Morgunblaðið - 16.04.1987, Síða 21

Morgunblaðið - 16.04.1987, Síða 21
1 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987 21 augað eygir þegar það drekkur í sig yndi þess og unað. Minnir á að náttúran er ekki leikfang vitrum manni, minnir á skáldskap hennar og hvemig hún kallar fram skáldið í okkur. Minnir á muninn á dauðum greinum skógarhöggsmannsins og grænu tré skálds- ins. Gleymir þá ekki að setja ofaní við okkur með þessum hætti: í sannleika sagt getur fátt fullorðið fólk séð náttúruna. Fæstir sjá sólina. Að minnsta kosti sjá flestir hana með yfirborðslegum hætti. Hún lýsir einungis upp fullorðins auga, en skín inní auga og hjarta bamsins. Samskipti náttúmunnandans við himin og jörð verða hluti af daglegri fæðu hans, segir Emerson. í skauti náttúmnnar fyllist hann villtri gleði. Svo bætir hann þessu við um skógana: í skóginum varpar maðurinn af sér ámn- um eins og snákur kasti af sér hamnum og er ávallt eins og bam, hversu gamall sem hann er ... í skógunum er að fínna eilífa æsku ... í skógunum hverfum við aftur til trúar og skynsemi ... Og ég þekki ekki betri boðskap til þeirra sem unna náttúmnni, hlú að tijám og plönt- um, rækta með sjálfum sér hugmyndir sem þeir breyta í vemleika í lífí og umhverfí, en ábendingar Thoreaus í Walden, eina mannsins sem ég veit til hafí horfið að náttú- mnni og uppfyllt drauma Rousseaus með þeim hætti, sem til var stofnað í ritum hans. Draumur Thoreaus um óspillt líf manns- ins á jörðinni, uppfylltur í vemleika Walden-skógar, var svo magnaður, svo þmnginn innblæstri og miskunnarlausri sjálfsskoðun, að hann gat jafnvel fullyrt til- gerðarlaust að sólin væri einungis morgun- stjama á himninum. Svo mikil em fyrirheit þeirra hugsjóna, sem skógurinn blæs honum í bijóst. Og það er í Walden-skógi sem hann fínnur hug- myndum sínum um manninn og lífíð á jörðinni farveg og fyllingu. Og þessi fylling er ekki fólgin i því að æða til Suðurskauts- ins né Norðurpólsins, til tunglsins eða kringum hnöttinn að telja kettina í Zansibar! Skordýrið maður, segir hann, hlýtur að styrkjast í trú sinni á upprisu og eilífíð, þegar hann heyrir söguna af skordýrinu fallega,' sem kom úr þurru laufí eldgamals borðs úr eplaviði, en þar hafði fræið verið frá því tréð var enn með grænu laufí. Thoreau lýsti vandkvæðum ræktunar- mannsins sem eyðir ævinni í að breyta draumi { vemleika með dálítilli sögu, sem er að fínna í riti hans um Walden: Ferðamaður kom að síki og spurði dreng sem þar stóð, hvort það væri fastur botn í síkinu. Já, sagði drengurinn. En hestur ferðalangsins kviðsökk í síkið. Ég hélt, sagði maðurinn, að þú hefðir sagt það væri fastur botn í síkinu. Já, kallaði drengurinn, en þú ert ekki kominn hálfa leið að þessum harða botni! Þannig emm við sem trúum á skógrækt á íslandi einnig í miðju síkinu. En við emm að koma að hörðum botni. Draumurinn, hugsjónin í gervi drengsins leiðir okkur á bakkann hinumegin. Við eigum einungis að halda áfram. Hesturinn sem ber okkur fylgdi okkur úr aldingarðinum forðum daga. Hann kann að fóta sig. Og veganestið sem Thoreau hefur látið okkur í té dugar vel. Reynslan hefur kennt mér, segir hann, að ef við stefnum ákveðið að takmarki drauma okkar og þomm að lifa því lífi sem við höfum ímyndað okkur, þá náum við óvæntum árangri.. . komumst yfír ósýnileg mörk . .. kynnumst nýrri veröld með fijáls- legri lögum innan okkar og utan við okkur . .. eða þá eldri reglur verða sveigjanlegri, þær verða okkur hagkvæmari og fijálslegri og við náum æðri stigum í lífínu ... því einfaldara líf, því óflóknari veröld og ein- veran verður ekki einvera né fátæktin fátækt né verður hið veika veikt ... „Ef þú,“ segir Thoreau, „hefur byggt kastala í loftinu, þarf það ekki að vera til einskis. Þar eiga þeir að vera. Og þú skalt setja undirstöður undir þá.