Morgunblaðið - 25.11.1986, Side 27

Morgunblaðið - 25.11.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986 27 1 Smjörþefur af hryðjuverkum Hugleiðing um öryggismál eftirBaldur Agústsson Það strandhögg sem liðsmenn Sea Shepherd gerðu á íslandi ný- lega hefur verið á allra vörum síðan. Eðlilega: hermdarverk og refsiað- gerðir þekkja íslendingar úr erlend- um fjölmiðlum, ekki af eigin reynslu sem betur fer. Meðan sprengjur springa, flugvélum er rænt og fyrir- menn vegnir í öðrum löndum höfum við ekki þurft að óttast um líf og limi hér á íslandi. Hér er að vísu alvarieg aukning á innbrotum, of- beldi og eiturlyíjasölu — með tilheyrandi vandamálum — en það er af öðrum toga spunnið. Þetta eru vandamál sem verður að taka á en þau má leysa að mestu ef nægur vilji er fyrir hendi. Skæruhernaður hermdarverka- manna er annað mál. Þar gjöldum við sakleysis okkar. Því þó að þekk- ing á sviði öryggismála, öryggis- búnaðar og jafnvel hemaðar sé til í landinu þá höfum við sloppið að mestu við að beita henni. Fjarlægð- in frá öðrum löndum, veðurfar og nafn landsins hefur verið okkar vöm. Vömin sú er ekki ókeypis: Hún kostar sitt í samgöngum, vöm- verði o.fl. en það er vel þess virði. Ég hef raunar lengi verið þeirrar skoðunar að fjarlægð okkar og ákveðin einangmn verði að teljast til gæða landsins. Eftir aðgerðir Sea Shepherd urðu umræður um málið á Alþingi. Vom þingmenn sammála um að vinna þyrfti að úrbótum á þessu sviði. Sem dæmi um sakleysi okkar nefndi einn ráðherrann að_ forsætisráð- herra og forseti íslands fæm óvemduð og fylgdarlaus milli heim- ilis og vinnustaðar. Þetta er vissu- lega rétt og næsta fátítt annars staðar í heiminum. En svo lengi sem önnur ráð duga tel ég að flestir vilji hafa þetta svona. Það er gam- an að sjá forsetann og ráðherrana okkar á röltinu um borgina eða ræðandi málin við „almenning" á mannamótum. Það er einhvem- veginn hluti af íslensku þjóðlífí. Ég held ekki að fólk kynni við það að sjá öryggisverði umkringja Vigdísi hvar sem hún færi eða stjaka Steingrími með hraði inn í skothelda bifreið sem æki síðan á brott í lög- reglufylgd. Með þessu er ég ekki að segja að allt sé I lagi eins og það er, alls ekki. En á öryggismálum em marg- ir fletir. Þau þarf að skoða í heild Baldur Ágústsson því vandinn er fjölþættur og leiðim- ar margar. Fyrirtæki og stofnanir þurfa að gera átak til að veija eigur sínar — í víðustu merkingu þess órð. Til þess standa þeim til boða margs- konar þjónusta og tækni sem þegar hefur sannað gildi sitt á íslandi sem annars staðar. Hér þurfa stjórnvöld að sýna skilning og fella niður að- flutningsgjöld og söluskatt af . öryggisbúnaði. Það nær engri átt t.d. að þessi gjöld af þjófavamar- kerfum séu yfir 60% og peninga- skápum jrfir 150%. Öryggi sjónvarps, útvarps, al- mannavama, sjúkrahúsa og Al- þingis þarf að tryggja langtum betur en nú er gert. Þessar stofnan- ir og margar fleiri em þjóðinni mikilvægar og á áhættutímum gegna þær lykilhlutverki. Sendiráð okkar erlendis em í vaxandi hættu og ekki ólíkleg skotmök öfga- manna. Þar þarf að gera átak án tafar. Bæta þarf öryggi æðstu manna þjóðarinnar. Ég tel að það eigi ekki að gerast með þeim aðferðum sem við sáum á nýafstöðnum leiðtoga- fundi með öllum þeim fyrirgangi sem því fylgdi. Þær aðferðir em