Morgunblaðið - 12.04.1987, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRlL 1987
Að veikja Sjálfstæð
isflokkinn væri slys
eftirEinarJ. Gíslason
Sú hryllilega staðreynd blasir við
að frambjóðendur úr tveimur flokk-
um eru yfirlýstir andstæðingar
varins lands og rótleysi og óvissa í
þessum efnum er á stefnuskrá bæði
Alþýðubandalags og Borgara-
flokks. Samvizka mín leyfir mér
ekki að veita slíkum brautargengi.
Þegar ég geng til kjördags í dag
er það mál málanna, að ísland verði
varið land. Kannske mótast sú
hugsun af því að ég er fæddur og
alinn upp í Vestmannaeyjum og þar
var Tyrkjaránið svo sterkur bak-
grunnur. Sá sögufróði maður, Jes
A. Gíslason, kenndi mér í barna-
skóla. Hann var unnandi sögu
Vestmannaeyja og margfróður
maður og ógleymanlegur. Hann
talaði um Þórlaugargerðissyllu í
Fiskhellum, þar sem talið er að 20
manns hafi bjargazt í Tyrkjaráninu.
Kúlugöt voru á pilsum sumra
kvennanna sem leituðu þar skjóls.
Steinsnar frá Fiskhellum er Hundr-
aðsmannahellir. Ræningjatangi og
Ræningjaflöt voru staðir sem við
heimsóttum og hugsuðum þá að ef
land hefði verið varið, hefði þessi
400 manna byggð fengið að blómg-
ast og standa. Við vorum fræddir
um kaptein Khol sýslumann er
stofnaði herfylkingu Vestmanna-
eyja 1857. Það var mjög merkilegt
framtak. Þar urðu allir þátttakend-
ur að vera algerir bindindismenn.
Markmiðið var að veija landið.
Miðvikudaginn 22. september
1968 var ég við störf mín á graf-
skipinu Vestmannaey við suðurenda
Hörgeyrargarðs í Vestmannaeyj-
um. Við Ólafur Jónsson, tengdafað-
ir Sigmunds teiknara, vorum þá á
vakt. Mælar sýndu að eitthvað var
komið fyrir stútinn sem tók sand
og allt sem fýrir var í sig. Þetta 7
tonna stykki var híft upp. Með sog-
krafti sínum hélt það fastri kopar-
byssu sem bar merki sæsvölu.
Grunaði mig strax að hér væri um
feng mikinn að ræða. Fjögurra
faðma sjór var niður á sandbakkann
sem var aðeins 4 faðmar og þar
var byssuna að finna. Ég hafði sam-
band við sæmdarmann, Þorstein
Þ. Víglundsson, sem með röskleika
sínum og dugnaði setti sig í sam-
band við vopnabúr danska hersins
og spurðist fyrir um það hvaða
byssa væri á meðfylgjandi mynd.
Svar þeirra var að byssur af þess-
ari gerð hefðu verið steyptar við
Miðjarðarhaf á 16. öld. Síðan kom
fyrirspum: Haldið þið því fram að
þið hafíð slíkt tæki undir höndum?
Byssan prýðir nú Byggðasafn Vest-
mannaeyja.
Sem ungur drengur man ég
hvernig ráðizt var í að veija land-
helgina kringum Heimaey. Eyja-
Einar J. Gíslason
menn réttu hendur fram úr ermum
og keyptu varðskipið Þór undir for-
ystu Sigurðar Sigurðssonar lyfsala
og Björgunarfélags Vestmanna-
eyja. Svo hart var þetta mál sótt
af Eyjamönnum að fermingarböm
séra Oddgeirs Guðmundssonar á
Ofanleiti gáfu á tímabili allar ferm-
ingargjafír til kaupa á varðskipinu
Þór. Varið land er eitt af grundvall-
aratriðum og það ræður afgerandi
atkvæði mínu. Ég er friðarsinni, en
hvaðan flæddi ógnunin yfír Norð-
urlönd fyrir ári síðan svo allt gras,
vatn og skepnur menguðust? Var
hættan innan Norðurlanda sjálfra?
Nei. Hættan kom frá Sovét-Rúss-
landi, öðru aðalkjarnorkuveldi þessa
heims. A skal að upptökum stemma
en eigi að ósum.
Sem kristinn maður hef ég verið
stefnufastur alla tíð. Ég var alinn
upp í mjög fastmótuðu umhverfi.
Koma þar við sögu foreldrar mínir
og Einar Þorsteinsson afi minn, sem
var fjórði maður í beinan karllegg
frá Fjalla-Eyvindi Jónssyni. Stefnu-
festan snerti fyrst og fremst bind-
indi sem ég er þakklátur fyrir að
hafa notið bæði gagnvart víni og
tóbaki. Homsteinninn var kristin
trú og vandað val á fulltrúum til
Alþingis og bæjarstjórnar. Aldrei
var það spuming um að hvika frá
stefnu sjálfstæðismanna, aldrei.
