Morgunblaðið - 15.03.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
Hefðum aldrei
komist í land
- segir Bergþór Ingibergsson,
stýrimaður á Barðanum
Ólafsvík, frá Helga Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
„ÞETTA gekk eins og í lygasögu. Við lítum á þetta sem meiri-
háttar björgunarafrek hjá þyrluáhöfninni," sagði Bergþór
Ingibergsson, stýrimaður á Barðanum, þegar Morgunblaðsmenn
hittu hann og sex félaga hans í slysavarnarhúsinu Mettubúð í
Ólafsvík í gærmorgun.
Skipvetjar á Barðanum voru
nývaknaðir þegar báturinn
strandaði. Þeir voru í morgunmat
og ætluðu að fara að draga netin
með morgninum. Bergþór sagðist
ekki vita um orsakir óhappsins,
það kæmi í ljós við sjóprófin.
Bergþór sagði: „Báturinn lá á
stjómborðshliðinni uppi í klettun-
um og hallaði 70 eða 80 gráður.
Við vorum allir í þvögu inni í
kortaklefanum inn af stýrishús-
inu. Stýrishúsið var opið og gekk
sjórinn þar í gegn og annað hvert
brot gekk yfir okkur þannig að
við vorum allan tímann meira eða
minna í sjó. Við gátum ekki ann-
að gert en beðið. Ekki voru neinar
aðstæður til að taka við línu úr
landi. Við sáum björgunarsveitar-
mennina í landi, en gátum ekkert
gert.
Eini möguleikinn var að komast
í þyrluna. Þyrlumönnunum tókst
að slaka línunni beint niður um
brúardymar og í hendumar á
okkur. Síðan kom björgunarstóll-
inn og þeir hífðu okkur upp, einn
og einn í einu. Björgunin gekk
ótrúlega vei.“
Bergþór sagði að með þessari
björgun hefði þyrla Landhelgis-
gæslunnar sannað gildi sitt
rækilega í þeima huga. „Við höfð-
Morgunblaðið/RAX
Sjö af nfu skipveijum af Barðanum GK 475 f Mettubúð í Ólafsvík um hádegisbilið í gær, laugar-
dag. Sitjandi eru frá vinstri: Friðfinnur Hallgrímsson, Hafliði Þorsteinn Brynjólfsson, Ólafur
Siguijónsson, Bergþór Ingibergsson stýrimaður og Þorlákur Halldórsson. Standandi frá vinstri eru
Eiríkur Ingvarsson og Sævar Ingi Pétursson. Skipstjórinn Eðvald Eðvaldsson fór með þyrlunni til
Reykjavíkur og Sigursteinn Smári Karlsson var kominn í heimahús í Ólafsvík.
um ekki þrek til að taka við neinu
og hefðum ömgglega ekki komist
allir í land, líklegast enginn okk-
ar. Þetta var orðin spuming um
hvað við héldum lengi út. Bátur-
inn gat brotnað hvenær sem er
og stýrishúsið farið."
Skipverjar af Barðanum vom í
besta yfirlæti í slysavamafélags-
húsinu Mettubúð í Ólafsvík fram
yfir hádegið f gær. Ætluðu þeir
suður eftir hádegið með flugvél..
Þeir vom orðnir hressir, hrollurinn
farinn úr þeim og vildu þeir koma
á framfæri þakklæti til allra
björgunarmanna, sérstaklega
þyrluáhafnarinnar og björgunar-
sveitarmanna.
„ÉG hefði ekki viljað missa af að sjá svipbrigðin á fyrsta mannin-
um þegar hann kom upp í króknum og eftir að hann var kominn
inn í þyrluna og orðinn öruggur. Það er ólýsanlegt að sjá breyt-
inguna frá angistinni í öryggið,“ sagði Kristján Þ. Jónsson, einn
úr áhöfn Landhelgisgæsluþyrlunnar, sem bjargaði 9 manna áhöfn
af Barða GK sem strandaði vestarlega á Snæfellsnesi í gærmorg-
un.
