Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 Reykjanes við Djúp: Hrossabrestir rædd- ir á framboðsfundi Reykjanesi við Djúp. SAMEIGINLEGUR fram- boðsfundur stjórnmálaflokk- anna var haldinn hér á Reykjanesi helgina 4. og 5. apríl. Mættu þar tíu fulltrúar sex flokka. Fulltrúar frá Flokki mannsins og Borgara- flokkinum mættu ekki. Urðu margir fyrir sárum vonbrigð- um, þar sem þá fýsti mjög að kynnast hinum nýju straumum í íslenskum stjórn- málum. Fyrirspumir til fulltrúa flokk- anna voru einkum um þau málefni, sem hér brenna heitast Afmælishátíð HSÍ í kvöld Afmælis- og uppskeruhátíð Handknattleikssambands Is- lands verður í Broadway í kvöld, sunnudag, og verður húsið opnað kl. 19. Jón Hjaltalín Magnússon formað- ur HSÍ setur hátíðina kl. 20. Sérstök móttaka verður fyrir íslandsmeistara Víkings kl. 19,15 en klukkan 19,10 verður tekið á móti nýkrýndum bikar- meisturum, en í dag klukkan 14,30 fæst úr því skorið í Laug- ardalshöll hvort Fram eða Stjaman hreppa titilinn. Margt verður til skemmtunar í kvöld og m.a. verða þeir einstaklingar sem skarað hafa framúr í vetur verðlaunaðir. Uppselt er á hátíð- ina og komust færri að en vildu. á mönnum, s.s. byggðamál, sam- göngur og búvörukvóti. Kom það fram að mönnum finnst skrýtið að mjólkurframleiðendur hér á svæðinu megi ekki framleiða það magn sem markaðurinn krefst heldur er mjólk flutt að frá Reykjavík og Akureyri. Mörgum þótti ákaflega fróð- legt að heyra ýmsar nýjar tillögur um hvað bændur gætu haft fýrir stafni þegar búið væri að skera niður bústofninn. Vitnuðu sumir ræðumenn þar í Fréttabréf stétt- arsambands bænda. Meðal þess sem upp var talið var tínsla beija og fjallagrasa, smíði hrossabresta og fléttun reipa úr hrosshári, ánamaðkatínsla og sitthvað í þeim dúr. Sjá nú bændur fram á betri tíð með blóm í haga og þykir undrun sæta að engum skuli hafa dottið þetta fyrr í hug. — Björg Morgunblaðið/Björg Veiðimennirnir með bráðina: Jón Valgeir Geirsson, Hjalti Halldórsson, Jónas E. Jónasson, Hlynur Kristjánsson og Haraldur Bjarni Pálsson. Reykjanes: Veiddu mink við húsdyrnar Pairl/iinaoi Rcykjanesi. MINKAR gera sig oft heldur heimakomna hér á Reykjanesi. Eru þeir oft að sniglast í kring- um húsin á nóttunni svo sporaslóðirnar liggja hér með- fram öllum húsum þegar snjór er á jörðu. Fimm strákar úr bamaskólan- um tóku sig til og lögðu minka- gildru fáeina metra frá húsunum. Er þetta heimasmíðuð gildra, kassi sem minkurinn skríður inn í til að ná í agnið og lokast þá inni. Er það mun mannúðlegri aðferð en að veiða þá í dýraboga. Daginn eftir var stærðar minkur í gildrunni. Voru hans dagar þar með taldir. Minkar eru engir aufúsugestir hér á nesinu frekar en annars staðar, einkum þegar vora tekur. Gera þeir mikinn usla hér í fugla- lífinu sem er mjög blómlegt þegar það fær að vera í friði. — Björg Vatnstúrbínur framleiddar ad Arteiffi fvrir Grænlendinffa Húsavík. AÐ Árteigi i Þingeyjarsýslu er hafin framleiðsla á vatnstúrbí- num með fimmtán kilóvatta rafali fyrir Grænlendinga og á næstunni verður fyrsta stöðin send þangað. Horfur eru á því að alls verði framleiddar tíu til tuttugu slíkar rafstöðvar á næstu árum. Feðgamir í Árteigi, Jón Sigur- geirsson og sonur hans Eiður eru þjóðþekktir hagleiksmenn og hefur Jón framleitt túrbínur fyrir íslenska sveitabæi um áratuga skeið. Á Grænlandi mun aðeins vera til ein rafstöð knúin vatnsafli og var hún framleidd í Þýskalandi. Sú stöð hefur hinsvegar reynst Grænlend- ingum mjög dýr. Þeir munu því ekki hafa áhuga á frekari kaupum þaðan. Árteigsstöðvarnar eru mun ódýr- ari svo áhugi er mikill á Grænlandi fyrir þessari framleiðslu frá íslandi og hafa þegar verið gerðir samning- ar um framleiðslu. Eiður mun fara til Grænlands nú á vordögum til frekari athugunar á aðstæðum, en það hefur verið einn af kostum þeirra Ártúnsfeðga að þeir