Morgunblaðið - 25.11.1986, Page 33
Til heiðurs Franco
Hópur falangista á Spáni heilsar með fasistakveðjunni á úti-
fundi, sem fram fór i Madrid í gær til þess að minnast þess, að
11 áru voru þá liðin frá dauða Franciscos Franco hershöfðingja,
einræðisherra Spánar í áratugi.
Kanada:
Lögreglurannsóki^vegna
skemmdarverka á Islandi
Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum
KANADÍSKA ríkislögreglan i hefðu óskað eftir rannsókn skömmu
Vancouver rannsakar nú hvort
skemmdarverkin á íslandi 9. nóv-
ember síðastliðinn varði á
einhvern hátt við kanadísk hegn-
ingarlög. Opinberir aðilar vilja
ekki staðfesta að lögreglurann-
sóknin beinist að Paul Watson
og Sea Shepherd samtökunum,
en sjálfur efast Watson ekki um
að svo sé.
Fréttaritari Morgunblaðsins
ræddi við Brian Wiseman lögreglu-
foringja í Vancouver í British
Columbia-fylki á vesturströnd
Kanada. Þar býr Paul Watson tals-
maður Sea Shepherd samtakanna,
sem hafa lýst ábyrgð á skemmdar-
verkunum á hendur sér.
Brian Wiseman sagði að yfirvöld
dómsmála í British Columbia-fylki
eftir að fréttir bárust af skemmdar-
verkunum. Lögregluforinginn
kvaðst ekki geta svarað því hvort
íslensk stjómvöld hefðu óskað eftir
þessari lögreglurannsókn, hvaða
lögbrot væri um að ræða og vildi
ekki nefna einstaklinga eða samtök
sem rannsóknin beindist að.
Paul Watson tjáði fréttaritara
Morgunblaðsins að við þessu hefði
mátt búast, samt hefði lögreglan
ekki haft beint samband við sig og
hann búist ekki við að verða hand-
tekinn eða ákærður. „En þeir vita
hvar mig er að finna og ég mun
mæta í yfírheyrslur eða réttarhöld,
ef þess er óskað. Ég tel að það
hafí verið rétt að vinna skemmdar-
verkin á íslandi, iðrast einskis og
mun ekki fara huldu höfði," sagði
Paul Watson.
Watson taldi litlar líkur á að
framsalssamningur milli Kanada og
íslands gilti i þessu máli. í þeim
samningi eru tilgreindar hugsanleg-
ar ástæður fyrir framsali. Hann
sagði að líklega kannaði kanadíska
lögreglan að auki, hvort hægt væri
að sanna á hann glæpsamlegt sam-
særi um að vinna skemmdarverk.
Watson kvaðst viss um að sími sinn
væri hleraður og sagði að sér þætti
undarlegt, að bæði kona sín og 6
ára dóttir hefðu að undanfömu ve-
rið vaktaðar af mönnum sem að
líkindum væru lögreglumenn.
Salan á frönskum ríkis-
„Styð sjálfstætt og
óháð ríki í Afganistan“
- seg'ir leiðtogi Sovétríkjanna
Nýju Delí, AP.
MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi fólk, sem er vinveitt okkur,“ sagði
Sovétríkjanna, sagði í gær að Gorbachev í viðtalinu. „Við ætlum
hann styddi sjálfstætt og óháð alls ekki að vera þar að eilífu og
afganskt ríki og kvað Sovét- ég tel að hvorki afganska þjóðin,
menn ekki hafa í hyggju að né stjómin, tæki það í mál.“
hersetulið yrði landinu til fram-
búðar.
„Við höfum ekki áætlanir á
pijónunum um útþenslu," sagði
Gorbachev í viðtali við indverska
blaðamenn í Moskvu. Viðtalið var
sýnt í indversku sjónvarpi á
sunnudag.
Gorbachev fer í fjögurra daga
opinbera heimsókn til Indlands í
dag.
„Við viljum fínna pólitíska
lausn á málum Afganistan," sagði
Gorbachev.
„Við samþykktum að koma til
hjálpar um tíma til að aðstoða
Gorbachev sagði að núverandi
stjómvöld hefðu gert margt til að
bæta félagslega stöðu þjóðarinn-
ar. Hann kvaðst þess treysta á
það að viðræðumar, sem Samein-
uðu þjóðimar hafa milligöngu um,
myndu varða leiðina að viðunandi
lausn ef bæði Pakistanar og
Bandaríkjamenn sýndu í verki
vilja til friðar.
Gorbachev mun ræða við Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, í heimsókn sinni. Gera má
ráð fyrir því að þessar viðræður
hafi áhrif á hvort Gorbachev
ákveði að framlengja einhliða til-
raunabann með kjamorkuvopn.
V-þýsk skýrsla um mengun Norðursjávar:
Óbætanlegt tjón
á öllu lífríkinu
Bonn, Vestur-Þýskalandi og Basel, Sviss.
