Morgunblaðið - 25.11.1986, Side 22

Morgunblaðið - 25.11.1986, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986 Orðsending til alþjóðar Þakkir til Islensku óperunnar og sjónvarpsins eftir Önnu Snorradóttur Leónóra er dáin, ljósin slokknuð og tónamir þagnaðir, en áður en ég fer í rúmið ætla ég að senda þjóðinni minni áskorunarbréf. Það er langt síðan ég hefi farið jafn glöð í hjarta í háttinn og eftir flutn- inginn á Trúbador Verdis eða II Trovatore, sem islenska óperan flutti okkur í sjónvarpi í kvöld. Bein útsending er alltaf jafn heill- andi og spennandi a.m.k. fyrir undirritaða. Það er eins og fæðing. Hvemig tekst? Þarf að gera keis- araskurð? Verður allt eðlilegt? Það þurfti engan skurð í kvöld, allt gekk snurðulaust og eðlilega eða því sem næst, og ég er illa svikin ef þjóðin upp til hópa hefír ekki hrifíst eitt- hvað svipað og ég. Þakkir til sjónvarpsins Mig langar alveg sérstaklega til að þakka sjónvarpinu okkar — verð- um við nú ekki að fara að segja Ríkissjónvarpinu? — fyrir það glæsi- lega framtak, að bjóða þjóðinni allri á óperusýningu á leikhústfma. Ekki man ég lengur, hve mörg skammar- bréf ég hefi sett í blöðin vegna tímasetningar á besta efni sjón- varpsins frá Metrópólítan-óperunni í New York, og þá hófst útsending klukkan að ganga ellefu um kvöld! Einhvem tíma fyrir langa löngu áttu böm mín, samkvæmt óskum skólans, að sjá einhveija víkinga- fræðslu, en sáu aldrei neinn þátt- anna, vegna þess að blessaðir mennimir á Suðurlandsbrautinni hófu útsendingar svo seint, að böm- in voru sofnuð. Ég gafst upp á að finna að og fór að skrifa annað. Nú er þetta loks að breytast og hafi allir sem hlut eiga að máli þakkir fyrir. Ánægð með fréttatímann Ég varð afskaplega glöð, þegar fréttatíminn var færður fram til hálfátta vegna þess að dagskráin færist öll fram og von til að hægt sé að „fara í bíó“ án þess að yaka fram á nótt. En ég beygi mig fyrir meirihlutanum og hefí mikla samúð með þvi fólki, sem hefir svo langan vinnudag, að það kemst ekki heim í tæka tíð og eins þeim, sem snæða jafn seint og algengt virðist vera. Allan minn búskap höfum við borð- að snemma á kvöldin og mér fínnst ijarska margt vinnast við það. Það er heilsusamlegra að láta líða tíma, áður en gengið er til náða, kvöldið verður drýgra, meiri möguleikar til að tala saman eða fara eitthvað út og til að sjá sjónvarp fyrir þá, sem það vilja helst. En ég segi með manninum mínum, að sjónvarpið má ekki vera miklu betra, þá færi illa! Hugsið ykkur ef upp kæmi sú staða, að sjónvarpið yrði svo for- kunnargott, að engu mætti sleppa! Nei, ég er ánægð ef ég fæ einn svo ekki sé talað um tvo úrvalsþætti í viku og þá strax á eftir fréttunum. Anna Snorradóttir „Þetta er áskorun til þín, lesandi góður, sem heyrðir og sást óperuna hans Verdis í kvöld, að borga aðgangseyri, þótt þú sætir heima, og senda óperunni.“ Það er stundum gaman að telja lappimar á öllum skringilegu pödd- unum og dýrunum, en ég er búin að læra mína dýrafræði hjá honum Steindóri frá Hlöðum og vil ekki nota augun mín og tímann í meira af því tagi. Samt heillast ég alltaf af fuglamyndum og get endalaust horft á fegurð þeirra og tign. Styðjum óperuna Ég hefí dáðst að þessu unga fólki okkar við íslensku óperuna árum saman og séð allar uppfærslur hennar, held ég, og sýningin á Trúbadomum í kvöld var ekki sú fyrsta sem ég sá. Það gætir svo mikillar bjartsýni hjá tónlistarfólk- inu, það hefír svo mikið til bmnns að bera, að við