Morgunblaðið/Þorkell
Áhöfn TF-Sif við þyrluna. Frá vinstri eru Páll Halldórsson flugstjóri, Hermann Sigurðsson flugmað-
ur, Guðmundur Björnsson læknir, Sigurður Steinar Ketilsson stýrimaður og Kristján Þ. Jónsson
sigmaður.
Varðskipið Óðinn var á laugar-
dagsmorguninn á leiðinni í var við
Rif á Snæfellsnesi með Óskar
Halldórsson RE í togi en skipið
hafði fengið eitthvað í skrúfuna
og var vélarvana. Varðskipið fékk
þá neyðarkall frá Barða GK-475
sem var kominn upp í kletta norð-
urundir Hólahólum á Snæfellsnesi.
Óðinn tilkynnti stjómstöð Land-
helgisgæslunnar um strandið og
klukkan 6.47 hafði áhöfnin á þyrl-
unni TF-Sif verið kölluð úr. í
áhöfninni voru Páll Halldórsson
flugstjóri, Hermann Sigurðsson
flugmaður, Sigurður Steinar Ket-
ilsson stýrimaður, Kristján Þ.
Jónsson sigmaður og Guðmundur
Bjömsson læknir.
Þyrlan var komin í loftið klukk-
an 7.31 og á þeim tíma hafði
vamarliðið á Keflavíkurflugvelli
verið látið vita en þyrla þaðan
komst ekki í loftið fyrr vegna óveð-
urs og ísingar yfir Keflavík. TF-Sif
var komin á strandstaðinn klukkan
8.13.
„Aðkoman var ekki glæsileg því
báturinn var á hliðinn,. skorðaður
milli kletta og sjóimir gengur yfír
Björgunarsveitimar frá Ól-
afsvík, Hellissandi og Breiðuvík
vom kallaðar út kl. 7.15 og vom
þær komnar á strandstað hálftíma
síðar. Háir hamrar em þama allt
í kring og í gærmorgun var þama
hann og ekkert lífsmark að sjá,“
sagði Páll Halldórsson í samtali
við Morgunblaðið. „Björgunar-
sveitarmenn stóðu á klettaveggn-
um en líklega engin leið að koma
fluglínutækjum að. Við flugum
nokkra stund yfir og könnuðum
allar aðstæður. Báturinn lá á hlið-
inni og möstrin vom það neðarlega
að við vomm hræddir um að þau
myndu slást upp ef hann rétti sig.
Við vomm búnir að fá tilkynn-
ingu um að nokkrir menn væm
komnir upp í fjöru en það reyndist
svo vera lóðabelgir. Eftir nokkrar
mínútur sáu Sigurður og Kristján
mann veifa inni í brúnni svo við
tókum til starfa. Við settum lækn-
inn í land þar sem hann kom sínum
útbúnaði fyrir og bjó sig undir að
taka á móti mönnunum. Við kom-
um á sambandi með svokallaðri
tengilínu og tók maður á móti
henni í brú bátsins; hann hefur
líklega staðið á hurðarkarmi í
brúnni. Sigurður sendi björgunar-
lyklquna niður og hann sá á eftir
lyklq'unni niður og inn í brú. Síðan
gekk þetta eins og hann væri á
skaki."
haugasjór, norð-norðvestan 7 til
8 vindstig, að sögn Emanúels.
Engin hreyfing sást um borð —
ekkert lífsmark — í um það bil
hálftíma. Mannlaus björgunarbát-
ur var á floti hjá skipinu. Þetta
„Mennimir vom allir í herbergi
skipstjórans og það var mjög erfitt
að koma björgunarlykkjunni að,“
sagði Sigurður Steinar við Morg-
unblaðið. „Þó svo að við höfum
æft hífingar við allar mögulegar
aðstæður höfum við aldrei gert
okkur grein fyrir að þessi staða
gæti komið upp, að hífa menn út-
um dyr á brú. Við höfðum sigmann
í þessari ferð sem við ákváðum að
nota ekki því við vildum ekki hætta
var vægast sagt ömurleg aðkoma.