RÍN og aðrar stórár bera aðeins
lítillega minni eiturmengun út í
Norðursjó en á 8. áratugnum og
Dettifoss
losar síld
í Ábo
Helsinki, frá Lars Lundsten,
fréttaritara Morgunbladsins.
DETTIFOSS affermdi yfir 5.000
tunnur af íslenskri síld í hafnar-
borginni Ábo á suðvesturhorni
Finnlands á föstudaginn. Síldin
er aðallega ætluð í jólasölu, en
finnskum kaupmönnum þykir
mjög brýnt að geta boðið við-
skiptavinum íslenska síld i
jólamat.
Innflytjendur telja að meiri gæði
síldarinnar hafi í för með sér að
sala aukist frá því í fyrra. Þá hafa
verið settar reglur sem skylda menn
að gefa upp á umbúðum, hvort um
er að ræða innlenda Eystrasaltssíld
eða „alvöru" síld frá íslandsmiðum.
ógnunin við lifriki sjávarins er
engu minni en þá, að þvi er fram
kemur í vestur-þýskri skýrslu,
sem birt var í gær.
í skýrslunni, sem unnin var á
vegum vestur-þýsku stjómarinnar,
segir, að frá árinu 1976 hafí ástand-
ið lagast einungis að því er varðar
eiturefnið DDT, svo að orð sé á
gerandi.
„Engin merkjanleg breyting hef-
ur orðið á hlutfallslegu magni
annarra klórblandaðra kolvatns-
efna, þó að mengun frá stórám eins
og Rín hafí minnkað lítillega," sagði
Albert Probst, sem fer með rann-
sóknarmálefni á vegum vestur-
þýsku stjómarinnar, á fundi með
fréttamönnum.
„Ef engin breyting verður hér
á, til hins betra, óttumst við, að
óbætanlegt tjón verði óhjákvæmi-
lega á öllu lífríki Norðursjávarins."
Enn eitt mengunarslysið varð
opinbert í Sviss í gær, þegar efna-
gerðarfyrirtækið Hoffmann La
Roche tilkynnti um eiturvökvaleka
í verksmiðju í Sisseln í nágrenni
Basel. Er þetta í fímmta sinn á ein-
um mánuði, sem verksmiðja í eigu
sama fyrirtækis tilkynnir megnun-
aróhapp.
fyrirtækjum hófst í gær
ParÍB, AP.
MIKIL eftirspurn varð í gær eft-
ir hiutabréfum i franska stórfyr-
irtækinu Saint-Gobain, en þá var
riðið á vaðið með sölu hlutabréfa
í fyrirtækjum í eigu franska
ríkisins. Var þetta fyrsti áfang-
inn í mikilli áætlun, sem stjórn
borgaraflokkanna undir forystu
Jacques Chirac forsætisráðherra
hefur látið gera, i því skyni að
breyta mörgum rikisfyrirtækjum
i einkafyrirtæki á ný.
Undirtektir almennings þóttu fara
fram úr öllum vonum í gær og fyrir-
spumum og pöntunum rigndi inn
til verðbréfasala og banka. Salan á
Saint-Gobain á að ná til 70% af
hlutabréfum fyrirtækisins og mun
hún standa yfír í tvær vikur. Fyrir-
tækið er hið stærsta í sinni röð í
Frakklandi á sviði glers og bygging-
arvara og sá árangur, sem næst
við sölu hlutabréfanna þar nú, á
örugglega eftir að gefa mikla
vísbendingu með tilliti til sölu á
öðrum ríkisfyrirtækjum.
Til þess að gera þessi hlutabréf
gimilegri fyrir kaupendur, hefur
stjómin gripið tilýmiss konar ráð-
stafana. Þannig fá kaupendur
skattafrádrátt, hagstæða greiðslu-
skilmála og jafnvel aukahlutabréf
eftir ákveðinn tíma, ef þeir eiga
hlutabréfín nógu lengi.
Alls em um 65 fyrirtæki á þeim
lista, sem franska stjómin hyggst
breyta í einkafyrirtæki á ný. Sum
þeirra vom þjóðnýtt skömmu eftir
heimsstyijöldina síðari, en önnur
eftir að jafnaðarmenn komust til
vaida í Frakklandi eftir kosninga-
sigur þeirra 1981.
Þau tvö fyrirtæki, sem seld verða
næst - sennilega snemma á næsta
ári - em Paribas-bankinn og trygg-
ingafyrirtækið Assurances Genera-
les de France. Ein af sjónvarps-
stöðvum ríksins, TFl, verður
væntanlega einnig sett á markaðinn
á næsta ári.
Eftirmáli
regndropanna eftir
Einar Má Guð-
mundsson.
„Frásagnarsnilld og
heimssköpun."
Þjóðviljinn.
„Kröftugur skáldskap-
ur og mögnuð orðlist
bera uppi þessa
sögu.“
Helgarpósturinn.
Góð bók
W 1/1
Einar Már Guðmundsson
EFTIRMALI
REGNDROPANNA