Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
Iþróttaskemman verður vettvangur
menningarstarfsemi í sumar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson
Bárdur Halldórsson og Hreiðar Jónsson fyrir utan íþróttaskem-
muna. Listaverkið sem þeir standa hjá gerði Jóhann Ingimarsson,
betur þekktur sem Nói í Örkinni hans Nóa.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
Iþróttaskemman á Oddeyri verði
notuð undir menningarstarfsemi
frá 15. maí næstkomandi til 1.
september.
Það er menningarmálanefnd
bæjarins sem tekur að sér þetta
verkefni, í samráði við íþróttaráð,
og hefur Hreiðar Jónsson verið ráð-
inn framkvæmdastjóri þess sem
þarna fer fram.
Iþróttaskemman hefur oftsinnis
verið notuð undir alls kyns menn-
ingarviðburði en fyrr hefur starf-
semin ekki verið skipulögð í svo
langan tíma í einu.
Skemman var á sínum tíma
byggð sem geymsla fyrir þunga-
vinnuvélar Akureyrarbæjar en
hefur í áraraðir þjónað íþrótta-
mönnum. Listamenn hafa einnig
fengið þar inni, því eins og þeir
Hreiðar og Bárður sögðu í samtali
við Morgunblaðið er hún „mjög
gott tónleikahús og fyrirtaks sýn-
ingarsalur". Fróðir menn segja
hljómburð hvergi betri í bænum,
enda hafa margir vel heppnaðir
tónleikar farið þama fram.
Skemman verður opin fyrir alla
listamenn og bentu þeir félagar á
Söludeild Pósts og síma breytt
SÖLUDEILD Pósts og síma á
Akureyri var í síðustu viku tekin
í notkun á nýjan leik eftir miklar
breytingar.
að tilvalið væri fyrir menn að taka
sig saman, nokkra myndlistarmenn
eða tónlistarmenn með myndlistar-
mönnum — því húsið væri ömgg-
lega of stórt fyrir marga til að sýna
þar einir. Einhverjir hafa þegar
ákveðið að sýna í Skemmunni í
sumar — hafa pantað tíma — en
þeir sem hafa hug á slíku geta
haft samband við Hreiðar Jónsson
í Skemmunni í síma 21530, eða
heima í síma 21352. „Við sækjumst
eftir að menn hafi samband og
höfum áhuga á hvers kyns sýning-
um og tónleikum," sögðu þeir.
Það var Hreiðar sem átti hug-
myndina að því að skipuleggja
menningarstarfsemi sem þessa í
íþróttaskemmunni yfir sumarmán-
uðina — hefur verið með hana í
kollinum í 1-2 ár að sögn, og „eftir
að Bárður fór í menningarmála-
nefndina fór eitthvað að gerast í
málinu“, eins og Hreiðar sagði.
Skíðatrimm í
Hlíðarfialli
Skíðaáhugamönnum stendur
margt til boða í Hlíðarfjalli um
þessa páska eins og undanfarin
ár. Flugleiðatrimm verður á
sínum stað og einnig trimm sem
Skíðaráð Akureyrar verður með.
Á morgun, skírdag, verður Flug-
leiðatrimm í svigi. Flokkur 13-14
ára verður kl. 10.00, flokkur 10-12
ára kl. 12.00 og kl. 13.30 hefst
keppni fyrir 9 ára og yngri. Skrán-
ing fer fram í Strýtu rétt áður en
keppni hefst. Öllum er heimil þátt-
taka. Keppt verður um verðlauna-
peninga en allir þátttakendur fá svo
viðurkenningu.
Á laugardag, 18. apríl, gangast
Skíðaráð Akureyrar og foreldraráð
SRA fyrir kepni í samsíða svigi
fyrir 12 ára og yngri. Keppni hefst
kl. 14.00 og geta allir krakkar kom-
ið og verið með. Keppt verður um
verðlaun.
Á páskadag verður Flugleiða-
trimm í göngu. Boðið verður upp á
tvær vegalengdir, 4 og 8 kílómetra.
Brautin verður opin öllum sem vilja
frá kl. 10.00 en tímataka hefst kl.
14.00. Sigurvegarinn í hvorri vega-
lengd hlýtur að launum helgarferð
með Flugleiðum en eins og undan-
farin ár verður svo dregið eitt nafn
úr hópi allra þátttakenda — og hlýt-
ur sá heppni utanlandsferð með
Flugleiðum.
„Það má segja að héðan hafi öllu
verið rutt út og byggt upp á nýtt,“
sagði Gísli Eyland, stöðvarstjóri, í
samtali við Morgunblaðið. Aðstaða
er nú öll mun betri en áður var
fyrir viðskiptavinina, plássið rýmra
og því gefst betri kostur á að skoða
vöruna. Þama eru til sýnis þau
símatæki sem til sölu eru, innan-
hússsímstöðvar, póstfax-tæki og
tölvutelextæki svo eitthvað sé
nefnt.