verðum að styðja við bakið á því. Það er ekki nóg að klappa, þótt það sé gott, það þarf að gera eitthvað sem gerir meira gagn og munar um, og er þá ekki komið að þeim leiðinlega þætti, sem heitir peningar? En það þarf peninga. Mikla peninga. Húsið, þetta hlýja og yndislega hús, er svo lítið, að aðgangseyrir nægir hvergi nærri til þess að rísa undir óperu- flutningi. Við sáum í kvöld svolítið á bak við tjöldin í fylgd með Guð- rúnu Ásmundsdóttur og Ólafí Ragnarssyni. Hugsið ykkur allan fjöldann, sem vinnur að tjaldabaki: Álla hljóðfæraleikarana, hljómsveit- arstjóra, leikstjóra, sviðsfólk, sýningarstjóra, búninga- og förðun- arfólk, æfingastjóra o.fl. o.fl. Ekkert fólk í dag getur unnið kaup- laust. Hvers vegna ætti það líka að gera það? Hvar fáum við skemmtun, nema þá á göngu úti í blessaðri náttúmnni, sem ekki kost- ar peninga? Og ópemsýning er geysilega dýr. Það gladdi mjög að sjá, að nokkur fyrirtæki höfðu stutt sýninguna í kvöld og vonandi fylgja fleiri fordæmi. Og þá er ég komin að kjama málsins, þér og mér, les- andi góður. Hvað getum við gert? Hvað getum við gert til þess að koma í veg fyrir, að söngvaramir okkar þurfí að fara í fískinn til þess að draga fram lífíð og litla óperan í Gamla bíói lognist útaf? Ég skrifaði ávísun og bauð allri fjöl- skyldunni, aðgangseyri að ópemnni í kvöld, þótt ég sæti heima í stofu. Þetta er ekki stór upphæð, en ef við gemm það nógu mörg, þá munar Islensku ópemna um það. „Ef viö biðjum nógu mörg“ Ég var um daginn úti í Þýska- landi og hlustaði kvöld eitt á frétta- auka í sjónvarpi. Það var verið að ræða mál málanna, friðarmálin í heiminum. Fréttamaðurinn lauk þættinum með stuttu spjalli við litla telpu og spurði hana, hvort hún hefði hugsað um friðarmálin. „Já,“ svaraði bamið, „ég hefí hugsað." „Og hvað heldurðu nú, að við getum gert til þess að varðveita friðinn?" spurði fréttamaðurinn. „Biðja Guð,“ svaraði telpan að bragði. „Heldurðu að það muni duga?“ var spurt. Sú litla svaraði um hæl: „Já, ef við biðjum nógu mörg.“ Sendið aðgangseyri Ef við greiðum nógu mörg fyrir ánægjustundina í kvöld og sendum til Islensku ópemnnar, hjálpar það henni kannski yfír örðugan hjalla og verður til þess að hún lifír áfram. Ég hefi ekki sýnt nokkmm manni þessar línur og þori ekki að segja forsvarsmönnum ópemnnar frá hugleiðingum mínum. Það hefír svo mikið verið skrifað og skrafað um safnanir nú um skeið, að kannski myndu þeir ekki kæra sig um pen- ingabetl eins og sumir nefna slíkt. En hér er ekki um neina söfnun að ræða. Þetta er áskomn til þín, lesandi góður, sem heyrðir og sást ópemna hans Verdis í kvöld, að borga að- gangseyri, þótt þú sætir heima, og senda ópemnni. Ef þú hefír efni á að „bjóða" einhverjum með þér, er það ennþá betra. Fáein þúsund jafn vel fáein hundmð, bara ef við emm nógu mörg. Af ásettu ráði hefí ég ekki minnst einu orði á ópemflutn- ing í Þjóðleikhúsinu okkar né heldur þá staðreynd, að í draumi sjáum við rísa Tónlistarhús á íslandi þar sem óperan ætti líka samastað. Nei, það er Islenska óperan í Gamla bíói sem á hug minn óskertan þessa stundina og ég veit að svo er um fjöldann allan af löndum mínum. Ég held að heimilisfangið sé nóg svona: ísienska óperan, Reykjavík. Að kvöldi 16. nóv. 1986. Höfundur er húsmóðir í Reykjavík. Opinber starfsmaður settur á vatn og brauð í þijá mánuði eftír Agúst H. Bjarna- son „Það sem rakið verður hér að neðan, er að mínum dómi þvílík svívirða af hálfu opinberra aðila að ég get ekki látið málið liggja í þagnargildi.