Morgunblaðið - 25.11.1986, Side 12

Morgunblaðið - 25.11.1986, Side 12
 MQRqifNBLAfiiP, ÞfiJPJUPAGyff,25. NÓVEMBER ,Í986 Víðfrægur fiðluleikari á sinfóníutónleikum Ungverski fiðluleikarinn Gyorgy Pauk, sem nú er í flokki allra fremstu fiðluleikara í heimi, leikur einleik með Sinfóníuhljómsveit Is- lands í fiðlukonsert í e-moll, op. 64 eftir Mendelssohn, á fimmtu áskriftartónleikum vetrarins í Há- skólabíói á fimtudagskvöldið kemur. Önnur verk á efnisskrá tón- leikanna eru forleikur óperunnar Oberon eftir Weber og tónaljóðið „Svo mælti Zaraþústra" eftir Ric- hard Strauss. Stjómandi tónleik- anna er Miltiades Caridis og er þetta í annað skiptið sem hann stjómar tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands. Eftirsóttur einleikari Gyorgy Pauk er mjög eftirsóttur einleikari og kemur reglulega fram með mögum viðurkenndum hljóm- sveitum og frægustu hljómsveitar- stjómm bæði austan hafs og vestan. Pauk er þekktur fyrir fjölbreytni í verkefnavali. Hann hefur leikið inn á margar hljómplötur og hlotið eft- irsótt verðlaun fyrir sumar þeirra. Mest lof hefur hann fengið fyrir upptökur á konsetunum eftir Barók og Alban Berg, undir stjóm Pierre Boulez. Gyorgy Pauk leikur á Stradivarius-fíðlu frá árinu 1714. Pauk fæddist í Búdapest og hóf komungur nám í fíðluleik. Hann var aðeins 12 ára gamall þegar hann fékk inngöngu í Franz Listz- tónlistarháskólann. Um það leyti hélt hann Qölda tónleika í Ungveija- landi og annars staðar í Austur- Evrópu og vann til margra verðlauna. Hann kom fyrst fram í Lundúnum árið 1961 og settist þá þar að. Fáir fíðlukonsertar njóta slíkra vinsælda og em oftar leiknir en e-moll konsertinn eftir Felix Mend- elssohn-Bartholdy (1809—1847), sem Gyorgy Pauk leikur með Sin- fóníuhljómsveit íslands á fímmtu- dagskvöldið. Form hans þykir fullkomið og melódíur undurfagrar. Konsertinn er í þremur þáttum og em tveir hinir fyrstu leiknir í sam- fellu. Hljómsveitin flytur ekki inngang í upphafí, heldur kveður einleiksfiðlan sér þegar hljóðs með stefí, sem setur sterkan svip á allt verkið. Ágætt jafnvægi er milli hljómsveitar og einleiksfíðlu og verkið býður upp á mörg tækifæri fyrir einleikarann að láta ljós sitt skína. Fiðlukonsertinn var fmm- 10ND0N fOLASGOW L<AUPMANNAHÖFN ÓSLÓ ,12.080. ,10.460, ,14.110, ,13.890, IÚXEMBORG QTOKKHÓLMUR (QAUTABORG La13.350, 0 ,16.150, 13.990, Samvinnuferdir - Landsýn Austurstræti 12 ■ Símar 91-27077 & 91-28899 • Hótel Sögu við Hagatorg ■ 91-622277- Akureyri: Skipagötu 14 96-21400 FALLEGUR VITNISBURÐUR UM SÖGULEGT ÁR JÓLASKEIÐIN 1986 Jólaskeiöin í árerfallegursafngripur sem minnir á 200 ára afmæli Reykja víkurborgar og vígslu Hallgrímskirkju. Söguleg skeið, Jólaskeiðin 1986. GUÐLAUGUR LAUGAVEGI 22 SÍMI 15272 Gyorgy Pauk, fiðluleikari. Miltiades Caridis fluttur árið 1845 af fiðluleikaranum Ferdinand David og Gewandhaus- hljómsveitinni í Leipzig. Mendels- sohn og David áttu mikla samvinnu um frágang einleiksraddarinnar. Þetta samstarf þeirra tókst svo vel, að vandfundið er tónverk sem er betur lagað fyrir einleikshljóð- færið en einmitt þetta. Forleikur að óperunni Oberon eftir Weber Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar- innar á fímmtudagskvöld he§ast á forleik ópemnnar Oberon eftir Carl Maria von Weber. Tvö af þremur verkum sveitarinnar á þessum tón- leikum em því eftir snillinga sem einna mest kvað að í rómantískri tónlist Þýskalands. Weber er talinn einn af merkustu fmmkvöðlum rómantísku stefnunnar í þýskri tón- list og Mendelssohn, sem fjallað er um hér að framan, var frá því Weber leið einn helsti merkisberi þessarar tónlistar. Carl Maria von Weber (1786—1826) skrifaði ópemna Oberon á ámnum 1824 til 1826 eftir pöntun framkvæmdastjóra ópemhússins Covent Garden í Lundúnum. Verkið var frumflutt þar f apríl 1826 undir stjóm Web- ers. Tónskáldið var