neyðarúrræði þeirra þjóða sem að miklu leyti hafa misst tökin á ástandinu. Þar sem hver er sjálfum sér. næstur og fólk þorir jafnvel ekki út fyrir dyr eftir að skyggja tekur. Öryggi æðstu manna hér á að tryggja með lítt áberandi að- ferðum sem falla að íslensku þjóðfélagi. Þar kemur m.a. til margskonar tækni, hönnun bygg- inga, ákveðnar öryggisreglur og margt fleira sem eðli málsins sam- kvæmt er ekki rétt að ræða hér í smáatriðum. Við þurfum að eiga þrautþjálfað, vel búið og vel agað lögreglulið sem með árangursríkum vinnubrögðum og fágaðri framkomu ávinnur sér Nýkomið mikið úrval reyrhúsgagna, sófar, stólar, borð og fleira. Gjafavörur í úrvali SUnflRHÚS Hf. Háteigsvegi 20, Reykjavík. Sími 12811 Öryggi sjónvarps, út- varps, almannavarna, sjúkrahúsa og Alþingis þarf að tryggja langt- um betur en nú er gert. Þessar stofnanir og margar fleiri eru þjóð- inni mikil vægar og á áhættutímum gegna þær lykilhlutverki. Sendiráð okkar erlend- is eru í vaxandi hættu og ekki ólíkleg skot- mörk öfgamanna. Þar þarf að gera átak án tafar. traust og virðingu. Gott samstarf lögreglu og almennings er ómetan- legt. Ljóst er að verkefni lögregl- unnar munu aukast og breytast á næstunni og þá má ekki skorta fé eða mannafla. Við eigum að nota okkur ein- angrun landsins og þá stjóm sem hægt er að hafa á samgöngum til að halda óæskilegu fólki í burtu. Gestrisni er eitt, undirgefni við út- lendinga er annað. Sjálfsagt er að taka upp kvöð um vegabréfsáritan- ir og eiga sem best samstarf við Interpol og yfirvöld í öðrum löndum. Einhverjir munu óttast að vega- bréfsáritanir dragi úr ferðamanna- straumnum. Það held ég verði óverulegt, sérstaklega ef sendiráð okkar — og jafnvel flugfélögin — veita góða þjónustu á þessu sviði. Nú á tölvuöld er það einfalt mál. Og þegar til lengri tíma er litið munu margir ferðamenn velja Is- land m.a. vegna þess að það er öruggt. Menn standa agndofa eftir að- gerðir Sea Shepherd. Þó má í raun segja að við höftim sloppið vel. Þrátt fyrir allt tal um að stofna ekki mannslífum í hættu getur slíkum öfgamönnum allt eins dottið í hug að koma fyrir sprengju t.d. í sjávar- útvegsráðuneytinu. Og tæpast væri vaktmaður hvalbátanna til frásagn- ar ef hann hefði komið að spellvirkj- unum við iðju sína. Við skulum líta á refsiaðgerðir Sea Shepherd-manna hér sem heimaverkefni. Eitthvað til að rýna í og læra af. í rauninni skiptir ekki öllu hvort glæpamennimir nást. Málið er að sjá til þess að sagan endurtaki sig ekki, e.t.v. með mun alvarlegri afleiðingum. Með þvf að nýta okkur einangrun landsins, fámenni þjóðarinnar og þá þekkingu sem hér er til á örygg- ismálum eigum við alla möguleika á að halda íslandi eins öruggu og það hefur verið til þessa. Það hlýtur að verða verðugt markmið. Höfundur er forstjóri öryggis- þjónustunnar Vara. (fi) Husqvarna UPPWmAVÉLAR Q 3 - 30 3 V\ Ki . 3 1.5 13 stg r. EC * 21 ( i Kr . 3 >.8i »5 Jtg Góð greiðslukjor Hvoðerheimili dn ©Husqvama? Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 13* 91-35200 MIKIÐ ÚRVAL AUKAHLUTA Sætaáklæði 9.980 kr. Gólfmottur frá 2.485 kr. Strípur (Corolla, Tercel) frá 3.200 kr. Hreinsiefnabakki 893 kr. Mælaborðsbakki (Hiace) 450 kr. TOYOTA VARAHLJUTIR NÝBÝLAVEGI8 200 KÓPAVOGUR SIMI: 91-44144

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.