Þegar söludeildin var opnuð á
nýjan leik sýndu starfsmenn fyrir-
tækisins viðstöddum öll helstu
tækin sem til sölu eru og útskýrðu
hvemig þau virka. Þróunin í tækj-
um sem þessum er mjög hröð að
þeirra sögn, „við erum alltaf að fá
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ársæll Magnússon, umdæmisstjóri Pósts og síma, ávarpar viðstadda.
eitthvað nýtt,“ sögðu þeir, og þama reyna í fyrsta skipti. Það kom til
var gestum til dæmis sýnt nýtt landsins þremur dögum áður.
póstfax-tæki, sem verið var að
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Frá afhendingu tækjanna um helgina. Frá vinstri: Þorkell Guð-
brandsson, yfirlæknir lyfjadeildar, Rúrík Kristjánsson og Sigurveig
Halldórsson, stjórnarmenn í Samtökum hjartasjúklinga, Ingólfur
Viktorsson, formaður Samtakanna, og Friðrik Yngvason, læknir.
€S
Davíð Jónsson sýnir hvernig nýj-
ustu póstfax-tækin vinna.
Sjónvarp Akureyri
MIÐVIKUDAGUR
15. apríl
18.00 Hvarf Harrys (Disappearanoe of
Harry). Bresk sjónvarpskvikmynd
með Annette Crosbie, Cornelius
Garret og David Lyon í aöalhlutverk-
um. Einn morguninn fer Harry
Webster í vinnuna eins og vana-
lega, en hann kemur ekki heim
aftur. Kona hans hefur leit að hon-
um og er brátt komin á óhugnan-
lega slóö.
19.40 Frambjóöendur og fréttamenn.
Málmfríður Siguröardóttir, Kvenna-
lista, svarar spurningum.
20.00 Hardy-gengiö. Teiknimynd.
20.25 Benny Hill. Breskur gamanþátt-
21.00 Allt í gamni. Nýr innlendur
skemmtiþáttur í umsjón Ladda og
Júlíusar Brjánssonar. í þætti þess-
um fá þeir til liös viö sig gesti og
gangandi og spjalla við þá í léttum
dúr.
§21.35 Innflytjendurnir (Ellis Island).
Seinni hluti. Þúsundir manna
streymdu um hlið útlendingaeftirlits-
ins á Ellis-eyju. I þessum banda-
rísku sjónvarpsþáttum er fylgst meö
afdrifum nokkurra þeirra. Meö aöal-
hlutverk fara Peter Riegert, Faye
Dunaway, Kate Burton og Richard
Burton, en þetta er siöasta hlutverk-
iö sem hann lék.
00.40 Dagskrárlok.
Landssamtök hjartasjúklinga:
Gjafir til FSA
LANDSSAMTOK hjartasjúkl-
inga afhentu Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri um helgina
formlega tæki sem þau hafa gef-
ið stofnuninni. Hér er um að
ræða sjálfvirkan blóðþrýstimæli
og fullkomið hjartalínuritstæki.
Að sögn Ingólfs Viktorssonar,
formanns Samtaka hjartasjúklinga,
gáfu samtökin tæki á síðastliðnu
ári fyri samtals 6.650.000 krónur.
VELKOMIN TIL
AKUREYRAR
FLUGLEIÐATRIMM A SKIÐUM
Skírdagur Svig, flokkur 13-15 ára kl. 10.00.
Svig, flokkur 10-12 ára kl. 12.00.
Svig, flokkur 9 ára og yngri kl, 13.30.
Páskadagur Skíðaganga 8 km og 4 km kl. 14.00
Trimm fyrir alla fjölskylduna — Vegleg verðlaun f boði.
„Þá tala ég um það sem við greiðum
fyrir tækin, en með aðflutnings-
gjöldum og tollum, sem við fáum
niðurfelld, yrðu þau miklu dýrari.
Raunvirði gjafa er um 13 milljón-
ir,“ sagði hann:
Þorkell Guðbrandsson, yfirlæknir
lyfjadeildar Fjórðungssjúkrahúss-
ins, tók við gjöfunum fyrir hönd
stofnunarinnar og sagði þær afar
kærkomnar. Sagði hann um 60
sjúklinga koma á lyfjadeildina ár-
lega vegna kransæðastíflu og að
þar til nú hefði ekki verið hægt að
veita hér ýmsa þjónustu. Það
breyttist hins vegar með tilkomu
þessara tækja. Tækin hafa verið í
notkun á sjúkrahusinu í nokkurn
tíma. „Blóðþrýstimælirinn kom
hingað á Þorláksmessu og við not-
uðum hann strax á aðfangadag.
Menn voru þá mjög ánægðir með
hann — við litum á þetta sem góða
jólagjöf. Það hefur verið mjög góð
reynsla af tækjunum," sagði Þor-
kell.