Allt í einu sáum við skipstjóranum
bregða fyrir í einum glugganum
á stýrishúsinu. Um þetta leyti kom
þyrla Landhelgisgæslunnar. Við
sáum að þyrlan var eina leiðin.
Hún hífði alla skipveija í beint
úr stýrishúsinu, fyrst tók hún
fimm skipveija og síðan þá fjóra
sem eftir vom og flaug með þá á
iand. Skipveijar vom allir komnir
á land um kl. 8.30.
lífi eins manns í viðbót. Þama var
haugasjór með einhveiju versta
sjólagi sem við þekkjum en 6 fiski-
skip fyrir utan dældu olíu í sjóinn
og lægðu hann og það hefur haft
sitt að segja," sagði Sigurður.
Sigurður sagði að hlutir hefðu
verið að flækjast fyrir þeim og til
viðbótar hefði aldrei verið hægt
að sjá hvemig mennimir vom í
björgunarlykkjunni þegar þeir
komu í djnuar. Klukkan 8.51 var
búið að bjarga 6 mönnum um borð
í þyrluna og var þá farið með þá
í land þar sem Guðmundur Bjöms-
son hafði sett upp einskonar
heilsugæslustöð. Síðan vom þeir
þrír sem eftir vom sóttir og klukk-
an 8.58 var búið að bjarga síðasta
manninum.
„Þeir vom allir mjög kaldir og
hraktir, þar af var einn lífshættu-
lega kaldur og var fluttur á
Borgarspítalann. Guðsmildi að
enginn skyldi slasast þegar verið
var að ná þeim upp við þessar erf-
iðu aðstæður og raunar vom sumir
dálítið marðir . En þeir hefðu ekki
mátt vera meira en klukkutíma í
viðbót í köldu vatninu," sagði Guð-
mundur Bjömsson læknir í samtali
við Morgunblaðið.
Guðmundur sagðist hafa skoðað
alla skipveijana um leið og þeir
komu í land og metið hvaða með-
ferð þeir ættu að fá. Flestir vom
sendir í sjúkrahúsið í Ólafsvík en
skipstjórinn sem var verst á sig
kominn var fluttur til Reykjavíkur
og í Borgarspítalann og er nú úr
allri hættu. „Astæðan fyrir að
þetta tókst svona vel var sú að við
emm með mjög vel samæfða áhöfn
sem hefur æft svona björgunarað-
gerðir tvisvar til þrisvar í viku.
Og að auki emm við með gott
tæki,“ sagði Sigurður Steinar.
„Þama er að sannast að björgunar-
þátturinn er að verða aðalverksvið
og markmið Landhelgisgæslunnar
og þessi björgun sýnir að okkur
er treystandi fyrir honum. Við
Páll Halldórsson vomm valdir í
þyrlunefnd á sínum tíma og þá
höfðum við orðið fyrir miklu áfalli
þegar TF-Rán fórst og gerðum
okkur grein fyrir að ef við fæmm
af stað aftur kostaði það fómir.
En hér hefur hugsjónin dregið
okkur áfram. Við emm ánægðir
með þetta tæki sem við höfum og
þær æfingar sem við höfum farið
í en framtíðarsýnin er að fá tvær
stórar Super Puma þyrlur með
afísingartækjum og hafa aðra
þeirra úti á landi, því þyrlan okkar
er of lítil fyrir þetta land,“ sagði
Sigurður Steinar Ketilsson að lok-
um.
„Sáum ekkert lífsmark um
borð fyrsta hálftímann“
- sagði formaður Sæbjargar í Olafsvík um aðkomuna á strandstað
„AÐSTÆÐUR til björgunarstarfa voru mjög erfiðar og hefði
björgun ekki tekist þarna án þyrlu Landhelgisgæslunnar. Skipið
lá á stjórnborðshliðinni og vegna sjógangs komust skipveijar
ekki út úr stýrishúsinu," sagði Emanúel Ragnarsson, formaður
björgunarsveitarinnar Sæbjargar í Ólafsvik.
Björgnn skipbrotsmanna af Barðanum
Ólýsanlegt að sjá breytmguna
frá angistinni yfir í öryggið