Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 Helga Jóns- dóttir — Minning Fædd l.júlí 1907 Dáin 31. mars 1987 „0 amma, 6 amma, ó ansaðu mér því ég er að gráta og leita að þér. Fórstu út úr bænum eða fórstu út á hlað? Fórstu ti! Jesú í sælunnar stað?“ Þetta er eitt af þeirn mörgu fal- legu versum sem hún amma mín kenndi mér og söng við mig þegar ég lítill hnokki var að nema mín fyrstu ljóð og syngja mína fyrstu söngva. Það er yndislegt að geta rifjað upp að það var einmitt í Garði hjá afa og ömmu sem ég steig mín fyrstu spor, því þar dvaldi ég fram til rúmlega þriggja ára aldurs, en þá fluttum við fjölskyldan í bæinn eins og það var kallað. Og nú er hún amma farin í sælunnar stað til Jesú. Helga Jónsdóttir, amma mín, Garði, Hauganesi, lést þriðjudags- morguninn 31. mars sl. á áttugusta aldursári. Hún var fædd 1. júlí 1907 á Baldursheimi í Arnarneshreppi og var dóttir hjónanna Maríu Þor- steinsdóttur og Jóns Júlíusar Jónssonar smiðs. Þau eignuðust 8 börn en eitt þeirra dó skömmu eft- ir fæðingu og tvö fórust í rokinu mikla aldamótaárið, þegar Rauðvík- urhúsið fauk af grunni. Nú er aðeins eitt þessara systkina ofar moldu, en það er Petrea, komin á níræðisaldur. Þegar Helga Jónsdóttir var tveggja ára lá leið hennar fyrst út á Arskógsströnd, sem æ síðar var hennar heimasveit og henni afskap- t Eiginmaður minn, WILLY HANSSEN trúboði, sem lést aðfaranótt sunnudagsins 5. apríl, verður jarðsunginn frá kirkju Fíladelfíusafnaðarins mánudaginn 13. apríl, kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir. Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna Guðlaug Hanssen. t Faöir okkar, tengdafaðir og afi, HERMANN G. HERMANNSSON trésmfðameistari, Melgerði 13, Reykjavík, áður Njálsgötu 92, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu 14. apríl 1987 kl. 1 5.00. Dýrleif Hermannsdóttir, Björg S. Hermannsdóttir, Ingvi Þorsteinsson, Unnur Jónasdóttir, °9 Jóhannes Bergsteinsson, Gunnar Gislason, Inga L. Guðmundsdóttir, Páll Sigurðsson barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN S. GÍSLASON múrari, Kleppsvegi 56, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 14. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Laufey Bergmundsdóttir, Gísli S. Guðjónsson, Auður F. Jóhannesdóttir, Reynir S. Gislason. t Eiginkona mín, JÓHANNA GUÐJÓNSDÓTTIR, Viðihvammi 18, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð Kópavogi 7. apríl verður jarösungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 15. apríl kl. 15.00. Jóhann Kr. Jónsson og fjölskylda. t Þökkum innilega" auðsýnda samúð við andlát og útför, JÓHANNESAR SIGURÐSSONAR, Hátúni 10. Sérstakar þakkir til starfsfólks á lungnadeild Vífilsstaðaspítala. Guðrún Jónsdóttir, Sigrún Jóhannesdóttir, Geir Runólfsson, Gunnar Jóhannesson, Rósa Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, GRÉTARS JÓHANNESSONAR, Eiríksgötu 19. Helga Sigurjónsdóttir, börn, tengdasonur og barnabörn. lega kær, en Jþá fluttist fjölskyldan út í Stærri-Arskóg, þar sem þau áttu heima í nokkur ár, og þaðan lá leiðin í Vallholt. 