Sjálfur kaus ég í fyrsta sinn lýðveld-
ið árið 1944. Ég var aðdáandi
Jóhanns Jósefssonar og alira þing-
manna sem fetuðu í fótspor hans.
Eitt sinn var ég sem sjómaður við
löndun á afla. Kom þá þekktur
vinstri sinna útgerðarmaður, sem
rak áróður gegn Bjama Benedikts-
syni og ríkisstjórn hans. Bróðir
minn Óskar, sem var skipstjóri báts-
ins, sagði: Það veiðist þó síld þegar
Bjami er við stjórnvölinn, en skip
þessa vinstra manns hafði landað
mjög miklum síldarafla norðan-
lands. Það var fátt um svör.
Góðæri og efnahagsleg blessun
„Forðum var sagt: í kili
skal kjörviður, og
meina ég að fjöregg
þjóðarinnar megi alls
ekki hafa að leiksoppi
eða kasta því á glæ sem
áunnizt hefur og sundr-
ungaröfl mega ekki fá
trúnað f ólksins til að
eyðileggja það sem
áunnizt hefur. Tel ég
að þessari margþættu
f lokkaskiptingu sé
fyrst og fremst beint
gegn Sjálfstæðis-
f lokknum og ég tel að
hún sé ekki af hinu
góða. Ég stend heils
hugar með Þorsteini
Pálssyni, formanni
Sjálfstæðisflokksins, í
því sem hann er að
gera.“
meina ég vera umbun skaparans
til þeirra er haldið hafa um stjóm-
völinn og vilja gera rétt fyrir þegna
þessa lands. Forðum var sagt: í
kili skal kjörviður, og meina ég að
fjöregg þjóðarinnar megi alls ekki
hafa að leiksoppi eða kasta því á
glæ sem áunnizt hefur og sun-
drungaröfl mega ekki fá trúnað
fólksins til að eyðileggja það sem
áunnizt hefur. Tel ég að þessari
margþættu flokkaskiptingu sé fyrst
og fremst beint gegn Sjálfstæðis-
flokknum og ég tel að hún sé ekki
Eigandi og afgreiðslublækur Hryllingsbúðarinnar, Greene, Gardenia og Moranis.
Fjör í hryllingsbúðinni
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin: Litla hryllingsbúðin —
The Litle Shop of Horrors
☆ ☆ ☆
Leikstjóri Frank Oz. Framleið-
andi David Geffen. Handrit
Howard Ashman, byggt á kvik-
myndahandriti Charles Griffith.
Tónlist Alan Menken. Kvik-
myndatökustjóri Robert Paynt-
er. Aðalhlutverk Rick Moranis,
Ellen Greene, Vincent Gardenia,
Steve Martin. Gestahlutverk
James Belushi, John Candy, Bill
Murray. Bandarísk. Geffen
Productilon/Warner Bros 1986.
Roger Corman-verksmiðjan hef-
ur örugglega ekki órað fyrir því
árið 1960 hvílíkri skriðu hræódýr,
meinfyndin smámynd, tekin á
tveimur dögum, um mannskætt
pottablóm, ætti eftir að hleypa af
stað. Fyrst vakti hún enga sérstaka
eftirtekt, hvorki erlendis né hér
heima, í bragganum við Skúlagöt-
una. En smám saman varð hún
„cult“mynd í Vesturálfu, þar sem
hún skaut í sífellu upp kollinum í
litlum kvikmyndahúsum, vítt og
breitt um Bandaríkin. Áhugi leik-
húsmanna fór að beinast að þessu
ódrepandi fyrirbrigði, sem nefnist
Litla hryllingsbúðin. Framhaldið
varð engu síður velheppnað. Söng-
leikurinn hefur farið sigurför um
veröld víða og kvikmyndagerð hans
eldhress skemmtun.
Þessi kostulegi söngleikur um
ástir veimilitítna, með hið sísoltna,
blóðþyrsta furðublóm í baksýn, tek-
ur sig engu verr út á tjaldinu en í
Gamla bíói, svo maður noti þann
samanburð. Leikmyndin er eftir-
minnilega góð og bætt inní verkið
smellnum aukapersónum, sem
víkka sviðið. Valinn maður í hveiju
rúmi og sjálfsagt á þúsundþjala-
smiðurinn Frank Oz mestan heiður
skilið af þessu einvalaliði.
Hin ójarðneska pottaplanta er
náttúrlega sér kapítuli, líkt og í
sviðsverkinu. Og óborganlega rödd,
sem hljómar einhvers staðar mitt á
milli Eddie Murphy og Hank Willi-
ams jr., fær hún frá einum söngvara
The Four Tops. Dágott innlegg
þetta.
