Morgunblaðið - 16.04.1987, Page 13

Morgunblaðið - 16.04.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987 <13 Þorsteinn og Ingibjörg heima i stofu með börnum sínum þremur, Aðalheiði Ingu, Páli Rafnari og Þórunni. Morgunblaðið/Árni Sœberg á sumrum á Akureyri — og svo þurfti maður að breyta mállýskunni í samræmi við það, vor og haust! Enda þótt ekki hafi verið talað öllum stundum um pólitík á heimil- inu fann maður mikið fyrir henni. Starf landsbyggðarþingmanna fór mikið fram á heimilum þeirra, þar voru t.d. oft haldnir fundir trúnað- armanna og stundum komu for- ystumenn flokksins að sunnan í heimsókn. Þá sat maður álengdar, fylgdist með og hlustaði ef maður komst upp með það. En fyrstu beinu afskipti mín af pólitík voru á háskólaárunum þegar ég var kosin í stjóm Vöku á fyrsta eða öðru ári mínu í lögfræði. Seinna var ég um skeið varaformaður Varðar í Reykjavík og varaformað- ur Sambands ungra sjálfstæðis- manna, og það leiddi svo til þess að ég fór í framboð til borgarstjóm- arkosninga í Reykjavík og sat þar í fjögur ár, 1982—86, og var um tíma varaforseti borgarstjómar. Eftir að Þorsteinn var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins og varð ráðherra, var augljóst eins og ég vék að áðan, að það myndi vera allt of mikið álag fyrir fjölskylduna ef ég væri líka á kafí í pólitík. Það kallaði á mikla vinnu á daginn að sitja í borgarráði og síðan fylgdu því ýmsar félagslegar skyldur á kvöldin, svo að það var ekki um annað að ræða en að draga sig í hlé. Það stóð hins vegar aldrei til að ég hætti með öllu að starfa utan heimilis — og nú höfum við Ásdís systir mín opnað saman lögmanns- stofu í Skeifunni í Reykjavík. ÞAÐ BEYGÐIST SNEMMA KRÓKURINN Þorsteinn Pálsson er fæddur á Selfossi 29. október 1947, sonur hjónanna Ingigerðar N. Þorsteins- dóttur, sem nú er látin, og Páls Sigurðssonar, skrifstofumanns hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins. Faðir minn er Eyrbekkingur, seg- ir Þorsteinn, og föðurfólk mitt bjó þar og á Selfossi. Móðir mín var ættuð í annan liðinn úr Ánanaustum en í hinn vestan af fjörðum. Ég hef stundum þurft að bregða því fyrir mig að ég væri Vestfírðingur að einum fjórða! Einn langafi Þorsteins var Ámi Gíslason yfirfiskmatsmaður á ísafírði sem árið 1902 setti vél í fískibát, fyrstur manna hérlendis. Báturinn hét Stanley og hefur Þor- steinn mynd af honum upp á vegg í skrifstofu sinni í Valhöll. Já, ísfirðingar sendu mér hana fyrir nokkrum árum og mér þykir ákaflega vænt um að hafa hana fyrir augunum svo til daglega. Hún minnir mann óneitanlega á mikinn framfara- og átakamann. Fyrir mér er hún líka tákn um það hvemig einstaklingar ryðja brautina. I framtaki þeirra býr afl framfar- anna. Þorsteinn var tíu ára þegar for- eldrar hans fluttu til Reykjavíkur og hefur hann búið þar síðan. Hann tók stúdentspróf frá Verzlunarskól- anum og síðan lagapróf frá Háskóla íslands. Þau Ingibjörg kynntust þegar þau vom saman í stjóm Ora- tors, félagi laganema. Ég fékk mjög snemma áhuga á pólitík, segir Þorsteinn, og las allt sem ég komst yfir um stjórnmál í blöðum og bókum. Á unglingsaldri sótti ég fundi í Heimdalli og á fyrstu ámm mínum í Verzlunar- skólanum fór ég gjaman á þing- pallana þegar kennslu lauk á daginn. Strax á fyrsta ári í Háskól- anum var ég kjörinn formaður Vöku og það hefur eflaust hmndið manni af stað að takast á við stærri verk- efni í félagsstarfi. Þá var eins og kunnugt er mikið umrót í Evrópu og ég held að við höfum verið að veija eina hægra vígið í öllum há- skólum Evrópu. Baráttan var hörð í stúdentaráðskosningunum haustið 1969 og það endaði með því að list- amir fengu jafn mörg atkvæði, Vaka og sameinaður listi vinstri manna. Hlutkesti var því látið ráða úrslitum og heppnin var með okk- ur. Við drógum miða úr hvítu koddaveri og ég á ennþá þennan miða sem réð úrslitum. ÁBYRGÐ FJÖLMIÐLA OG VANDI STJÓRN- MÁLAMANNA Síðla vetrar 1970 var Þorsteinn ráðinn til að skrifa um stjómmál í Morgunblaðið og vann þar næstu sumur og einnig talsvert á vetmm meðfram