Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 J Þúsundir á skíðum í Bláfjöllum: ÓHÆTT er að segja að margt hafi verið um manninn i Blá- fjöllum í gær enda veður hagstætt til skíðaiðkana, suð- austan gola eða kaldi, skýjað en bjart og eins stigs frost, eins og Þorsteinn Hjaltason, fólk- vangssljóri, orðaði það er blaðamenn heimsóttu Bláfjöll í gærmorgun. Þorsteinn sagði að ekki vantaði fólkið þegar veður væri gott. „Veturinn hefur verið tiltölulega mildur fyrir alla landsmenn, en ekki nógu góður til skíðaiðkana, að minnsta kosti ekki hér sunnan- iands. Ég frétti þó að Akureyring- ar uni glaðir við sitt.“ Morgunhanarnir fyrstir Morgunhressir borgarbúar voru mættir fyrstir manna í brekkurnar í BláQölium og alltaf bættist í hópinn er líða tók að hádegi. Stöðugur straumur bíla átti leið um Bláfjallaveginn og nokkrar rútur komu fullar af skíðafólki upp úr kl. 11.00. Þor- steinn sagði að vinsældir skíða- íþróttarinnar færu stöðugt vax- andi. Þó væri ákveðinn kjarni fólks, sem kæmi reglulega og hin- ir kæmu þegar sólguðinn léti ljós sitt skína. „Metaðsókn var hér á síðasta laugardag, fyrir viku. Þá skein sólin allan liðlangan daginn og var hér stöðugur straumur John Peterson og kona hans Christene ásamt börnum sínum Rebekku, Niel, Ian og Heather. plóg,“ sagði Sigrún Birna Haf- steinsdóttir, fjögurra ára Reykjavíkurmær. Hún sagðist hafa fengið skíðin sín í fyrra þeg- ar hún var þriggja ára. „Við mamma förum oft á skíði saman og mér finnst það ofsalega gam- an,“ sagði Sigrún Birna. fólks frá morgni til kvölds, ég held um 5.000 manns. í sólinni liggur engum á. Það skiptir engu máli hversu langar biðraðirnar eru — fólk er þá bara ekkert að flýta sér.“ Fjóla Jónsdóttir og Jakob Þorsteinsson Morgunbiaðið/Þorkeii Nýja barnalyftan vinsæl „Má bjóða ykkur upp á kaffi eða heitt kakó, blaðamenn?“ sagði Halldór Júlíusson, veitingamaður í Bláijöllum, og þáðu blaðamenn það með þökkum. Halldór sagði að mikil aukning hefði orðið í útleigu skíða undanfarið og væri nýbúið að kaupa 20 pör af barn- askíðum í viðbót til leigu. Þessa aukningu þakkaði hann nýju barnalyftunni, sem sett hefði ver- ið upp sl. sumar. Erum að leita að tóm- stundaiðju Þau hjón Jakob Þorsteinsson og Fjóla Jónsdóttir sögðu að þetta væri í annað sinn í vetur sem þau kæmu í Bláfjöll. „Við erum að reyna að finna okkur einhverja tómstundaiðju og ákváðum að prófa gönguskíðin. Jakob er vanur Góður skíðastaður John Peterson var í Bláfjöllum í fyrsta skipti í gær ásamt konu sinni Christene og fjórum börnum þeirra, Niel, Ian, Heather og Re- bekku, sem aðeins er eins og hálfs árs gömul. Þau voru öll hæstá- nægð með aðstöðuna, að eigin sögn, en þau sögðust vera tíðir gestir í skíðalöndum Utah-fylkis í Bandaríkjunum þar sem þau eiga heima. Þau voru komin alla leið frá Keflavíkurflugvelli þar sem John starfar hjá upplýsingaþjón- ustu Varnarliðsins og bjuggust þau fastlega við að heimsækja skíðalöndin aftur. Sigrún Birna Hafsteinsdóttir síðan í gamla daga, en ég er allt- af á rassinum," sagði Fjóla. Þau notuðu sér skíðaleiguna að þessu sinni og sögðust fá sér skíði seinna meir ef þeim líkaði skíðagangan. Lærði sjálf á skíði „Ég kann að beygja og fara í I sólinni liggur engum á Hugmyndir um innheimtu söluskatts í tolli: Tekjutap ríkisins yrði 8-10 milljarðar á ári - segir Víglundur Þorsteinsson formaður FII GREIÐSLA söluskatts af vör- um og hráefni í tolli og síðan virðisaukaskattur iðnfyrir- tækja af framleiðsluvörum, sem Júiíus Sólnes prófessor lýs- ir í grein í Morgunblaðinu í gær, myndi annaðhvort kosta ríkissjóð 8-10 milljarða á ári eða verða til að hækka vöru- verð til neytenda um 12-15% ef tekjur ríkisins eiga að halda