Morgunblaðið - 15.03.1987, Side 64
SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Hið íslenska
kennarafélag:
Verkfall á
miðnætti ef
ekki semst
VERKFALL Hins islenska kenn-
arafélags kemur til fram-
kvæmda á miðnætti í nótt,
aðfaranótt mánudags, hafi samn-
ingar miili þess og rikisins ekki
tekist áður. Fjögurra manna und-
irnefnd samningsaðila sat á
fundum í gær, en ókunnugt var
um gang samningaviðræðnanna
þegar Morgunblaðið hafði fréttir
síðast.
Ef til verkfalls kemur leggja rúm-
lega 1100 kennarar niður vinnu,
einkum í framhaldsskólum landsins,
en einnig í grunnskólum. Má búast
við að öll bókleg kennsla á fram-
haldsskólastigi leggist niður og
einhver röskun verði á starfí grunn-
skólanna. Um 40 framhaldsskólar
eru i landinu með um 17 þúsund
nemendur.
Götur í Reykjavík illa
farnar eftir nagladekk:
Barðinn GK lemst við grjótið á strandsstað um hádegisbilið í gær. orgun 1
Spá Byggðastofnunar um þróun loðdýraræktar til 1996:
Framleiðsluverðmæti loðskimia
gæti orðið rúmir 3 milljarðar
- Miðað er við sama vöxt greinarinnar og verið hefur
Malbikunarvinn-
an bíður eftir
skólakrökkunum
ÞRÁTT fyrir að götur i
Reykjavík séu margar illa farnar
eftir veturínn og djúp hjólför
komin i malbikið víða, verður
varla hafist handa við að gera
við göturnar og malbika fyrr en
í fyrsta lagi i maí. Ástæðan er
sú að malbikunin byggist á sum-
arvinnu skólafólks.
Ólafur Guðmundsson yfírverk-
fræðingur hjá gatnamáladeild
Reykjavíkur sagði í samtali við
f Morgunblaðið að víða í borginni
væru komin djúp hjólför í malbik.
Ökumenn hefðu ekið á nagladekkj-
um í allan vetur, en enginn snjór
verið til að hlífa götunum.
Ólafur sagði að malbikunarstöðin
færi ekki í gang fyrr en í fyrsta
lagi um mánaðamótin apríl—maí,
því malbikunarvinnan byggðist
mjög á skólafólki; yfír veturinn
væri sáralítið unnið við malbikun.
Síðan réðu fjárframlög því hvað
hægt væri að gera við mikið.
VERÐMÆTI loðskinnaf ram-
leiðslu tslendinga verður á fjórða
milljarð króna árið 1996, ef vöxt-
ur loðdýraræktarinnar verður
jafn mikill og verið hefur síðustu
árin. Þá yrðu f ramleiddar 2 millj-
ónir minkaskinna og tæplega 600
þúsund refaskinn. Þetta kemur
fram i skýrslunni „Loðdýrarækt
á íslandi", sem Byggðastofnun
gaf út fyrir skömmu.
Skýrslan er unnin af starfshópi
sem stjóm Byggðastofnunar skip-
aði að beiðni landbúnaðarráðuneyt-
isins til að endurskoða fyrri
áætlanir um uppbyggingu loðdýra-
ræktar í landinu. í skýrslunni er
þróun loðdýraræktarinnar lýst og
fóðurframleiðslu, afkomu hennar
og möguleikum. Einnig er gerð
áætlun um vöxt loðdýraræktarinnar
til ársins 1996.
í forsendum áætlunarinnar segir
að vöxtur loðdýraræktarinnar sé
mjög háður aðgerðum stjómvalda.
Ekki er talið nauðsynlegt að gera
sérstakar ráðstafanir til að greinin
vaxi, heldur að henni verði sköpuð
skilyrði til að vera rekin með hagn-
aði. Starfshópurinn er þeirrar
skoðunar að skortur á fjármagni,
ásamt arðsemi minka- og refarækt-
ar, muni ráða mestu um framgang
loðdýraræktarinnar á næstu árum.
