Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 I þágu bama eftir Ragnhildi Helgadóttur Hér á eftir verður vikið að fáein- um af þeim framfarasporum, sem núverandi ríkisstjóm hefur stigið að frumkvæði sjálfstæðismanna, og miða sérstaklega að því að bæta hag bama með ráðstöftinum á sviði heilbrigðis- og tryggingamála. Hér verður fjallað um fæðingarorlof, mæðralaun og barnabætur. Verður fyrst vikð að stærsta skrefmu á þessu kjörtímabili, nýjum lögum um lengingu fæðingarorlofs. Er þetta sérlega vönduð lagasmíð, byggð á víðtækum athugunum og samanburði utanlands og innan. Það er skemmtileg staðreynd að aðalhöfundur þessara frumvarpa og formaður undirbúningsnefndar er engin önnur en Ingibjörg Rafnar, eiginkona formanns Sjálfstæðis- flokksins og fyrrum borgarfulltrúi. Hin nýju lög um þetta efni em tvenn. Önnur lögin era um vinnu- rétt og þar með rétt til leyfis, en hin lögin um tryggingarétt og þar með greiðslur í leyfum. Hugtakið fæðingarorlof er í fyrsta sinn skilgreint í lögum, leyfí frá launuðum störfum vegna bams- burðar. Er þetta í samræmi við hina almennu skilgreiningu orlofs ann- ars staðar í löggjöf okkar. Lögfest- ur er sjálfur rétturinn til fjarvista frá starfi úti á vinnumarkaðnum, þ.e. rétturinn til að vera heima nokkra mánuði af þessu gleðilega tilefni án þess að glata réttinum til fyrra starfs. Orlofstíminn lengist EF t>U VILT GLEÐJA EINHVERN UM PÁSKANA GEFURÐU MÓNU PÁSKAEGG NÝTT OG ENN BETRA, SYKURMINNA SÚKKULAÐI í PÁSKAEGGJUNUM FRA MÓNU! „í vetur kom ríkis- stjórnin á heimild til greiðslu mæðralauna þegar annaðhvort for- eldri er öryrki sem hefur þurft að vistast á sjúkrahúsi eða stofnun til langf rama og heimil- ið verður af trygginga- bótum þess vegna.“ nú samkvæmt lögunum úr þrem mánuðum í fjóra og síðar í sex mánuði. Jafnframt er lögfestur réttur bamshafandi konu til að flytjast, án þess að lækka í launum, milli verkefna á vinnustaðnum ef unnt er að koma því við og aðstæður í hinu fyrra verkefni stofna heilsu hennar í hættu. Það er skoðun okkar sjálfstæðis- manna, að traust tengsl foreldra og bams og þá ekki síst móður og bams í frambemsku leggi grand- völl að eðlilegu tilfinningalífi og heilbrigði. Hinni nýju löggjöf um fæðingar- orlof er ætlað að styrkja stöðu einstaklingsins að þessu leyti. Hin lögin era um breytingu á almannatryggingalögum og fj'alla um greiðslur í fæðingarorlofi. Er þá alfarið skilið milli greiðslna, sem fjármagnaðar era af ríkinu og greiðast öllum mæðram, jafnhá upphæð hvort sem þær vinna innan eða utan heimilis, og svo greiðslna, Ragnhildur Helgadóttir sem íjármagnaðar era af framlagi atvinnurekenda til lífeyristrygg- inga, greiðast útivinnandi konum og nefnast fæðingardagpeningar. Nefnist fyrri greiðslutegundin fæð- ingarstyrkur. Breytingin felst í því að greiðsla á mánuði til heimavinn- andi mæðra hækkar um 50% auk þess sem tíminn lengist með sama hætti og fyrir útivinnandi mæður. Að því er útivinnandi mæður varðar er þess að geta, að saman- lögð upphæð fæðingarstyrks og fæðingardagpeninga er nokkra hærri en upphæð greiðslna í fæð- ingarorlofi samkvæmt þeim lögum, sem falla úr gildi um áramót, er hin nýju lög koma til framkvæmda. Með þessum tvennum lögum hef- ur Alþingi samþykkt farsæla lausn á flóknu og mikilvægu viðfangs- efni. Það er lærdómsríkt í því sambandi og töluvert skondið að virða fyrir sér viðbrögð sumra þing- manna Alþýðubandalagsins og fylgihnattar þeirra, Kvennalistans, við þessu máli. Eiga þau á stundum erfitt með að leyna „spælingunni" yfir því að „íhaldið" skuli hafa kom- Kór Langholtskirkju: Flytur Jóhannes- arpassíu Bachs Á SKÍRDAG og föstudaginn langa, 16. og 17. apríl, flytur Kór Langholtskirkju