sér við slíka kerfisbreytingu, að mati Víglundar Þorsteins- sonar, formanns Félags íslenskra iðnrekenda. í grein sinni segir Júlíus Sólnes að með nýjum lögum um tollkrít, þar sem veittur er 90 daga gjald- frestur, ætti að vera hægt að leggja söluskatt á í tolli án þess að hann íþyngi versluninni um of. 25% söluskattur á allar söluskatt- skyldar vörur svo og hráefni til iðnaðarins myndi skila svipuðum tekjum í ríkissjóð og núverandi kerfi um leið og innheimta sölu- skatts í tolli yrði bæði einfold og skilvirk og söluskattsvik yrðu úr sögunni. Til þess að koma til móts við iðnaðinn, sem þannig yrði gert að greiða söluskatt af aðföngum sínum, stingur Júlíus upp á að íslensk fyrirtæki í sam- keppnisiðnaði greiði áfram 25% söluskatt af framleiðsluvörum en geti dregið frá allan söluskatt sem þau hafa áður þurft að borga vegna aðfanga. Þegar Morgunblaðið leitaði álits Víglundar Þorsteinssonar á þessum hugmyndum sagði hann að kerfíð væri virðisaukaskatts- hugmyndin með þeirri nýjung að sleppa því að mestu leyti að inn- heimta skattinn. Ef kerfíð yrði framkvæmt samkvæmt orðanna hljóðan í greininni myndi þetta þýða að tekjutap ríkissjóðs yrði um 8-10 þúsund milljónir króna, eða um helmingur af tekjum af núverandi söluskatti. Víglundur sagði það einfaldlega vanþekkingu að halda því fram að þetta kerfi myndi skila jafn miklum tekjum í ríkissjóð með sömu söluskattsprósentu. Til þess þyrfti að hækka söluskattspró- sentuna í 45-50%, sem myndi þýða það að skatturinn legðist aðallega á almennar neysluvörur, þar sem allt hráefni og öll fjárfest- ingarvara á ekki að bera sölu- skatt. Að óbreyttu myndi þetta því hafa í för með sér verulega hækkun á neysluvörum til al- mennings, og í fljótu bragði virt.ist sú hækkun vera 12-15%. Morgunblaðið/Kr.Ben. Ómar Másson stýrimaður með lúsíferfiskinn sem kom í netin á Sigurði Þorleifssyni GK. Lifandi lúsífer í net Grindavík. SKIPVERJARNIR á Sigurði Þor- Ieifssyni GK fengu lifandi lúsífer í netin í siðasta róðri. Lúsífer er sjaldgæfur djúpsjávarfiskur og því mjög óvenjulegt að hann ná- ist lifandi, að sögn Ómars Mássonar stýrimanns. „Ég hafði samband víð Fiska- safnið í Vestmannaeyjum," sagði Ómar, „og þeir eru æstir í að fá fískinn. Þeir fengu einu sinni lif- andi lúsífer en hann drapst eftir viku. Ætli við fáum ekki þá hjá íslandslaxi hf. til að hjálpa okkur að halda honum lifandi þar til hann kemst til Eyja.“ Bjarni Sæmundsson segir í bók sinni, Fiskunum, að hann hafi gefið fiskinum þetta nafn með tilliti til útlitsins og ljósberans á höfðinu, en merkingin er kölski og ljósberi, en á ensku er fiskurinn kallaður fótboltafiskur því hann minnir á gamlan leðurfótbolta sem loft hefur lekið úr. Lúsífer er stuttur, hár og klunnalegur fiskur með feiknastórt höfuð og uppstæðan munn, með eygður með skúf af lýsandi öngum á löngum legg upp af höfðinu. Lífshættir lúsífers eru algerlega óþekktir, en vaxtarlag hans bendir til að þar fari botnfiskur. Von er til þess að Fiskasafnið í Vestmannaeyjum eignist nú lifandi lúsífer því sá sem skipveijamir á Sigurði Þorleifssyni höfðu í þvotta- karinu á dekkinu virtist sprækur. — Kr.Ben. Auglýsendur athugið MORGUNBLAÐIÐ kemur út á skírdag þann 16. apríl. Er það síðasta blað fyrir páska. Skilafrestur auglýsinga í skírdagsblað er þriðjudaginn 14. apríl kl. 16.00. Fyrstu blöð eftir páska koma út: Síðasta vetrardag 22. apríl, skilafrestur auglýsinga er miðvikudag 15. apríl kl. 16.00. Sumardaginn fyrsta 23. apríl, skilafrestur auglýsinga er þriðjudag 21. apríl kl. 16.00. Laugardaginn 25. apríl, kosn- ingadag, skilafrestur auglýsinga er miðvikudag 22. apríl kl. 16.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.