Framboð á fískúrgangi muni einnig
skipta máli. Suma þætti í aðbúnaði
geti stjómvöld haft áhrif á, svo sem
fjármagn og kjör á því, rannsóknir,
leiðbeiningaþjónustu og fleira. Öðru
sé ekki í valdi neinna að stjóma,
og er skinnaverðið nefnt sem mikil-
vægasta dæmi um það, en það er
algerlega háð verðþróun á heims-
markaði.
í skýrslunni em gerðar tvenns
konar áætlanir fyrir hvora grein
loðdýraræktarinnar fyrir sig,
minka- og refarækt. Annars vegar
er reiknað með að greinamar haldi
áfram að vaxa með sama hraða og
þær hafa gert að undanfömu en
hinsvegar að jafnmörg dýr bætist
við stofninn á hveiju ári.
Ef fyrri spáin rætist í minkarækt-
inni yrðu komin upp 660 fjöl-
skyldubú árið 1996 með 450 þúsund
minkalæðum og árleg framleiðsla
yrði 2 milljónir skinna. Verðmæti
þess yrðu rúmlega 2 milljarðar. Nú
er minkur á 33 búum, samtals um
15 þúsund læður. Ekki em taldar
miklar líkur til að svona mikill vöxt-
ur verði í minkaræktinni, þó þróunin
að undanfömu hafi sýnt að hún er
fræðilega möguleg. Lægri spáin
gerir ráð fyrir 150 minkabúum með
100 þúsund læðum og að framleidd
verði 450 þúsund skinn á ári. Fram-
leiðsluverðmæti er áætlað tæplega
500 milljónir kr.
í hærri spánni fyrir refaræktina
er gert ráð fyrir að árið 1996 verði
komin 450 refabú með samtals
tæplega 90 þúsund læður. Skinna-
framleiðslan yiði samkvæmt því
560 þúsund skinn á ári, að verð-
mæti nærri 1,2 milljarðar króna. í
lægri spánni yrði refír- og bú helm-
ingi færri en gert er ráð fyrir í hinni
spánni og framleiðsluverðmætið um
600 milljónir kr.
Samkvæmt hærri spánum þyrfti
árleg fjárfesting í byggingum, búr-
um og fleiru, fyrir refa- og minka-
ræktina, að aukast úr 477
milljónum árið 1987 í 1.380 milljón-
ir árið 1995. Miðað við lægri
spámar yrði árleg fjárfesting 236
milljónir kr. öll þessi ár.
Byrjað á nýjum vegi yfir
Mýrdalssand á næsta ári
Alþingismenn Suðurlands
hafa í samráði við Vegagerðina
tekið ákvörðun um að hafist
skuli handa á næsta ári við
lagningu nýs vegar yfír Mýr-
dalssand, en endurskoðun
vegaáætlunar stendur yfir um
þessar mundir og fram til þessa
hefur ekki verið Jjóst hvort
gamli vegurinn yrði byggður
upp eða nýr lagður. Nýi vegur-
inn verður mun neðar á sandin-
um þar sem sandfok er minna
og snjóléttara.
Með þessari ákvörðun hefur
verið flýtt vegarlagningu yfír
Mýrdalssand, því nýr vegur var
ekki inni á vegaáætlun. I viðtali
við blm. Morgunblaðsins sagði
Helgi Hallgrímsson yfirverkfræð-
ingur Vegagerðarinnar að nýi
vegurinn yrði 6—8 km neðar á
sandinum f um það bil 40 metra
hæð yfir sjó, en gamli vegurinn
er í 100 m hæð yfír sjó. Nýi vegur-
inn verður nálægt Hjörleifshöfða,
en ástæðan fyrir því að vegurinn
verður færður eru mikil snjó-
þyngsli á gamla veginum og mikið
sandfok á öllum árstímum, en því
hafa fylgt skemmdir á bílum og
tíðar lokanir á veginum. Með því
að velja neðri leiðina við Hjörleifs-
höfða er miklu meiri möguleiki á
uppgræðslu og sandfokshættan
er á mun minni kafía, auk þess
sem þar er snjóléttara. Nýi vegur-
inn verður um 20 km langur,
svipað og núverandi vegur, og á
honum verður ein brú. Fram-
kvæmdir hefiast á næsta ári en
áætlað er að nýr Mýrdalssands-
vegur kosti um 70 millj. kr.
Vegurinn yfir Mýrdalssand hefur
um árabil verið einn erfíðasti spöl-
urinn á hringveginum.