hafa ekki haft fjöldaframleiðslu á túrbí- nunum heldur framleitt hverja stöð með tilliti til staðhátta. Segja má að með þessari nýju framleiðslu sé sett á stofn enn ein ný búgrein í sveitum landsins. Fréttaritari Frá þingi Sambands íslenskra bankamanna. í ræðustól er Hinrik Greipsson formaður SÍB. Þing Sambands íslenskra bankamanna: Kjara- og menntunarmál einkenndu ársþingið ÞINGI Sambands íslenskra bankamanna lauk á döstudag að Hót- el Loftleiðum. Kjaramál settu svip sinn á þetta 35. þing banka- manna, en einnig var ályktað um ýmis önnur sameiginleg baráttumál bankamanna. Þingið skoraði á stjóm SÍB að herða á samningaviðræðum, en samningar bankamanna hafa ver- ið lausir síðan um áramót. Fulltrú- ar frá bankamannasamböndum á Norðurlöndunum voru á þinginu, en SIB er aðiji að norræna banka- mannasambandinu, sem í eru rúmlega 150.000 félagar. Fram- kvæmdastjóri norræna banka- mannasambandsins, Jan Erik Lidström, flutti ávarp á þinginu um þýðingu þess fyrir starfs- mannafélögin. Sambandið hefur yfir að ráða kjaradeilusjóði og kom fram að það stæði með íslenskum bankastarfsmönnum í kjarabaráttu sinni. Þá ályktaði þingið að stjómin beiti sér fyrir breytingu á löggjöf þess efnis að tveir fulltrúar starfs- manna verði látnir sitja í banka- ráðum. Hingað til hafa fúlltrúar starfsmanna ekki setið í bankar- áðum, en þegar Útvegsbanki íslands hf. var stofnaður fyrir fáeinum dögum var fulltrúi starfs- manna þar skipaður varamaður í bankaráði. Fjallað var um menntunarmál bankamanna og kom fram vilji á þinginu um að starfsemi Banka- mannaskólans, sem nýlega flutti í nýtt húsnæði að Snorrabraut 29, verði efld. Tryggvi Pálsson, for- stöðumaður í Landsbankanum, hélt erindi um fjármagnsmarkað- inn og bankastörf almennt sem hann kallaði „Vinnurðu enn í banka?“ . Hinrik Greipsson, Útvegsbanka Islands, var endurkjörin formaður SÍB. Fyrsti varaformaður var kjörin Guðjón Skúlason, Lands- banka íslands, og Sólveig Guðmundsdóttir, Búnaðarbank- anum, var kjörin annar varafor- maður. Aðrir í stjóm voru kjörnir: Anna Kjartansdóttir Landsbank- anum, Anna Guðrún ívarsdóttir Búnaðarbankanum, Gréta Kjart- ansdóttir SPRON og Páll ísberg Iðnaðarbankanum. Háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn: Reynt að ljúka samn- ingum um helgina FUNDUM með háskólamenntuð- um ríkisstarfsmönnum, sem eru í verkfalli, var framhaldiö hjá rikissáttasemjara i gær og var stefnt að því að ljúka samningum um helgina. Fundur með samninganefnd ríkisins og Félagi háskólamennt- aðra hjúkrunarfræðinga stóð fram yfir miðnætti í fyrrinótt og sest var að samningaborðinu aftur klukkan 10 í gærmorgun. Þá voru einnig í gær fundir með félagsráðgjöfum, bókasafnsfræðingum, sálfræðing- um, iðjuþjálfum og sjúkraþjálf- urum. Morgunblaðið/Emilía Nýkjörið bankaráð Útvegsbanka íslands hf á fyrsta fundi sínum. Frá vinstri eru Björgvin Jónsson, Jón Dýrfjörð, Gísli Ólafsson, Krist- ján Ragnarsson og Baldur Guðlaugsson. Bankaráð Útvegsbanka íslands hf. skiptir með sér verkum: Gísli Ólaf sson formaður ráðsins NÝKJÖRIÐ bankaráð Útvegsbanka íslands hf. hefur skipt með sér verkum og er formaður þess Gísli Ólafsson forstjóri, Kristján Ragn- arsson framkvæmdastjóri er varaformaður, Baldur Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður ritari og Björgvin Jónsson útgerðarmaður og Jón Dýrfjörð vélstjóri meðstjórnendur. Á fyrsta fundi bankaráðsins, á ins taka það fram, vegna misskiln- föstudag, var ákveðið að ráða sem fyrst tvo bankastjóra að Útvegs- bankanum í stað þeirra þriggja sem nú starfa. í samtali við Morgunblaðið vildi Gísli Ólafsson formaður bankaráðs- íngs sem hefði gætt víða vegna yfirtöku hlutafélagsins á rekstri Útvegsbankans, að ríkissjóður ábyrgist alla innlánsreikninga bankans í tvö ár eftir rekstrarbreyt- inguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.