Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 72
Skákmótið í New York: Margeir vanní 4. umferð MARGEIR Pétursson vann andstæðing sinn í 4. umferð opna skákmótsins í New York á föstudag en Helgi Ólafsson gerði stutt jafntefli við bandaríska stórmeistar- ann Maxim Dlugy. Margeir hafði svart í skák sinni við íranska alþjóðameist- arann Shiraza sem er nú búsettur í Bandaríkjunum. Mar- geir fékk verri stöðu en þegar Shiraza teygði sig of langt snéri Margeir vörn í sókn og vann í 60 leikjum. Stórmeistaramir Smyslov, Seirawan og Portisch eru efstir og jafnir með_ 3,5 vinninga eftir 4 umferðir. A eftir þeim koma nokkrir skákmenn með 3 vinn- inga, þar á meðal Helgi Ólafs- son. Margeir Pétursson er með 2,5 vinninga. Fimmta umferð verður tefld í dag en í gær áttu skákmennirnir frí. Framfarir í eggjaframleiðslunni; Hænurnar farnar að verpa meira GÓÐUR árangur hefur náðst í eggjaframleiðslunni að undan- förnu með fugium af nýjum varphænsnastofni, sem fluttur var inn frá Noregi í fyrra. Fugl- ar af þessum stofni eru heilsu- hraustari en af gamla stofninum og verpa mun meira. Framleiðsl- an er því mun hagkvæmari en áður var. Nýi stofninn var fluttur inn til landsins fyrir P/2 ári og hafa fugl- ar af honum verið að koma inn í varpið undanfama mánuði. Þor- steinn Sigmundsson eggjabóndi í Elliðahvammi segir að varpprósenta nýja stofnsins hafi verið 90% frá áramótum, en að meðaltali um 55% hjá gamla stofninum á síðasta ári. Framleiðslan í Elliðahvammi muni aukist úr 60 tonnum í 100 á ári með tilkomú fugla af nýja stofnin- um, en kostnaðurinn svipaður. Þorsteinn segir að mikill fóður- kostnaður sparist, nú þurfi 2,2 kg fóðurs á móti 1 kílói af eggjum, en áður hefði þurft að nota 3,5 kg af fóðri til að framleiða kíló af eggjum. Sjá viðtal við Þorstein í Elliða- hvammi á blaðsíðu 16b. Veiðibann smábáta hafið ALLAR fiskveiðar smábáta undir 10 brúttólestum eru bannaðar yfir páskana eins og undanfarin ár. Bannið tók gildi klukkan 20 í gærkvöldi, laugardaginn 11. apríl. oggildirtil klukkan 10 árdegis þriðju- daginn 21. apríl nk. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þyrla Landhelgisgæslunnar við björgunaræfingar. Verið er að kenna notkun flotbjörgunarbún inga, sem komnir verða í flest íslensk fiskiskip fyrir árslok. Slysayarnaskóli sjómanna: 700 sjómenn hafa tekið þátt í námskeiðum í vetur UM 700 sjómenn hafa frá því um áramót tekið þátt í björgunar- námskeiðum og öryggisfræðslu Slysavarnaskóla sjómanna. Þessi námskeið, sem þegar hafa verið haldin í Reykjavík, á ísafirði, í Vestmannaeyjum, á Skagaströnd, Sauðárkróki og Dalvík, hafa verið vel sótt. Einstaklingar, heilu skipshafnirnar og útgerðirnar hafa komið, að sögn Þorvalds Axelssonar hjá Slysavarnafélagi íslands. Einnig allir nemendur Stýrimannaskólans i Reykjavík og skóianna úti um land. Hvert námskeið tekur 3—4 daga. Að sögn Þorvalds er á nám- varnafélagsins, þeir Þorvaldur skeiðunum lögð mikil áhersta á sjóbjörgun almennt, svo sem end- urlífgun, ofkælingu, brunavamir og slökkvistörf, meðferð fluglínu- tækja, viðbrögð ef maður fellur fyrir borð, hvemig yfirgefa á skip, dvöl í björgunarbátum, hvernig