Morgunblaðið - 10.04.1987, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1987
Framgangskerfi
í Háskóla Islands
Um nokkurra ára skeið hafa lekt-
orar við Háskóla Islands átt kost á
að flytjast í dósentsstöðu að loknu
5 ára starfi sem lektorar. Dóm-
nefndir hafajafnan fjallað um s'.íkar
stöðuhækkanir og metið hvort hlut-
aðeigandi uppfylli þær kröfur sem
gerðar eru um hæfni dósenta við
Háskólann. 1986 voru svo sam-
þykktar breytingar á lögum háskól-
ans er heimiluðu að flytja mætti
dósent í prófessorsembætti skv.
nánari ákvæðum í reglugerð. Há-
skólaráði var mikið í mun að sýna
í verki að hér yrði ekki um neins
konar sjálfvirkt launahækkunar-
kerfi að ræða og samþykkti því
býsna nákvæmar viðmiðunarreglur
sem dómnefndir skulu taka tillit til
er þær fjalla um hæfi manna til að
flytjast úr dósentsstöðu í prófess-
orsembætti.
Meginatriðin í þessum reglum
eru þau að dósentinn þarf að hafa
gegnt starfi sínu í a.m.k. 5 ár til
að geta komið til álita og er það
ákvæði raunar bundið í reglugerð.
Auk þess þarf hann að uppfylla til-
tekin skilyrði um lágmarksmennt-
un, hafa verið virkur í rannsóknum
og hafa gert grein fyrir niðurstöð-
um þeirra í vísindaritum, ritgerðum
og fyrirlestrum skv. nánari ákvæð-
um í viðmiðunarreglunum. Þá þarf
hann að hafa sinnt kennslu af kost-
gæfni og hafa tekið eðlilegan þátt
GJÖRÐU SVOVEU
FERSK
OSTAKAKA
A AUGABRAGÐI
Nú er leikur einn aö bera fram eigin
ostaköku ferska og freistandi.
Withworths hefur valið saman úrvals hráefni fyrir þig
- þú bætir aðeins mjólkinni og smjörinu við.
Enginn bakstur.
Kakan ertilbúin og bíður eftir því að bráðna átungunni.
KRISTJÁN O.
SKAGFJÖRÐ HF.
Hólmaslóð4, sími 24120, Rvk.
Pétur K. Maack
í stjórnunarstörfum í Háskólanum.
Þessi nýju ákvæði eru nú komin
til framkvæmda. Fyrstur til að flytj-
ast úr dósentsstöðu í prófessors-
embætti skv. þeim var Pótur K.
Maack, en hann varð prófessor hinn
1. desember sl.
Pétur K. Maack, verkfræði-
deild
Pétur er fæddur 1. janúar 1946.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1965, fyrrihlutaprófi í verkfræði frá
HÍ 1968 og prófi í vélaverkfræði
frá DTH í Kaupmannahöfn 1972.
Hann stundaði síðan framhaldsnám
í rekstrarfræðigreinum við DTH og
lauk licenciatsprófi 1975. Ritgerð
hans fjallaði aðallega um tækniþró-
un iðnfyrirtækja.
A vormisseri 1975 var Pétur
stundakennari við verkfræði- og
raunvísindadeild HI og jafnframt
ráðgjafi deildarinnar um rekstrar-
fræðinám í verkfræðiskor. Á sama
tíma var hann í hálfu starfi á Iðn-
tæknistofnun. Haustið 1975 var
hann settur dósent í rekstrarfræði.
Hann var skipaður í þá stöðu ári
síðar og hefur síðan gegnt því starfi
þar til hann var fluttur í prófessors-
embætti í sömu grein hinn 1.
desember 1986. Pétur var fyrsti
dósentinn við HI sem fluttur hefur
verið í prófessorsembætti sam-
kvæmt nýrri heimild í lögum, en
háskólaráð samþykkti viðmiðunar-
reglur um slíkan flutning á sl. ári.
Á síðustu árum hafa rannsóknir
Péturs einkum beinst að eftirtöldum
þremur viðfangsefnum:
1. Áhrif verðbólgu á tækniþróun
og fjárfestingar iðnfyrirtækja.
2. Tölvukerfi sem hjálpartæki
við ákvarðanir (decision support
systems).