þá dauðvona af berklum og dó tveimur mánuðum eftir fmmsýninguna. Það má ótrú- legt teljast, að fársjúkur maður skuli hafa samið svo þokkafulla, innblásna og fjörlega tónlist sem raun ber vitni. Óperan Oberon er afar sjaldan flutt í heild. Það er þó ekki vegna tónlistarinnar, sem að mörgu þykir falleg og meistaralega skrifuð, heldur geldur verkið þess hve text- amir em lélegir. Forleikurinn er hins vegar vinsæl tónsmíð á efnis- skrá flestra hljómsveita. Hann er reistur á stefjum úr ópemnni og var ritaður aðeins nokkmm dögum fyrir fmmsýninguna. Merkasta verk Webers á sviði ópemtónlistar er Töfraskyttan, sem frumsýnd var 1821 og markaði tímamót. Um var að ræða braut- ryðjendaverk, og á gmndvelli þess byggði Wagner síðar hina stór- brotnu rómantísku list sína. Tónaljóðið „Svo mælti Zaraþústra“ eftir Richard Strauss Tónleikum Sinfóníunnar á fímmtudagskvöld lýkur með tóna- ljóði op. 30 eftir Richard Strauss (1864—1949), Svo mælti Zara- þrústra (Als sprach Zarathustra). Strauss samdi verkið árið 1896 og sótti nafn þess og efni í samnefnt rit þýska heimspekingsins Friedrich Nietzsche, sem út kom 1892. Strauss sagði um verkið: „Ég ætl- aði ekki að semja heimspekilega tónlist eða draga upp tónamynd af þessu mikla verki Nietzsches. Ætl- un mín var að túlka í tónum hugmynd heimspekingsins um þró- un mannkyns frá upphafí, stig af stigi, jafnt á sviði trúar og vísinda, allt til ofurmennisins, sem Nietzsche lýsir. Strauss varð víðfrægur þegar hann sendi frá sér fyrsta tónaljóð sitt, Don Juan, árið 1888, þá aðeins 24 ára. Hvert hljómsveitarverkið rak annað næstu árin og áttu þau öll að segja einhveija sögu, eða hafa aðra ótónræna merkingu. Af öllum þessum verkum stóð mikill ljómi, ekki síst vegna glæsilegs rit- háttar fyrir hljómsveitina, og áhrif þeirra hafa verið mikil og langvinn þótt mönnum sýnist sitt hverjum um þau viðhorf til tónlistar, sem þau byggjast á. Stjórnandinn Miltiades Caridis Stjómandi Sinfóníuhljómsveitar- innar að þessu sinni er Miltiades Caridis. Þetta er í annað skiptið sem hann stjómar sveitinni. Hann var áður gestur hennar í október í fyrra, er hann stjómaði fyrstu tónleikum starfsársins. Caridis er af grísk-þýskum ætt- um. Hann ólst upp í Dresden og Aþenu, en nam við Tónlistarháskól- ann í Vínarborg. Hann hefur starfað víða um lönd. Meðal annars var hann um tíma fastur stjómandi Sinfóníuhljómsveitar danska út- varpsins og í meira en áratug var hann aðalstjórnandi Fílharmóníu- hljómsveitarinnar í Ósló. Hann talar reiprennandi bæði dönsku og norsku. Á aldarafmæli ungverska tónskáldsins Béla Bartóks var Caridis sæmdur heiðurspeningi sem kenndur er við tónskáldið og felst í því mikil viðurkenning. (Vilhelm G. Kristinsson tók sam- an.) Jólakaffi Hrings- ins á Broadway HIÐ árlega jólakaffi Kvenfélags- ins Hringsins verður haldið í veitingahúsinu Broadway laug- ardaginn 29. nóvember næst- komandi klukkan 13.00 til 17.00. Að vanda verða skemmtiatriði á dagskrá, meðal annars tískusýning á bamafötum, jazzballettsýning og fleira. Einnig verður efnt til skyndi- happdrættis þar sem vinningar eru meðal annars utanlandsferð, skart- gripir og heimilistæki ásamt mörgum góðum vinningum. Einnig verða basarmunir og jólakort seld. Allur ágóði af fjáröflunum Hringsins svo sem basar, jólakaffi, happdrætti og jójakortasölu rennur til líknarmála. Á þessu ári hefur félagið gefíð lækningatæki á tvær deildir Bamaspítalans að andvirði 950 þúsund krónur á Vökudeild og 200 þúsund krónur á almenna deild. Ennfremur tók félagið þátt í íbúðar- kaupum ásamt Krabbameinsfélagi íslands og Rauða krossinum, sú íbúð er ætluð foreldrum bama utan af landi sem haldin eru illkynja sjúk- dómum. Alls hafa gjafír félagsins á þessu ári numið einni og hálfri milljón króna. ( Úr fréttatilkynningu.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.