Aðalhlutverkin eru í öruggum
höndum þeirra sem gerðu þau fræg
á sviði vestan hafs. Rick Moranis
og Ellen Greene gera þau Seymour
og Audrey bæði álappaleg og
bijóstumkennanleg um leið og
manni þykir dálítið vænt um þau.
En það er engin spurning, Steve
Martin stelur senunni í langbesta
hlutverki verksins, tannlæknisins
með kvalalostann. Jack Nicholson
kunni vel að meta þetta kröftuga
stykki í smáauraútgáfu Cormans
og Laddi er manni ógleymanlegur
af fjölum Gamla bíós. En Martin
slær þeim báðum við. Jafnvel
Ladda! Þeir taka hlutverkið svipuð-
um tökum, Martin er bara enn
djöfullegri. Svo hefur hann alla
Hollywood-kunnáttuna á bak við
sig.
Martin er kannski fullsterkur
fyrir verkið í heild, því þegar hann
hverfur af tjaldinu myndast tóma-
rúm, sem fyllist ekki það sem eftir
lifír myndarinnar. Og einn slæmur
Ijóður var á íslenska textanum, ein-
mitt þar sem hann er mörgum
mest nauðsyn; hann fylgdi sjaldnast
hinum bráðfyndu lagatextum. En
þetta eru að sjálfsögðu aukaatriði,
kvikmyndun söngleiksins Litla
hryllingsbúðin er engu síðri andleg
vítamínsprauta fyrir skapferlið en
forverar hennar.
A
Vestur-Islend-
ingar í heim-
sókn um páskana
Fra Jóni Asgein Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsms í Bandaríkjunum
STÓR hópur Vestur-íslendinga in búa í Rockford í Illinois-fylki og
heimsækir landið um páskana og undirbjuggu ferðalagið ásamt með
verður með móttöku fyrir skyld- Lindstrom-ferðaskrifstofunni.
menni á Hótel Loftleiðum
laugardaginn 18. apríl; Fólkið á
flest ættir að rekja til Islands og
margir áttu forfeður, sem settust
að á Washington-eyju í Michig-
an-vatni. „Við hlökkum til að
fara heim og hitta ættingjana,"
sagði Lou Ann Jessen við frétta-
ritara Morgunblaðsins, en maður
hennar, Ted, rekur ættir til Eyr-
arbakka.
Séra Kolbeinn Þorleifsson og
Friðrik Theódórsson hafa aðstoðað
Vestur-íslendingana við að und-
irbúa vikudvöl á Islandi, þar á meðal
að koma mönnum í samband við
ættingja sína. Hópurinn er nálægt
eitt hundrað manns og verða marg-
ir með ættartölur upp á vasann.
Margir rekja ættir til Eyrarbakka,
aðrir í Landeyjarnar, enn aðrir til
ísafjarðar, Vestur-Húnavatnssýslu,
í Jökuldalinn og þannig mætti lengi
telja. Gert er ráð fyrir að um það
bil eitt hundrað skyldmenni búsett
á íslandi komi í páskaboðið á Hótel
Loftleiðum. Á páskadag verður far-
ið í messu í Hallgrímskirkju og
síðan haldið til Eyrarbakka að
heimsækja skyldmennin og skoða
æskuslóðir forfeðranna.
Margir ferðalanganna eiga
heima á Washington-eyju, en þang-
að fór fjöldi af íslendingum sem
fluttu búferlum til Bandaríkjanna á
árunum 187Q til 1900. Islenska
samfélagið á Washington-eyju var
lengi vel eitt af þeim fjölmennustu
í Bandaríkjunum. Ted Arni Jessen
rekur ættir til Áma Guðmundsson-
ar, sem flutti frá Eyrarbakka til
Bandaríkjanna árið 1872. Þau hjón-
Ferðalagið milli Chicago og íslands,
gisting og máltíðir, kostar alls um
700 dollara eða 28.000 krónur.
Vestur-íslendingarnir sem koma
föstudaginn langa á vegum séra
Kolbeins:
Hannes og Bette Andersen
Lorraine Andersen
Mary Anderson
Olivia Anderson
Mitt Austin
Ann Bansen
Phyllis Begun
Fred og Beatrice Bjarnarson
Verna Boyle
Myrtle Breitzman
Deeann Brown
Patricia Cauldwell
Helen DeKornfeld
Marilyn Domer
Genevieve H. Ellefson
Orin og Janet Engelson
William Engelson og eiginkona
Janet Engstrom
Maxine Engstrom
Harry Fowler
Lillian Getchius
Gene og Elayne Gislason
Julie Grandy
Nathan Gunnlaugson
Lois Hagen
Lucien og Margaret Hansen
Ray og Barbara Hansen
Dorothy Hanson
Norman og Lorraine Hanson
Ralph og Jeannette Hutchins
Ted og Lou Ann Jessen
Ben og Gladys Johnson
Ivan Johnson og eiginkona
Carol Jornt
Ellen Landwehr
Phyllis Larson