“ Við emm efni sem draumar em gerðir af, segir Shakespeare í The Tempest. Skóg- rækt á íslandi er slíkur draumur. Þess vegna er hún jafn mikilvægur vemleiki og við. Vemleiki sprottinn úr draumi um garðinn þar sem á okkur var lagt að kunna skil á röngu og réttu. Þessi draumur er skáldskapur í fram- kvæmd. Um hann hef ég rætt. Um Jörðina og okkur. Trén og skógana, þennan draum sem er vemleiki í lífí ykkar og starfi. ísland á þennan vemleika skilið. (Erindi flutt á Skógræktarþingi, marz 1987). ur, sem fyrir era, eins og varð þegar risaeðlumar liðu undir lok. Hið nýja lífríki yrði saman sett í samræmi við nýtt um- hverfí. „En ég efast um að við föllum inní það umhverfi," segir Loveloek. Við emm að auka hitastig á jörðinni umfram það sem við þolum. Það þarf engan spámann til að segja fyrir um örlög mannsins á jörðinni, ef hann tekur fram fyrir hendur náttúmnnar sjálfrar með svo drastískum hætti. Skógamir tryggja það bezt að lífríkið fari ekki úr skorðum og okkur verði áfram vært á jörðinni. Svo mikilvægt er hlutverk þeirra. Og svo samofið er líf mannsins lífi og velferð skóg- anna. World Watch Institute er merk stofnun, sem fylgist rækilega með þróun lífs á jörð- unni, offjölgun, hungri, mengun og við- brögðum við þeim plágum, sem vel gætu gert jörðina óbyggilega. í nýlegri skýrslu eða úttekt þessarar merku stofnunar, State of the World, 1987, segir Lester R. Brown, forseti hennar og aðalhöfúndur skýrslunnar, að fyrri kynslóðir hafí ávallt haft hugann við framtíðina, en okkar kynslóð sé sú fyrsta, sem þurfí að glíma við vandamál, sem skipt geti sköpum um það, hvort sú jörð sem böm okkar erfa verður byggileg eða ekki, eins og hann kemst að orði. Svo mjög hafí gengið á ósonlagið yfír gufu- hvolfí Suðurskautsins, líklega vegna út- streymis freon-efna, að útfjólubláir geislar geti aukið húðkrabba, sett ónæmiskerfí mannsins úr skorðum og skemmt uppskera. Jörðin sé byijuð að ofhitna vegna ofnotkun- ar jarðefnaeldsneytis, kola, olíu ogjarðgass, og það muni breyta henni í eins konar gróð- urhús og allt hitakerfí geti farið úr skorðum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum, svo að jöklar bráðni og lönd eins og Holland og Bangladesh og stórborgir eins og London, Shanghai og Washington geti átt undir högg að sækja eins og Feneyjar nú. Og hann bendir á, að vísindamenn séu famir að óttast að jarðarbúa bíði sömu örlög, vegna þess að allt náttúmjafnvægi fari úr skorðum, og risaeðlanna og helmings ann- arra dýrategunda jarðar fyrir 65 milljónum ára. Brown leggur áherzlu á að súrt regn og mengun alls konar sé við blasandi og nærtækt vandamál, sem leysa verði sem fyrst, ef við eigum að komast hjá náttúm- slysi og heimssögulegri ógæfti af þess völdum á næstu öld eða áratugum. Skóga- skemmdir sem fyrst varð vart við í Þýzkal- andi breiðast út um alla Mið- og Norður-Evrópu. Tré, sem þekja 20 milljónir hektara — eða landssvæði álíka stórt og Austurríki og Austur-Þýzkaland til samans — em sjúk, deyjandi eða dauð. Svissnesk stjómvöld tilkynntu í desember sl., að skóga- skemmdir í Zúrich-kantónu hefðu aukizt úr 14% í 65% á sl. ári. Þau em nú að undirbúa brottflutning íbúa úr smáþorpum, sem liggja við eyðilagða fjallaskóga, segir Brown. Astæðan er jarðvegseyðing og hætta á skriðuföllum. Verst sé þó e.t.v. síaukin ásókn þriðja heimsins í eldivið. Hún gangi nú þegar svo nærri skóglendi jarðar, að hættulegt megi teljast. Það muni ekki sízt hafa áhrif á veðráttu og geti jafnvel ger- breytt uppskemhorfum í síhungmðum heimi, þar sem fólksfjöldi hefur tvöfaldazt frá 1950, fæðuframleiðsla nær þrefaldazt og notkun jarðefnaeldsneytis meira en fjór- faldazt á þessu sama tímabili. Gervihnatta- myndir sýna, að skóglendi á Indlandi hefur minnkað um 22% á átta undanfömum ámm. Fmmskógar Brazilíu, Zaire og Indónesíu, sem em um helmingur