halda má lífi við erfiðar aðstæður og notkun þeirra björgunartækja sem lögboðin em um borð í skip- um og björgunarfömm. Leiðbein- endur á námskeiðunum em aðallega þrír starfsmenn Slysa- Axelsson, Höskuldur Einarsson og Þórir Gunnarsson og Kristín Einarsdóttir, lífeðlisfræðingur, auk þess sem menn frá Land- helgisgæslunni og Siglingamála- stofnun hafa leiðbeint í sértímum. Þorvaldur sagði að greinilegt væri að gífurleg þörf væri á nám- skeiðum af pessu tagi og enn væri engan veginn hægt að anna eftirspum og þörf. Biýnt væri að þjálfa fleiri leiðbeinendur og bæta tækjabúnað. Aðstöðu á landi með aðgangi að sjó hefði skort, en stefnt væri að úrbótum í þeim efnum á næstunni. Þar þyrfti sérstaklega að koma upp aðstöðu til bmnavarnaæfinga og slökkvi- starfa, en slík aðstaða væri hvergi hér á landi. Þá sagði Þorvaldur að LÍÚ hefði fest kaup á flot- björgunarbúningum sem fæm í flest íslensk fiskiskip fyrir lok þessa árs og nauðsynlegt væri að kennslu á notkun þessara öryggis- tækja væri lokið á sama tíma og tækin kæmu um borð í skipin. Sæbjörg, gamla varðskipið Þór, hefur verið notuð í nær ár til sjó- manna- og öryggisfræðslu og verið miðstöð fræðslustarfs Slysa- varnaskóla sjómanna. Fyrirhugað er að skipið fari á næstunni til námskeiðahalds til Vestmanna- eyja og síðan norður um land. Leifsstöð í gagnið á miðvikudag: Fyrstufar- þegarnir koma frá Chicago FYRSTU farþegarnir sem ganga á land í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli koma með Flugleiðavél af gerðinni DC-8 frá Chicago kl. 5.45 á miðvikudagsmorgun. Flug- stjóri í ferðinni verður Pálmi Sigurðsson. Þessar upplýs- ingar fengust hjá varnar- málaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins og Flugleiðum. Nú um helgina höfðu 116 far- þegar verið skráðir með vélinni, tólf ætla að hafa viðdvöl hér en afgangurinn heldur áfram til Lúxemborgar. Skömmu eftir lendingu Chicago vélarinnar er væntanleg samskonar þota frá New York. Hún er nánast full- bókuð, með 237 farþega. Gunnar Valdimarsson verður flugstjóri vélarinnar. Árekstur í Grindavík: Tveir piltar slösuðust Voru réttindalaus- ir á mótorhjóli Grindavík. ALVARLEGT umferðarslys varð á aðalgötu bæjarins þriðjudagskvöld þegar tveir réttindalausir piltar á mótor- hjóli óku framan á ameríska bifreið og slösuðust mikið. Piltarnir, sem eru 13 og 14 ára, óku á mikilli ferð eftir Víkurbraut og lentu framan á fólksbifreiðinni, sem kom úr Borgarhrauni stuttu áður. Pilt- arnir brotnuðu bæði á fótum og höndum og hlutu aðra áverka, en að sögn lögreglunnar munu hjálmar ,sem þeir notuðu hafa bjargað lífi þeirra. Mótorhjólið er ónýtt og bfllinn er mjög skemmdur. — Kr. Ben. • • Olvun og óspektir í miðborginni TALSVERÐUR mannfjöldi safn- aðist saman í miðborginni í fyrrinótt og var nokkuð um ölv- un og slagsmál, sem lögreglan þurfti að hafa afskipti að. Fjórar rúður voru brotnar í mið- bærium, þar af tvær í Austurstræti, en ekki gerðar tilraunir til þjófnað- ar. Einn maður fékk bað í Tjöminni og var bjargað af félögum sínum. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og læknismeðferðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.