“ Það er með hálfum huga, að ég ræðst í að skrifa um skattamál. Til þessa hef ég verið giska fálátur og fávís um þau en hið opinbera hefur sjálft séð um að taka sem því ber af launum mínum. Lengst af hefur þetta gengjð snuðrulaust enda ríkt gagnkvæmt og einlægt traust okk- ar í milli; aldrei hefur framtal mitt verið vefengt né ég tortryggt álög- ur á mig. Það kom mér því mjög á óvart, þegar ég kynntist í sumar innviðum og starfsháttum Skattstofu Reykjavíkur, hve óvægin og þjösna- leg stofnunin er. Langar mig til þess að rekja það í stuttu máli, því að mér er ekki grunlaust um, að fleiri hafí orðið fyrir barðinu á óvönd- uðu vinnulagi starfsmanna þar á bæ. í stuttu máli er sagan sú, að sl. haust leitaði ég ráða á Skattstofu Reykjavíkur vegna þess, að ég átti útistandandi óvissa peninga, sem voru í innheimtu hjá lögfræðingi. Fannst mér óþarft að telja þá fram fyrr en þeir fengjust greiddir eða fella þá að öðrum kosti undir lið sem nefnist óvissar tekjur. Viðmæl- andi minn féllst að því ég fékk bezt skilið á þetta sjónarmið en bað mig um að geta þessa í athugasemdum á væntanlegu framtali. Varð ég við þeirri bón hans af einskærum barnaskap, illu heilli, því að síðar varð ljóst að ógæfa mín fólst ein- mitt í því. Eins og lög gera ráð fyrir taldi ég fram og skilaði skattaframtali á tilskildum tíma. Hins vegar brá nú svo við, að með bréfí dagsettu 9. júní sl., var mér tjáð, að skattstjóri hefði í hyggju að hafna framtali mínu nema gerð væri grein fyrir tilteknum atriðum innan tíu daga. Vegna sannanlegrar flarvistar úr Reykjavík barst mér bréfíð ekki í hendur fyrr en þann 27. s.m. og mánudaginn 30. hélt ég með öll gögn á skattstofu og hitti að máli starfsmanninn, sem undirritaði bréfíð. Sagði hann mér, að eftir- grennslun skattstofunnar væri til komin vegna athugasemdar minnar á framtalinu, og kom síðar í ljós, að hún var að undirlagi sama manns og ráðlagði mér að geta hennar þar. í annan stað sagði hann, að ég kæmi of seint, og var hann ekki með neinu móti fáanlegur til þess að rýna í gögn málsins. Ég yrði bara að senda inn kæru, þegar þar að kæmi. Sneri ég því bónleiður heim aftur. 23. júlí barst annað bréf þess efnis, að allir gjaldstofnar hefðu verið áætlaðir að viðbættu 25% álagi samkv. „3. ml. 1. mgr. sbr. 3 mgr. 96. greinar laga nr. 75/1981“, þar sem umbeðin gögn voru ekki lögð fram og skattframtalinu hafn- að. Nú hafði ég engin úrræði og beið þess sem verða vildi. Þessu næst kom gjaldheimtu- og álagningarseðillinn. Vissulega átti ég ekki von á neinum glaðningi en fyrr má nú rota en dauðrota. Seðill- inn var í engu samræmi við bréfíð frá 23. júlí, því að tekjuskattsstofn var kr. 1.653.076, eignarskatts- stofn kr. 1.554.930 og stofn til álagningar útsvars o.fl. kr. 1.726.109. Samkvæmt þessum tölum var mér gert að greiða sam- tals krónur 793.989 í álögð gjöld 1986 eða m.ö.o. um 20% hærri upphæð en heildartekjur mínar námu. Og eftir því bar mér að greiða um 138.500 næstu fímm mánuði. Nú blés ekki byrlega, föst laun rúmur Qórðungur þeirrar upphæð- ar, sem átti að greiða á hvetjum mánuði. Nokkur huggun var þó, að óheimilt er að taka meira en 75% af launum. Laun menntaskólakenn- ara þykja ekki ýkja há, en ofraun er að ætla sér að framfleyta íjög- urra manna fjölskyldu á fjórðungi þeirra. Þótti mér sýnt, að hér væri um mistök að ræða og trúði vart öðru en að þessu yrði kippt í liðinn hið snarasta. Öll gögn málsins voru til reiðu