Morgunblaðið - 16.04.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.04.1987, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987 UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð Símar: 689004 - 689005 - 689006 Utankjörstaðakosning ferfram hjá borgarfógetanum í Reykjavík í Ármúlaskóla alla daga frá kl. 10-12,14-18 og 20-22 nema sunnudaga og aðra helgidaga kl. 14- 18. Lokað föstudaginn langa og páskadag. Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosn- ingunum. Aðstoð við kjörskrárkærur. Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstofuna ef þið verðið ekki heima á kjördag. EF Í>Ú VILT GLEÐJA EINHVERN UM PÁSKANA GEFURÐU MÓNV PÁSKAEGG NÝTT OG ENN BETRA, SYKURMINNA SÚKKULAÐl í PÁSKAEGGJUNUM FRÁ MÓNU! ÁSKRIFENDUR AÐEINS EITT SÍMTAL 691140 691141 Með einu símtali er hægt að breyta innheimtuað- ferðinni. Eftir það verða áskriftargjöldin skuldfaerð á E Áskriftarsíminn er 83033 Skúlp- túrí Kjar- valssal Myndlist Valtýr Pétursson Steinunn Þórarinsdóttir naut starfslauna Reylgavíkurborgar á seinasta ári og efnir nú til sýning- ar á þeim verkum, sem orðið hafa til, meðan starfslaunanna naut við. Ekki verður annað sagt en að vel hafi til tekizt með laun- in að þessu sini — það sýna hin heillandi verk, sem Steinunn hef- ur unnið á þessum tíma og nú eru til sýnis í austursal Kjarvals- staða. Það er nokkuð síðan verk Steinunnar vöktu athygli mína og sýning hennar á Kjarvalsstöð- um 1982 var bæði forvitnileg og lofaði góðu, en vart var hægt að láta sér koma í hug, að hún næði þeim árangri, sem blasir nú við, að jafn skömmum tíma liðnum. Það er skemmst frá að segja, að verk Steinunnar hafa fengið þann svip, sem ótvírætt sannar gildi þeirra sem „plastísks“ skúlptúrs, hvort held- ur hún vinnur í gler, jám eða leir. Verkin bera vitni um mikla kunnáttu og Steinunn vinnur ber- sýnilega af mikilli alvöm og yfirvegun. Það er þokki yfír þess- um verkum og stíllinn er persónu- legur. Það er sama hvaða efni er í höndum þessarar listakonu, allt öðlast það visst líf og tilgang. Kjami málsins blasir við á ein- faldan og skiljanlegan máta. Hér eru hlutimir hnitmiðaðir og hor- tittir ekki til. Hér em stór orð notuð, en að mínu mati ekki að ástæðulausu. Sýning Steinunnar Þórarinsdóttur er í mínum augum stórviðburður í listalífí borgarinn- ar og ánægjulegt til þess að vita, að Reykjavíkurborg átti sinn þátt í því að stuðla að henni. Og við skulum ekki gleyma því, hvað stuðningur við listafólk getur verið mikils virði, ef rétt er á haldið. Astæða er til að minnast á uppsetningu þessarar sýningar. Hún er með miklum ágætum og listrænt unnin — einnig hefur verið vandað mjög til lýsingar á hveiju verki fyrir sig. En alls em 26 verk til sýnis, og em þau unnin í gler, jám, blý og leir. Heildarsvipur sýningarinnar er með slíkum ágætum, að segja mætti, að sýningin væri lítið ljóð í föstu efni. Þeir, sem unna vem- lega listum og hafa áhuga á skúlptúr, fá vart betra tækifæri til að auðga anda sinn, en ein- mitt á þessari sýningu Steinunn- ar Þórarinsdóttur í Kjarvalssal. BRAVÓ, Steinunn. H
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.