Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
SttsSm
VEITINGAHÚS
Vagnhöfða 11, Reykjavík. Sími 685090.
Nýjuog gömlu dansarnir
í kvöld frá kl. 21—03.
Hljómsveitin Danssporið ásamt söngkonunni
Kristbjörgu Löve leika fyrir dansi.
Vinsamlegast athugið að þetta er síðasti dansieikur fyrir páska
Dansstuðið er í ÁrtúninM
breyttan
,narlí*na-
Stórstjörnur 09
sveitir sjöunda j
arins \ ^
\ifandi tonlistar
TrV99v'
Stórsöngkona
sjöunda
áratugarins
Shady Owens
Morgunblaðið/Theodór
Einar Ingimundarson málarameistari við eitt þeirra málverka sem
verða á sýningnnni í Samkomuhúsinu í Borgarnesi, sem opnar þann
23. apríl og stendur til 3. maí.
•Málverkasýning í Sam-
komuhúsinu Borgamesi
Borgarnesi.
SUMARDAGINN fyrsta, 23. apríl
næstkomandi, opnar Einar Ingi-
mundarson málarameistari í
Borgarnesi sölusýningu á yfir
tuttugu stórum olíumálverkum í
Samkomuhúsinu í Borgarnesi.
Sum þessara málverka sýndi Ein-
ar á afmælishátíð Lionsklúbbs
Borgarness sem haldin var í
Hótel Borgarnesi nýlega.
Einar bytjaði snemma að fást við
listmálun og hélt sína fyrstu mál-
verkasýningu í Borgarnesi 1947 er
hann var 16 ára. Einar stundaði
myndlistarnám bæði hérlendis, í
Svíþjóð og Þýskalandi, jafnframt
námi í húsamálun.
Myndir Einars á þessari sýningu
eru fyrst og fremst heimildir um
sögu Borgamess og nágranna-
byggðarlaganna á Snæfellsnesi,
Ólafsvík og Grundarfirði. Innan um
eru einnig nýleg mótíf og má þar
nefna nokkrar hauststemmningar
frá Norðurárdalnum. Einar Ingi-
mundarson hefur verið athafnasam-
ur húsamálari í Borgarnesi
undanfarin 25 ár. En hann hefur
fengist við fleira en myndlist í
frístundum sínum. Einar hefur tek-
ið mikið af ljósmyndurn og kvik-
myndum af merkum atburðum í
sögu Borgarness. Þessar myndir
hefur Einar sýnt Borgnesingum við
góðar undirtektir.
- TKÞ