ailra regnskóga jarð- ar, em einnig í stórhættu. Án þeirra færi gróðurkerfíð allt úr skorðum og náttúmleg hrynjandi hafs og himins, sem allt er undir komið, ekki sízt líf mannsins á jörðinni. Regnskógabelti Amazon-svæðisins eitt hef- ur gífurleg áhrif á veðurlag og skýjafar, svo að dæmi sé tekið. Nýlega las ég í banda- rísku blaði, að regnskógamir minnkuðu um nær fímmtíu ekmr á hverri mínútu og mun það víst ekki dregið í efa af þeim, sem til þekkja. Lester R. Brown bendir á, að ríkisstjóm- ir fyrmefndra regnskógalanda hafi engar áætlanir á pijónunum til vemdar þessum mikilvægustu landssvæðum jarðar til varð- veizlu lífs og jafnvægis í umhverfí okkar. Þetta er enginn gleðiboðskapur, elckert fagnaðarerindi úr Walden-skógi, enda hefði Thoreau ekki komið það á óvart eins raun- sær og hann var á hugsunarlausa umgengni mannsins við umhverfi sitt og næsta ná- grenni. En þetta er sú veröld sem við blasir. Undan því verður ekki vikizt. Allra sízt með því að setja upp sakleysissvip og umbreyt- ast í strút. Við þurfum nú sem aldrei fyrr að horfast með móður Jörð í augu við fleiri vandamál en kjamorkuplágu og nýja hryllilega drep- sótt, sem gæti orðið mannkyninu dýrkeypt- ari en nokkur sjúkdómur annar, sem við höfum spumir af. Það er mikið á manninn lagt. Spumingar hrannast upp sem aldrei fyrr, jafnvel fáránlegustu spumingar eins og: gæti verið að umgengni okkar við jörð- ina sé jafnvel meira sjálfskaparvíti en Morgunblaðið/RAX nokkum gat órað fyrir? Eða: að eitthvert samband sé milli ósonlags og ónæmissjúk- dóma?! Við hljótum að spyija. Án spuminga eng- in svör. Án þekkingar, án miskunnarlauss raunsæis, án þess að bijóta vandamálin til mergjar, án þess að skoða þann heim, sem mikilvægastur er, eigin hug og heila, og víkjast allra sízt undan grimmilegri sjálfs- könnun, mun sú harmageddon óhjákvæmi- lega blasa við, sem við ætlum okkur að sneiða hjá á þessari löngu leið inn í þann grasgarð, sem öllum ævintýmm er eftir- sóknarverðari. Það væm erkibýsn eins og komizt er að orði í prestssögu Guðmundar góða, ef illa tækist til. Á sjöunda áratugnum kom ég í hús bandaríska skáldsins Emersons í Nýja- Englandi og hafði þá einnig verið i Walden, þar sem Thoreau dvaldist og skrifaði sín sígildu verk, þessi mesti náttúmdýrkandi bandarískrar sögu. Það var ógleymanlegt að vitja þessara tveggja höfuðsnillinga á heimavígstöðvum þeirra þama í nágrenni við Longfellow sem mest og bezt kynnti íslenzka bókmenningu og andlega arfleifð vestan hafs með allt að því ólæknandi ást á hvomtveggja eins og fram kemur í ljóðum hans. Þessi kynni vom mér ungum ógleymanleg reynsla, vinnuherbergi skáldanna mettuð þessu þunga andrúmi sem fylgir gömlum skógi í skorpnuðum bókum, skógurinn með höfgan ilm af eik og aski og þá ekki sízt hvemig líf þessara andlegu risa fléttaðist saman í verkum þeirra og daglegum önnum. Thoreau talar um að jörðin sé ekki brot af dauðri sögu, ekki blöð bókar handa jarð- fræðingum og grúskumm einkum og sér í lagi, heldur lifandi skáldskapur eins og blöð trésins sem em undanfari blóma og ávaxta, ekki steingervingur, heldur lifandi jörð. Og í Náttúranni talar Emerson um að hún fullnægi göfugri þörf mannsins, þ.e. ást hans á fegurð. Fegurðin verður allt að því sannleikurinn sjálfur eins og í frægu ljóði Keats. Og skáldið minnir á að Fom- Grikkir hafi notað þetta orð, fegurð, yfír veröldina. I hugum þeirra var jörðin fegurð- in sjálf í allri sinni nöktu og hamslausu dýrð, sem þó lýtur reglum og lögmálum ofar okkar skilningi eins og þegar vor vex úr vetri, þá er eins og sköpun verði úr óskapnaði, segir Thoreau. Öll eðlileg hreyfíng er tiginmannleg, seg- ir Emerson sem talaði um gult síðdegi októbers. Hann minnir okkur á að eitt er jörð sem bændur eiga, en annað það sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.