Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 13
v«or jtímA ?.r auDAauxivarM .aiaAuawioflOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
13
Málflutningskeppni norrænna
laganema haldin á Þingvöllum
HÉR á landi var nýverið staddur
prófessor Jacob W. F. Sundberg
við lagadeild Háskólans í Stokk-
hólmi. Hann annast framkvæmd
málflutningskeppni laganema á
Norðurlöndum og kannaði hann
m. a. aðstæður hérlendis til að
halda keppnina.
Keppni sú, sem hér er um að ræða
er sérstakur „kúrs“ í evrópurétti
og snýst málflutningurinn um mál
á sviði Mannréttindasáttmála Evr-
ópu. í tengslum við hverja þá
lagadeild, sem þátt tekur í keppn-
inni eru stofnaðir svokallaðir
„lögmannsklúbbar"; keppnishópar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Prófessor Jacob W. F. Sund-
berg: „Þingvellir hafa ákveðið
lögfræðilegt aðdráttarafl."
laganema, sem starfandi lögmenn
veita forstöðu. Garðar Garðarsson
hæstaréttarlögmaður veitir for-
stöðu íslenska hópnum.
„Keppnin fer þannig fram, að öll
lið fá senda atvikalýsingu og fá þau
tvær vikur til þess að ganga frá
skriflegum greinargerðum í málinu.
Þegar dómarar hafa lokið við að
yfirfara greinargerðir, hefst munn-
legur málflutningur", sagði pr.
Sundberg. Liðin geta lent bæði
sóknar- og varnarmegin og er því
hveiju liði skipt í sóknar- og vamar-
lið.
„Keppnin hófst 1984 og taka
þátt í henni lið frá Kaupmanna-
höfn, Árósum, Stokkhólmi, Lundi,
Uppsölum, Osló og nú síðast
Reykjavík. Við erum einnig að vinna
að því að fá Finna með, en meðal
Norðurlanda hafa þeir ákveðna sér-
stöðu, þar sem þeir eru ekki aðilar
að Evrópusáttmálanum."
Aðspurður um tilgang þessarar
keppni, sagði próf. Sundberg að
hann væri margþættur. Fyrst og
fremst væri þetta æfing fyrir laga-
nema, annars vegar í gerð greina-
gerða og munnlegum málflutningi
og hins vegar í notkun reglna Evr-
ópusáttmálans. Einnig er tilgangur-
inn með þessu að auka samskipti
norrænna laganema innbyrðis og
við lögmenn og dómara frá Norðurl-
öndum. Einnig má segja að þetta
sé kjörinn vettvangur fyrir starf-
andi lögmenn að „njósna" um
lögmannsefni."
„Viðbrögð hafa verið mjög góð
við þessari keppni og lögmenn ver-
ið mjög áhugasamir, enda sjá þeir
hugsjónir eftirstríðsáranna að baki
stofnun Evrópusáttmálans lifandi í
lögfræðilegri umræðu. Einnig er
það nokkuð skemmtilegt, að
frammistaða laganemanna er orðið
mikið metnaðarmál á milli þeirra
lögmannsstofa, sem veita þeim for-
stöðu.“
Lögmannsklúbbur Garðars Garð-
arssonar hrl. tók í fyrsta sinn í þátt
í keppninni í fyrra og náði þeim
merka árangri að ná þriðja sæti.
Aðspurður um tungumálaörðug-
leika, sagði próf. Sundberg að þeir
væru alls ekki fyrir hendi í greinar-
gerðunum en væru hins vegar
ákveðið vandamál í munnlega mál-
flutningnum. „Til dæmis eiga Danir
og Svíar mjög erfitt með að skilja
hvern annan. Skilningurinn byggist
mest á æfingu, en einnig eru
ákveðnar reglur, svokallaðar
„sprakprotest", sem felast í því, að
menn geta mótmælt ef gagnaðilinn
talar of hratt eða óskýrt eða notar
óskiljanleg orð. Verður hann þá að
hægja á sér og skýra orð sín.“
Próf. Sundberg hefur undanfarið
venð að kanna aðstæður hérlendis
til að halda keppnina. „Það er stefnt
að því að halda keppnina hérlendis
1989; undanrásir færu þá fram ein-
hvers staðar í Reykjavík, undanúr-
slit vonandi í Hæstarétti og
úrslitakeppnin á Þingvöllum, enda
hafa Þingvellir ákveðið lögfræðilegt
aðdráttarafl."
Að endingu sagði próf. Sundberg
að keppni þessi væri eins konar
evrópsk útgáfa á bandarískri hug-
mynd („Moot Court Competition")
og keppni með svipuðu formi væri
einnig háð í Frakklandi. „Það er
von mín, að í framtíðinni verði þessi
keppni ekki bara útfærsla á ró-
mantík norrænna lögfræðinga,
heldur alþjóðlegt fyrirbæri."
Auglýsendur athugið
ÚTGÁFUDAGAR Á NÆSTUNNI ERU SEM HÉR SEGIR:
16. APRIL
FIMMTUDA GUR
skírdagur
Skilafrestur auglýsinga
14. apríl kl. 16:00
22. APRIL
MIÐVIKUDAGUR
síðasti vetrardagur
Skilafrestur auglýsinga
15. apríl kl. 16:00
23. APRIL
FIMMTUDAGUR
sumardagvrínn fyrsti
Skilafrestur auglýsinga
21. apríl kl. 16:00
25. APRIL
LAUGARDAGUR
alþingiskosninga.
Skilafrestur auglýsinga
22. apríl kl. 16:00