útlit fyrir að hann hefði farið sjálfkrafa á flot. Á sunnudagsmorguninn var norðaust- an kaldi á þessu slóðum og einhver alda. Amar ÍS 125 var 9 tonna trébát- ur, smíðaður í Stykkishólmi árið 1971. Hann var nýlega keyptur til Sandgerðis. Björgunarsveitarmenn ganga fjörur við erfið skilyrði. Athugasemd við Staksteina frá Jóni Signrðssyni, forstjóra Þjóðhagsstofnunar MORGUNBLAÐINU hefur borizt svohljóðandi athugasemd frá Jóni Sigurðssyni: „í Staksteinum Morgunblaðsins var síðastliðinn laugardag, 22. nóv- ember 1986, endurprentuð grein úr Alþýðublaðinu með yfirskriftinni „Seðlabankinn er úr Ieik“, sem þar hafði birst án þess að höfundar væri getið. Höfundur Staksteina — hver sem það nú er — leggur síðan út af greininni og lætur að því liggja, að ég sé höfundur hennar. Af þessu tilefni vil ég taka fram, að svo er alls ekki. Eg hef hvorki lagt í vana minn að skrifa nafn- lausar greinar í blöðin né hef ég það í hyggju. Mér fínnst ástæða til að benda ritstjómm Morgunblaðs- ins á, að það er varla samborið virðingu blaðs, sem vill vera vett- vangur ftjálsra og opinskárra skoðanaskipta, að gera mönnum upp skoðanir eins og gert var í þessum Staksteinaskrifum."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.