Morgunblaðið - 16.04.1987, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.04.1987, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987 eins og Fridrik Sigurðsson matreiðslnmeistari í Tbrfunni RJÓMAÍS MEÐ RIBS- OG JARÐARBERJUM 4Egg 2 matsk. Heitt vatn 225 gr. Frosin Sól jarðarber 225 gr. Frosin Sól ribsber !ó líter Rjómi 300 gr. Sykur Blandið ribsberjunum og jarðarberjunum saman í bakka. Stráið 150 gr. af sykri yfir og látið þiðna vel. Blandið eggjarauðunum og 150 gr. afsykrinum saman í potti. Þeytið upp við vægan hita, uns þetta er orðið vel stíft (ca. 5 mín.). Takið af hitanum og hrærið rólega í, uns þetta er farið að kólna nokkuð. Blandið saman eggjahvítu og rjóma, þeytið upp uns þetta er vel stíft. Blandið að endingu saman kreminu og rjómanum, varlega með sleif. Setjið berin saman við og 3-4 matskeiðar af safanum sem myndast hefur af berjunum. Sett í skál eða ísform og fryst í ca. 6 klukkustundir. Sól hf. með afbrigðum og vildi hafa allt á hreinu og gætti hann þess vel að skulda engum neitt. Einar var ekki mikill félagsmála- maður, enda naut hann sín best, hvort sem var heima eða heiman, í góðum stól með góða og fræðandi bók, enda var fróðleikur hans mik- ill, hvort sem var á sviði tungumála, læknisfræði eða heimsmálanna. Þó var einn félagsskapur sem hann stundaði vel á árum áður og það var Oddfellow-reglan, sem hann mat mikils og minntist oft á með mikilli virðingu og hlýhug. Oft ræddum við um æskuslóðir hans og það var eins og kæmi sér- stakur ljómi yfír allt andlitið þegar talað var um Svalbarða og Raufar- höfn og grunar mig, að þeir staðir hafí í huga hans komið næst himna- ríki. Á undanfomum árum hef ég ferðast töluvert. Ávallt fylgdist Ein- ar vel með og spurði margs. Það var með 'olíkindum hvað hann vissi og skipti ekki máli hvort var um að ræða eyjuna Möltu eða Hom- strandir. Alls staðar var hann jafn vel að sér. Margs er að minnast og gott að eiga jafngóðar minningar fyrir sig. Lífíð er til þess að þroskast og ná lengra til fullkomnunar. Að kynnast manni eins og Einari, sem ávallt var tilbúinn að gefa af sjálfum sér, án þess að fá eitthvað í staðinn, hlýtur að vera þroskandi. Það var gaman að sjá þau hjónin á rölti í bænum. Þau bökkuðu hvort annað upp með krafti og dugnaði, enda bæði ávallt tilbúin að fóma sér til að gera öðmm greiða. Mig langar sérstaklega að fá að þakka honum fyrir, hversu hugul- samur hann var í veikindum móður minnar og hversu mikið hann bar hag hennar fyrir brjósti. Elsku Gyða frænka mín. Góður Guð styrki þig í sorgum þínum. Matthias Guðm. Pétursson Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. Þessi setning, svo ör- stutt og einföld, segir svo ótal mikið að mínu mati. Að heilsa þeim sem við mætum á lífsleiðinni, því fylgir oftast gleði og fögnuður, en að kveðja þann sem manni þykir vænt um, fylgir viss tregi og tóm. Einar Pálsson, sem við kveðjum nú, fæddist á Hólsfjöllum í lok jan- úarmánaðar 1898, en ólst upp nyrst á okkar norðlæga landi, nánar til- tekið á Svalbarði við Þistilfjörð, sonur prestshjónanna þar. Mér býð- ur í grun að umhverfíð, stórbrotið landslag og harðir og dimmir vetur hafí mikið mótað ungan dreng. Sömuleiðis menning prestsheimilis- ins þar sem lestur góðra bóka og virðing fyrir öllu sem andar var í hávegum höfð. Einar kvæntist uppáhalds móðursystur minni, Gyðu, og varð þannig