námi sínu. Eftir að hann lauk laganámi starfaði hann heilt ár sem blaðamaður á Morgunblað- inu en var þá ráðinn ritstjóri Vísis 1975. Þar var Þorsteinn við stjóm- völinn til 1979 í harðri samkeppni við hið nýstofnaða Dagblað. Hvað fínnst honum sem gömlum blaða- manni um þá íjölmiðlaveislu sem landslýð hefiir verið boðið til á und- anfömum vikum? Sjálfur byrjaði ég nú mjög fljótt að skrifa um nauðsyn þess að gefa útvarpsrekstur fijálsan og þegar ég kom á Vísi gerði ég það eitt af baráttumálum blaðsins. Þau skrif féllu hins vegar í grýttan jarðveg, það fór lítið fyrir undirtektunum og það er ekki síst í því ljósi sem mér fínnst ánægjulegt að hafa átt þátt í að setja lög um fijálsan út- varpsrekstur á Alþingi og sjá þau núna í framkvæmd. Hins vegar leyni ég því ekki að mér fínnst þessi mikla fjölmiðlaum- ræða og umlj'öllun öll dálítið losara- leg og ekki alltaf í nógu miklu jafnvægi. í gamla daga höfðu stjómmála- flokkamir öll tök á íjölmiðlunum, blöðin voru þeirra málgögn og rit- stjórarnir sátu síðan í útvarpsráði og höfðu stjóm á ríkisútvarpinu. Þá komst engin önnur mynd af pólitískri umræðu út til kjósenda en sú sem flokksforingjamir ákváðu. Núna er þetta gjörbreytt, eins og allir vita, og það má segja að þetta vald sé nú komið til hinna ftjálsu fjölmiðla. Og það er hollt fyrir lýðræðið í landinu. En um leið hvílir mikil ábyrgð á þeim sem starfa við fjölmiðlana. Þeim ber einnig að viðhalda ákveðinni festu í þjóðfélaginu og tryggja réttarör- yggi borgaranna, vemda friðhelgi einkalífsins og heimilanna. Mér fínnst að fjölmiðlarnir eigi ekki að vera undanskildir þessari ábyrgð, enda þótt þeir takist nú á við nýtt mikilvægt hlutverk með auknu fijálsræði. Þvert á móti eykst ábyrgð þeirra í krafti þessa mikla valds sem þeir nú hafa fengið. Ég hef það stundum á tilfínning- unni að stjómmálamenn þori ekki annað en að svara spumingum blaðamanna, gefa þær upplýsingar sem um er beðið, af ótta við að styggja fjölmiðlana og fá þá upp á móti sér. Þess vegna leiðast menn stundum út í að ij'alla opinberlega um mál löngu áður en það er tíma- bært og er óþarft að fara orðum um hversu varhugavert slíkt getur verið. Þetta er vandi sem bæði stjómmálamenn og _ blaðamenn þurfa að átta sig á. Ég lít ekki á fijálsa fjölmiðla sem hótun og bít því blaðamenn af mér ef mér sýnist svo. Slík viðhorf em ekki alltaf fall- in til stundar vinsælda. HVER TÍMI KALLAR Á NÝJA MENN Á ámnum 1979—83 gegndi Þor- steinn störfum framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands íslands, en var þá kosinn á þing fyrir Suður- landskjördæmi og nokkm síðar tók hann við formennsku Sjálfstæðis- flokksins af Geir Hallgrímssyni. Já, það bar brátt að, en flest í mínu lífí hefur nú gerst með skjót- um hætti. Það bar að með skjótum hætti að ég varð blaðamaður á Morgunblaðinu, ritstjóri Vísis og framkvæmdastjóri VSÍ. Geir Hallgrímsson tilkynnti þá ákvörðun sína að gefa ekki kost á sér aftur til formennsku í Sjálfstæðisflokkn- um síðla sumars 1983. Hann ræddi þá ákvörðun sína meðal annars við okkur Davíð Oddsson og eftir nokkrar bollaleggingar var afráðið að ég biði mig fram til starfans. Jú, jú, mikil ósköp, það hvarflaði að mér að ég væri ftill ungur til að takast þetta á hendur, en eins og raun ber vitni lét ég þær vanga- veltur ekki hafa áhrif á mig. Það var eitt sem ég einsetti mér þegar þetta varð ofan á og það var að reyna að vera ég sjálfur. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur átt mikil- hæfa foringja sem vísuðu veginn og enn eru margir í flokksstarfí sem unnu með Ólafí, Bjama og Jó- hanni, altur fjöldinn með Geir og jafnvel enn í dag hittir maður menn sem voru komnir til starfa á tíma Jóns Þorlákssonar. Ég held hins vegar að það væri fráleitt að reyna að verða einhver eftirlíking þessara forvera, þótt þeir hafi risið hátt. Þeir nutu sín í sínum eigin samtíma — en nú eru aðrir tímar og ég auð- vitað öðruvísi maður en þeir. Sérhver tími kallar á nýja menn og SJÁ BLS. 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.