Morgunblaðið - 15.03.1987, Síða 51
MORGÚWBLAÐlS. SÚNNtlDÁGllR 15. MÁRZ 1987
51
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Tryggingafélag
Framtíðarstarf
Tryggingafélag óskar að ráða ritara í sölu-
deild og afgreiðslu strax. Nauðsynlegt er að
viðkomandi hafi góða ensku- og vélritunar-
kunnáttu ásamt þekkingu á vinnu við tölvuskjá.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf ásamt
öðru sem máli kann að skipta sendist auglýs-
ingadeild Mbl. merktar: „T — 5497" fyrir
21/3 1987.
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri óskast fyrir nýtt fisk-
vinnslufyrirtæki á Vestfjörðum. Fyrirtækið er
að hefja veiðar og vinnslu á kúfiski til útflutnings.
Framkvæmdastjórinn þarf að sjá um að koma
rekstrinum af stað og sjá síðan um hann.
Til greina kemur að ráðningin sé til skamms
tíma meðan verið er að koma rekstrinum í
gang.
Starfið er krefjandi og æskilegt að umsækj-
andi hafi nokkra reynslu í útgerð og fisk-
vinnslu.
Góð laun eru í boði ásamt húsnæði á staðnum.
Umsóknir sendist til stjórnar Bylgjunnar hf.,
c/o Byggðastofnun, Rauðarárstíg 25,
105 Reykjavík, fyrir 28. mars 1987.
Símavarsla
Okkur vantar starfsmann til símavörslu hálfan
daginn.
Við leitum að: Snyrtilegum, liprum starfs-
manni sem á auðvelt með að umgangast fólk.
í boði er: Góð vinnuaðstaða og skemmtilegt
andrúmsloft hjá vaxandi fyrirtæki.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
okkar að Nýbýlavegi 16, Kópavogi.
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
nvbvlavh'v v • »c BO' 59* ♦ >o;'kopavogu®' • «t;;
n i
Eldri starfskraftur
óskast til skipulags- og skrifstofustarfa í veit-
ingahús, hluta úr degi.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „X — 5235".
Fiskeldi
Tvítugur Skoti óskar eftir vinnu við fiskeldi
hér á landi. Hann hefur 3ja ára reynslu sem
eldismaður við eldisstöð í Skotlandi. Hefur
meðmæli frá fyrri vinnuveitanda.
Upplýsingar í síma 39705 og 93-7682.
Trésmíði
Geri tilboð í uppslátt á húsum og hverskonar
aðra trésmíðavinnu. Yfir 20 ára reynsla.
Upplýsingar milli kl. 9.00-12.00 og 17.00-
19.00 alla daga í síma 27053.
Rafmagn
Viljum ráða traustan mann til uppsetninga
og viðhalds á öryggiskerfum.
Við leitum að manni með góða undirstöðu-
menntun í rafmagnsfræði og áhuga á
smáspennubúnaði.
Umsækjendur þurfa að hafa góða ensku-
kunnáttu, hreint sakavottorð og geta unnið
sjálfstætt.
Umsóknir, ritaðareigin hendi með upplýsing-
um um menntun og starfsreynslu, sendist í
pósthólf 1101 121 Reykajvík.
Vari, öryggisþjónusta.
Aukavinna
— kynningar
Fyrirtækið Ný markmið sem sérhæfir sig í
vörukynningum og markaðsráðgjöf óskar
eftir fólki til kynningastarfa í verslunum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Vinnutími er
breytilegur en þó alltaf seinni part dags nema
á laugardögum.
Nánari upplýsingar í símum 20980 og 20984
mánudaginn 16/3 frá kl. 13.00-17.00.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu, Brautarholti 8, 2. hæð.
t
S
/
Brautarholti 8,
sími 20984.
„Sjálfstæður
atvinnurekstur“
Vegna mikillar eftirspurnar á steypu getum
við bætt við sjálfseignarbílstjórum. Umsókn-
ir óskast sendar til Oss hf. fyrir 20. mars nk.