í gegnum hana minn besti frændi og á þeirra góða heimili átti ég í æsku minni yndislegar stundir og ógleymanleg- ar þar sem hlúð var að mér og ég umvafín elsku eftir föðurmissi og tímabundna fjarveru móður minnar. Já, fyrir þetta allt þakka ég af al- hug. En það var fleira. Einar stórfróð- ur og víðlesinn maður varð minn leiðbeinandi og fræðari þegar ég á skólaárum mínum þurfti á hjálp að halda. Alltaf gat ég komið og alltaf var mér tekið opnum örmum og Einar útskýrði og kenndi í mestu rólegheitum sem honum einum var lagið. Einar Pálsson var farsæll maður í sínu langa lífí, maður sem mátti ekki vamm sitt vita, maður af gamla skólanum eins og sagt er, því tímamir hafa sannarlega breyst og mennimir með frá aldamótum og fram til dagsins í dag. Að heilsast og kveðjast er lífsins saga. Spámaðurinn Kahlil Gibran segir: „Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjarvem hans eins og fjaligöngu- maðurinn sér fjallið best af slétt- unni.“ Ég kveð Einar Pálsson með hjartans þökk fyrir allt og allt og óska honum góðrar ferðar. Helga Mattína Björasdóttir Minning: Einar Pálsson Fæddur 29. janúar 1898 Dáinn 9. apríl 1987 Einar Pálsson fæddist á Víðihóli á Hólsfjöllum þann 29. janúar 1898. Foreldrar hans voru Páll Hjaltalín Jónsson sóknarprestur og síðar pró- fastur á Svalbarði í Þistilfírði og kona hans, Ingveldur Einarsdóttir. Einar var elsta bam þeirra hjóna en önnur voru: Ámi f. 1899, Ást- hildur f. 1901, Ingveldur f. 1904 og Þyri Ragnheiður f. 1910. Ámi er eini sem er á lífí í dag. Einar lauk prófí frá Gagnfræða- skóla Akureyrar 1915. Hann varð að hætta námi eftir 4. bekk í Menntaskólanum í Reykjavík vegna augnveiki. Hann var prófdómari við vorpróf bama í Svalbarðshreppi 1921—24. Árið 1931 hóf hann störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og starfaði þar til þess er hann náði hámarksaldri opinberra starfs- manna, síðustu árin sem deildar- stjóri. Þegar rifjað er upp er margs að minnast. í hugann koma þau ótal skipti sem hann aðstoðaði okkur við heimanám. Hann hafði ávallt tíma til þess og þá var ekki verið að flumbrast áfram eða drífa hlut- ina af. Nei, í þessu sem öðru var hann vanur að vanda sig og gefa sér tíma, enda mjög rólegur að eðl- isfari. Hann átti líka auðvelt með þetta því hann var víðlesinn og sjálf- menntaður. Einar ferðaðist ekki mikið, en þó hafði hann farið tvisvar til Græn- lands til að skoða og kynnast fólkinu og landinu. Hann var mjög áhugasamur og fylgdist vel með því sem gerðist þar og sagði oft frá ferð sinni þangað. Hann gekk mik- ið og naut þá útiverunnar, sem hann taldi nauðsynlegt mótvægi við þá inniveru sem fylgdi skrifstofu- starfi. Árið 1953 verða þáttaskil í lífí Einars, þegar hann kvæntist móð- ursystur minni, Gyðu Guðmunds- dóttur Guðnasonar skipstjóra og konu hans, Mattínu Helgadóttur, en hún starfaði einnig hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Þeim varð ekki bama auðið. Þau stofnuðu heimili á Leifsgötu 3, Reykjavík, og bjuggu þar alla tíð síðan. Þangað komum við systkina- böm Gyðu og böm okkar oft. Þar var gott að koma. Þau hjónin ein- staklega samhent og vildu allt fyrir alla gera. Aldrei minnist ég þess að hafa nokkru sinni heyrt Einar tala styggðaryrði um nokkum mann, enda maðurinn heilsteyptur og traustur. Nákvæmur var hann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.