1. desember 1926 giftist amma mín Gunnari Níelssyni, afa mínum, en hann lést 1980. Þau Gunnar og Helga byijuðu sinn búskap í Vall- holti, en 1928 keyptu þau Brimnes- bæinn og stofnuðu þar sitt heimili. Þar hóf afi útgerð á eigin báti, en 1938 fluttust þau amma og afi til Hauganess, þar sem þau reistu sér hús, sem þau kölluðu Garð, og var í mínum augum ætíð sami unaðs- reiturinn. Börn þeirra eru 6. Þau eru Níels, skipstjóri og útgerðar- maður, Hauganesi, kvæntur Rósu Stefánsdóttur; Petrea, gift Jóhanni Antonssyni á Hauganesi; Halldór, sjómaður og útgerðarmaður á Hauganesi, kvæntur Astu Hannes- dóttur; Valborg, í sambúð með Sigtryggi Valdimarssyni vörubíl- stjóra á Akureyri; Helga, gift Ellert Kárasyni skrifstofumanni á Akur- eyri, og Gunnborg yngst, gift Pétri Sigurðssyni múrara á Akureyri. Barnabörnin eru nú orðin 18 og barnabarnabörnin einnig 18. Geta má nærri að nóg hefur ver- ið að starfa hjá húsmóðurinni ungu meðan verið var að koma börnunum á legg, byggja upp heimilið og jafn- framt að leggja gjörva hönd á verkun sjávaraflans, sem afi flutti að landi með sinni alkunnu útsjón- arsemi, aflasæld og dugnaði. En fjölskyldan varð snemma samhent Gunnar Þ. Arnar- son — Kveðjuorð Fæddur 1. mars 1971 Dáinn 28. mars 1987 „Kallið kemur og við hlýðum kallinu, þetta kall heyrir aðeins hann, og hann hlýddi kallinu." 16 ár ekki langur tími af manns- aldri að vera. Þegar við fengum freguina um að vinur okkar Gunnar Þór hefði verið kallaður á brott komu upp margar spurningar. Af hvetju hann? Bara 16 ára og átti alia framtíðina fyrir sér. En spurn- ingarnar eru margar og svörin engin. Við minnumst Gunna sem áhugasams nemanda og virkur var hann í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Gunni var vinur vina sinna, því kynntumst við öll, sem eitt hvað þekktum til hans. Með þessum fáu orðum viljum við þakka kynni sem aldrei gleymast. Það hefur verið höggvið stórt skarð í hópinn. Foreldrum, systkinum og Olafi Erni, besta vini hans, sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Þið hafið misst góðan dreng sem aldrei gleymst. Góður Guð styrki ykkur í ykkar miklu sorg. F.h. nemenda Héraðsskólans í Reykjanesi veturinn 1986-1987, Anna Ólafsdóttir Veturinn 1985 fór ég í heimavist- arskóla og kynntist ég Gunna Þór þann vetur lítillega. En skólaárið 1986 lá leiðin á sama stað aftur og var ég þá ein af gömlu nemend- unum. Þá kynntist ég vini sem reyndist sem bróðir. Þessi vinur var Gunni Þór, alltaf brosandi, bláu augun hlæjandi hvað sem dagurinn hét og þolinmæðin var alveg ein- stök. Tímunum saman gat hann verið að hlusta á vandamál eða kenna manni stærðfræði. Gunni var duglegur í skólanum og hafði mjög gaman af íþróttum. Eg minnist þess sérstaklega þegar fyrsti snjór- inn kom eftir áramót. Þá var Gunni kominn út um leið, þróttmikill og fjörugur og allir á eftir. Það er erf- itt að hugsa til þess að fá ekki að njóta fleiri stunda í þessum heimi með Gunna. Minning um góðan dreng gleymist seint. Eg vil þakka fyrir að hafa notið þess að þekkja Gunna. Þeir deyja ungir sem guð- irnir elska. Innilegustu samúðar- kveðjur til foreldra, systkina og Ola Arnar. Guð blessi ykkur og styrki í ykkar miklu sorg. Við munum hittast síðar. Anna Þær eru margar minningarnar sem sækja á hugann er ég kveð minn ástkæra bernskuvin, Gunnar Þór. Við vorum ekki háir í loftinu t Þökkum innilega auösýnda samúð við andlát og útför móöur okkar og tengdamóður, SVEINU SVEINSDÓTTUR. Sveinn Björnsson, Sigurbjörg Sigurðardóttir, Sólrún Björnsdóttir, Steindór Hálfdánarson, Arnheiður Borg, Kjartan Borg, Birna Björnsdóttir, Viðar Ólafsson og aðrir aðstandendur. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug vegna andláts eiginkonu minnar, dóttur okkar, móður, tengdamóður og ömmu, HRAFNHILDAR MARGRÉTAR VIGGÓSDÓTTUR, Álfhólsvegi 27, Kóp., sem lést 29. mars sl. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Landakotsspítala fyrir umhyggju og hjálp. Guð blessi ykkur öll. Bogi ÞórirGuðjónsson, Viggó Guðjónsson, Guðjón Bogason, Aðalheiður Bogadóttir lckes, Sólveig Bogadóttir, Þórunn Bogadóttir Moyer, Heba Bogadóttir, Linda Lea Bogadóttir Aðalheiður Gestsdóttir, Elín Björk Einarsdóttir, Robert lckes, Páll Einarsson, Sidney C. Moyer, og barnabörn. og allir lögðu sitt af mörkum til að nýta sem best það hráefni, sem að landi barst. í Garði reistu þau amma og afi sér og börnunum fagurt og hlýlegt heimili, þar sem rausn og myndarskapur sátu ætíð í fyrir- rúmi, enda sambúð þeirra og samheldni slík að þar bar aldrei skugga á. í Garði var jafnan mann- margt, börnin mörg og oft mikill gestagangur enda hjónin vinsæl og vinmörg og afi mjög virkur í sveit- arstjórnamálum. Hann var í hrepps- nefnd í 35 ár og vann manna mest og ötullegast að því að byggð væri upp hafnaraðstaða á Hauganesi og einnig á Sandinum. Með þeim mál- um fylgdist amma mín af miklum áhuga og eldmóði og hugur hennar var alltaf bundinn sjónum og bátun- um, sem á sjóinn sækja, og margar ferðir var búið að ganga út að glugganum til að líta eftir hvort eiginmaðurinn á bátnum sínum, og síðar synir og tengdasynir, væri að nálgast bryggju. En áhugi hennar var ekki eingöngu bundinn við þann bát, því að hún þurfti líka að fylgj- ast með hinum bátunum og athuga hvemig gengi þar. Þessi áhugi þegar við kynntumst fyrst og mörg voru ævintýrin sem við rötuðum í. Ekki var laust við að fullorðna fólk- inu þætti stundum nóg um, þegar við fórum af stað. Aldrei mun ég gleyma síðustu helginni okkar sam- an. Þá sátum við lengi í herberginu hans Gunnars, og riQuðum upp öll ævintýrin okkar, gömul og ný, grunlausir um að þetta væm okkar síðustu samvemstundir. Gunnar var skemmtilegur og góður félagi, og alltaf hélt hann tryggð við mig, þó hann færi burt úr bænum. Eg trúi því líka að hann verði áfram vinur minn, þó hann sé nú farinn á enn fjarlægari stað. Þar er gott að vita Gunnar minn, umvafinn gæsku Guðs sem skilur allt. Ég kveð hann með sámm söknuði með þökk fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman. Ég veit að við munum hittast síðar og þá verða fagnaðar- fundir. Guð styrki foreldra hans, systkini og aðra ástvini í þeiira miklu sorg. Fjölskylda mín sendir innilegar samúðarkveður til allra er nú syrgja hann sárt og þakka Gunnari liðnar stundir. Ég kveð elsku brosmilda vin minn. Hans vinur að eilífu. Dinni Blómastofa Friðfinns Suðurtandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öllkvöld til kl. 22,- eínnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.