Jóhannesar- passíuna eftir Johann Sebastian Bach. Fimm einsöngvarar og kammersveit flytja verkið með kórnum. Jóhannesarpassían verður flutt kl. 20 á skírdag og kl. 15 föstudaginn langa. Einsöngvaramir era Ólöf Kol- brún Harðardóttir, Sólveig M. Björling, Kristinn Sigmundsson, Viðar Gunnrsson og Michael Gold- thorpe. Michael Goldthorpe kemur hing- að til lands sérstaklega til að syngja guðspjallamanninn í verkinu. Gold- thorpe er þekktur fyrir flutning á því hlutverki. Konsertmeistari er Júlíana Elín Kjartansdóttir og stjómandi Jón Stefánsson. Miðar era seldir í ístóni, Ey- mundsson og Langholtskirkju. Ert þú í húsgagnaleit Páskatilboð Carina sófasett klætt með svörtum uxahúðum eða brúnu vatnabuffalóskinni. 3ja sæta sófi og tveir stólar kr. 103.000.- staðgreitt. VALHÚSGÖGN Ármúla 8, símar 82275 - 685575. ið stærstu skrefunum á í þessu máli í höfn. Þegar Alþýðubandalagið sá um ráðuneyti tryggingamála árið 1980 vora sett lög, sem rýrðu fæðingar- orlofsrétt kvenna í ASÍ veralega frá því sem var samkvæmt lögunum frá 1975, sem sjálfstæðismenn höfðu staðið að. Allir þingmenn efri deildar Al- þingis nema einn greiddu þó atkvæði með nú. Var það þingmað- ur Kvennalistans. Minnir það óneitanlega á yfirlýsingu refsins um að berin væra súr, þegar hann náði þeim ekki sjálfur. Nú verður vikið að tveimur mál- um sem sérstaklega varða böm einstæðra foreldra. Ríkisstjómin hefur veralega bætt mæðralauna- réttinn. Mæðralaun höfðu í ráð- herratíð Svavars Gestssonar dregist aftur úr öðram bótum. í sambandi við efnahagsaðgerðir þessarar ríkis- stjómar vora mæðralaun hækkuð veralega, eða á áranum 1984—1987 um 441% með einu bami, um 302% með tveimur og 256% með þremur. Fyrir ári síðan fékk ríkisstjómin samþykkta laga- breytingu, sem leiddi til þess að nú era mæðralaun greidd með ungling- um tveimur áram lengur en áður var, eða til átján ára aldurs í stað sextán áður. Hefur þetta verulega þýðingu í sambandi við nám í fram- haldsskóla. Vert er þá að geta um aðra laga- breytingu sem eykur rétt til mæðralauna. í vetur kom ríkis- stjómin á heimild til greiðslu mæðralauna þegar annaðhvort for- eldri er öryrki sem hefur þurft að vistast á sjúkrahúsi eða stofnun til langframa og heimilið verður af tryggingabótum þess vegna. Sam- kvæmt hinum nýju lögum er slík heimild einnig fyrir hendi ef tekjur heimilisins falla niður vegna ann- arrar langtímavistunar, svo sem fangavistar. Loks vora bamabætur hækkaðar veralega þá strax, einkanlega vegna bama undir sjö ára aldri. í hinum nýju skattalögum er tvöföld- un bamabóta ákveðin. Hugsunin á bak við allar þessar lagabreytingar er, að ráðstafanir skulu gerðar í þágu bama til að auðvelda þeim að komast til þroska, þó að höndum beri einhver þau at- vik er geri foreldram örðugt að ala önn fyrir þeim hjálparlaust. í lok þessarar upprifjunar skal áréttað að stefna Sjálfstæðisflokks- ins er mannleg og mannúðleg vegna þess að hún setur frelsi hvers ein- staklings í öndvegi. Þess vegna er framkvæmd þessarar stefnu í þágu bama. Og til að framkvæma þessa stefnu svo og að fylgja árangrinum eftir þarf D-listinn, listi Sjálfstæð- isflokksins, hér eftir sem hingað til öfiugt fylgi almennings í alþingis- kosningum 25. aprfl. Höfundur er heilbrigðia- og trygg- ingaráðherra. Þorsteinn Hann- esson í Upp- reisn á ísaf irði ÞORSTEINN Hannesson óperu- söngvari hefur tekið við hlut- verki Þorsteins Ö. Stephensen sem þingmaður í leikritinu Upp- reisn á Isafirði sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu nk. sunnudags- kvöld. Þorsteinn Ö. Stephensen verður forfallaður þær þrjár sýn- ingar sem eftir eru. VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.