SEM STENST
Sölumenn
Heildverslanir
1. Sala á rafmagnsvörum til endurseljenda.
Sölumaðurinn: Skipulagður og framsæk-
inn, þægileg og örugg framkoma. Reynsla
af sölustörfum og enskukunnátta nauðsyn-
leg. Menntun á verslunarsviði æskileg.
2. Sala á vefnaðarvörum til stofnana, hót-
ela o.fl.
Sölumaðurinn: Þarf að geta starfað sjálf-
stætt og skipulega. Reynsla af sölu til
stofnana og fyrirtækja æskileg.
3. Sala á farsímum.
Sölumaðurinn: Hæfileiki og geta til að
starfa sjálfstætt að sölumálum. Menntun
átæknisviðit.d. símvirki. Enskukunnátta.
4. Sala á postulíni, gler- og gjafavörum til
endurseljanda.
Sölumaðurinn. Vilji, þrek og geta til að
byggja upp markað. Reynsla af sjálf-
stæðri sölumennsku nauðsynleg.
Lagermenn
1. Heildverslun í Sundaborg.
Lagermaðurinn: Traustur og vinnusamur
í leit að framtíðarstarfi. Æskilegur aldur
30-45 ára.
SUÐURHRAUNI 2,
210 GARÐABÆ,
SÍMAR 651445 og 651444.
Atvinnurekendur
starfsmannastjórar
Við höfum fengið fjölmarga einstaklinga á
skrá. T.d. fólk vant
almennum skrifstofustörfum,,
bankastörfum,
fjármálastjórn,
fjölmiðlastörfum,
framkvæmdastjórn,
kennslu,
gagnaúrvinnslu,
innflutningi,
markaðsmálum,
ritarastörfum,
o.fl.
Notum ef með þarf áhugsviðsábendið SCII
og ýmis hæfnispróf til að tryggja góða ráðn-
ingu.
radcjof og fwoningar
2. Framleiðslufyrirtæki á Ártúnshöfða.
Lagermaðurinn: Lipur og drífandi. Tekur
einnig þátt í sölu. Æskilegur aldur 20-25
ára.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu okkar
fyrir 21. þ.m.
Starfsmannastjórnun
Ráóningaþjónusta
FRum
Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
Einkaritari
Málflutningsskrifstofa vill ráða einkaritara
fyrir einn af lögmönnum hennar.
Upphafstími starfs samkvæmt samkomulagi.
Starfssvið skjalavarsla, aðstoð við upplýs-
ingaöflun, skipulagning funda og skyld
verkefni.
Góð almenn menntun áskilin ásamt góðri
íslenskukunnáttu. Tungumálakunnátta nauð-
synleg. Góð vinnuaðstaða. Álitleg laun í boði.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
okkar í algjörum trúnaði.
QiðntTónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKIAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Engjateigi 7,
sími 689099.
Nanna Christiansen
Ágústa Gunnarsdóttir
Þórunn Felixdóttir
Efnafræðingur
Opinber stofnun óskar eftir að ráða efna-
fræðing eða starfsmann með svipaða
menntun til starfa við mjög fjölbreytilegt og
áhugaverð verkefni.
Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðn-
ir að leggja inn upplýsingar um menntun og
fyrri störf á afgreiðslu blaðsins merkt: „Efna-
fræðingur — 825".
Rafmagnstækni-
fræðingur eða
verkfræðingur
Óskum eftir að ráða rafmagnstæknifræðing
eða verkfræðing til starfa sem fyrst. Um er
að ræða framtíðarstarf.
Starfið er fólgið í umsjón og þjónustu við
verkefni á sviði tölvustýringa.
Um er að ræða traust innflutningsfyrirtæki.
Við bjóðum góð laun fyrir áhugasaman ein-
stakling.
Umsóknum ásamt upplýsingum skal komið
til Morgunblaðsins merkt: „Tl — 1002".