og ekkert að fela. Annað átti eftir að koma í ljós. Það gekk ekki þrautalaust að fá svör á skattstof- unni við þessari álagningu. Þrisvar sinnum reyndi ég að ná tali af skatt- stjóra, en hann var aldrei við (bréfí svarar hann ekki), tvívegis voru þau herbergi, sem mér var vísað á tóm og þangað kom enginn þann tíma, sem ég taldi mér fært að doka við. Loks var mér vísað á varaskatt- stjóra. Hann greindi mér frá, að skattstofunni hefðu orðið á mistök í meðferð talna. Þótt hann væri fullur skilnings, dugði það skammt, því að málið yrði „að hafa sinn gang“. Hér er komið að kjarna málsins. „Gangur málsins" reyndist hinn mesti seinagangur. í þtjá mánuði hirti hið opinbera nær öll mín Iaun, og fyrihugaðar ráðagerðir fjölskyld- unnar runnu út í sandinn. Að öðru leyti hvarflar ekki að mér að lýsa opinberlega eigin högum. Hinu er þó ekki að neita, að þessi málsmeð- ferð Skattstofu Reykjvíkur jafngild- ir í mínum huga því að setja mig og fjölskyldu mína á vatn og brauð í þtjá mánuði þangað til þessum háu herrum þóknaðist að leiðrétta eigin heimskupör. Um miðjan síðasta mánuð fékk ég loks endurgreitt frá Gjaldheimt- unni, því að niðurstaða málsins varð sú að lagt var á mig sam- kvæmt framtali og lækkuðu mánaðargreiðslur þá um rúmar 100 þúsund krónur. Og til þess að kór- óna allt saman var mér neitað um inneignarvexti, því að skilyrði fyrir greiðslu þeirra er, að endurákvörð- un gjalda leiði til hreinnar inneignar gjaldanda samkvæmt eigin túlkun Gjaldheimtunnar. í raun er þetta slík ósvinna, að ég trúi ekki að þetta fái staðist fyrir dómstólum, enda hlýtur umframgreiðsla fram yfír tilskildar greiðslur að leiða til inneignar fram að gjalddaga hlut- aðeigandi greiðslu. Grein þessi er orðin lengri en ætlað var og er því mál að linni. Mér þykir þó rétt að draga saman helztu efnisatriði. í fyrsta lagi vil ég taka fram að ég hef ekkert við það að athuga, að gerðar séu at- hugasemdir við skattframtal. Hins vegar er ótækt, að frestur til þess að skýra mál sitt sé svo naumur, að ekki megi bregða sér bæjarleið, einmitt á þeim tíma sem sumar- leyfí standa sem hæst. I öðru lagi er eftirgrennslun skattstofu til kom- in vegna athugasemdar minnar á framtali, sem ég setti að ráði starfs- Ágúst H. Bjarnason manns skattstofu. í þriðja lagi verða skattstofu á mistök í álagn- ingu opinberra gjalda, sem leiða til þess, að ég var nær án framfærslu- eyris í þijá mánuði. í íjórða lagi heldur hið opinbera drjúgum hluta launa minna langan tíma og neitar að greiða sanngjarna vexti. í fímmta og síðasta lagi er ekki ýjað að eigin mistökum skattstofu, því síður beðizt velvirðingar. Það sem rakið hefur verið hér á undan, er að mínum dómi þvílík svívirða af hálfu opinberra aðila að ég get ekki látið málið liggja í þagn- argildi. Ef lögum og reglum er svo fyrir komið hér á landi, að aðgerðir hins opinbera í minn garð hafí ver- ið löglegar, skora ég á alþingismenn að breyta þeim hið snarasta. Sjái hins vegar einhver löglærður mað- ur, sem les þessar línur, að mér hafí verið brotið, vil ég feginn fá honum í hendur að höfða mál á hendur fjármálaráðherra, yfírmanni skattheimtu í landinu, til þess að ég að minnsta kosti fái greidda vexti af fé, sem ríkið tók með órétt- mætum hætti, svo að ekki sé minnzt á greiðslu fyrir þann tíma, sem fór í vafstur í kringum málið, armæðu og hugarangur, sem þetta hefur valdið. Höfundur starfar sem mennta- skólakennari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.