3. Upplýsinga- og stjórnkerfi í
fiskvinnslu.
Um fyrst taida viðfangsefnið
hefur Pétur m.a. skrifað rannsókna-
skýrslu er nefnist „Inflation og
teknologisk udvikling". í tengslum
við þær rannsóknir samdi Pétur
einnig forrit (með nemanda sínum
Davíð Lúðvíkssyni) til að meta arð-
semi fjárfestinga (sbr. grein í
Iðnaðarmálum 1979). Um við-
fangsefni nr. 2 hefur Pétur einnig
skrifað rannsóknaskýrslu og nefnist
hún „Decision support systemer og
driftsteknik". Þar er m.a. reynt að
setja þessi tölvukerfi í samhengi við
svokölluð þekkingarkerfi (expert
systems) og reiknilíkön aðgerða-
rannsókna.
Viðfangsefni nr. 3 tengist vinna
Péturs að gæðastýringu og vinnslu-
eftirliti í frystihúsum. Hann hefur
átt þátt í þróun gæðastýringarkerf-
is sem nú er að breiðast út og
einnig samið sérstakt forrit (ásamt
Páli Jenssyni) til framleiðslustýr-
ingar (forritið MARVIN).
Auk þess sem nú hefur verið
talið hefur Pétur gert grein fyrir
niðurstöðum rannsókna sinna í
fjölda erinda og ritgerða og með
ýmiss konar ráðgjöf. Pétur hefur
kennt mikið á sínu sviði við HI frá
því hann réðst þangað til starfa og
raunar haft umsjón með kennslu í
rekstrarfræði innan verkfræðinnar
frá upphafi. Auk þess hefur hann
kennt í Danmörku og á ýmiss kon-
ar námskeiðum, m.a. á vegum
Stjórnunarfélags Islands og endur-
menntunamefndar. Þau námskeið
hafa einkum fjallað um framleiðslu-
stjórnun, gæðastýringu, birgðastýr-
ingu og verkefnisstjórnun.
Loks má geta þess að Pétur hef-
ur tekið mikinn þátt í ýmiss konar
stjórnunarstörfum og félagsstörf-
um, bæði innan Háskólans og utan.
Hann hefur t.a.m. verið skorar-
formaður í vélaverkfræðiskor
(1979—1981), í stjórn Verkfræði-
stofnunar Háskóla Islands
(1981—1985), setið í háskólaráði
sem fulltrúi Félags háskólakennara
o.s.frv. Hann hefur einnig tekið
virkan þátt í starfi Verkfræðingafé-
lags íslands og m.a. verið formaður
þess (1986-1987).
(Frá kynningarnefnd
Háskóla íslands)
Ný safnplata:
LÍFIÐ ER LAG
LÍFIÐ er lag nefnist ný safn-
glata sem Steinar hf. gefur út.
Á plötunni eru tólf vinsæl lög,
þar af níu flutt af íslenskum
flytjendum.
í fréttatilkynningu frá Steinum
hf. segir að fjögur laganna á safn-
plötunni eigi það sameijginlegt að
vera úr Söngvakeppni sjónvarps-
stöðva 1987, lögin Lífið er lag
með Model, Norðurljós með Eyj-
ólfi Kristjánssyni, Sofðu vært með
Diddú og Aldrei ég gleymi með
Ernu Gunnarsdóttur. Önnur
íslensk lög á plötunni eru Þyrnirós
með Greifunum, Átján rauðar rós-
ir sem Vormenn íslands flytja,
Skyttan með Bubba Mortens og
MX 21, en það lag er úr sam-
nefndri kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar. Þá er á plötunn.
lagið No Limit með Mezzoforte
og lagið Vopn og veijur í flutn-
ingi Varnaglanna, en það hefur
ekki verið gefið út á plötu áður.
Karlmannaföt kr. 5.500.-
Terylenebuxur kr. 995.-, 1.395.-,
1.595.- og ull/teryl./stretch 1.895.-
Gallabtucur kr. 795.- og 850.-
Plauelsbuacur kr. 745.- og 865.-
Sumarbolir nýkomnir frá kr. 235.-
Skyrtur, nœrföt o.fl. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðustíg22, síml 18250.
Góðan daginn!