Morgunblaðið - 16.04.1987, Page 32

Morgunblaðið - 16.04.1987, Page 32
c 32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987 Utlendingar í Japan: Breytingar á lögum harölega gagnrýndar Tókýó, Reuter. TILLAGA um að breyta reglum um skráningu útlendinga i Japan væri skref aftur á bak í mannrétt- indamálum, að þvi er andstæðing- ar tillögunnar sögðu í gær. Samkvæmt nýju lögunum þurfa útlendingar búsettir í Japan enn að láta taka af sér fingraför og sama gildir um 700 þúsund manns af kór- eskum uppruna, sem flestir eru fæddir í Japan, segja trúarleiðtogar og þingmenn. Reglur um hvemig framfylgja skuli lögunum verða hertar og einn- ig verða strangari viðurlög við að bijóta þau. „Það misrétti, sem liggur í eðli laganna, hefur að engu verið breytt og í raun hefur það verið aukið,“ sagði In Ha Lee trúarleiðtogi við blaðamenn. Stjómvöld segja að frumvarpið, sem nú liggur fyrir þingnefnd, muni draga úr þeirri brennimerkingu, sem í raun fylgir því að taka fingraför útlendinga. Lee segir að kerfíð jafnist nánast á við aðskilnaðarstefnu suður-afrí- skra stjórnvalda: „Nú verður glæpsamlegt að ferðast án þess að hafa skilríki." Ólíklegt þykir að andstæðingum fmmvarpsins takist að fella það. Tillagan nýtur víðtæks stuðnings þjóðarinnar. Sundbolurá eina og hálfa milljón dollara Þessi íturvaxna stúlka klæðist hér dýrasta sundbol í heimi, en hann var afhjúpaður á sýningu demantasala í Tokyo í gær. Bolurinn er úr svörtu leðri - settu demöntum. Verð: 1,5 milljónir dollara. Ítalía: Fanfani fær umboð til stjómarmyndunar Kosningar óhjákvæmilegar Róm, Reuter. FRANCESCO Cossiga, forseti Ítalíu, bað i gfær kristilega demó- kratann Amintore Fanfani, forseta öldungadeildar italska þingsins um að reyna að mynda nýja rikissljórn. Tveir aðrir kristilegir demó- kratar hafa gefist upp á stjórnarmyndun og bendir nú allt til þess að Italar gangi til kosninga í júní. Embættismenn sögðu að Fanfani inu. Scalfaro gat ekki einu sinni hefði verið veitt mjög víðtækt um- boð til stjórnarmyndunar. Stjórnar- kreppan á Ítalíu hefur nú staðið í sex vikur og er búist við því að Fanfani veiti stjórn landsins aðeins forystu fram að kosningum í júní, ári á undan áætlun. Oscar Luigi Scalfaro innanríkis- ráðherra var veitt umboð til stjórn- armyndunar á undan Fanfani. Gafst hann upp á miðvikudag og bað Cossiga að leysa sig undan umboð- myndað minnihlutastjórn til bráða- birgða. Pólitískar heimildir herma að Fanfani ætli að mynda stjóm, sem aðeins kristilegir demókratar og embættismenn munu sitja í. Fan- fani gaf í skyn í stuttri yfirlýsingu, sem hann gaf út í gær, að verkefni sitt væri að mynda stjóm fram að kosningum. Fanfani hefur fimm sinnum gegnt embætti forsætisráð- herra. Efni úr síldar- sviljum nothæft gegn alnæmi? TÍMARITIÐ Seafood Inter- national skýrði nýlega frá því, að efni unnið úr sviljum sildar geti komið að notum í barát- Tölvuviðskipti og gjaldeyrismál: Japanar samþykkja sérstaka GATT-nefnd um kvörtun EB Genf, Tókýó, London, Reuter. JAPANAR samþykktu með hægð í gær að sett yrði á laggirnar nefnd á vegum GATT til að fjalla um kvörtun frá Evrópubandalag- inu vegna sáttmála Bandaríkja- manna og Japana um hálfleiðara, sem notaðir eru í tölvukubba, að því er Yoshio Hatano, sendiherra Japana í verlunarmálum, sem aðsetur hefur í Genf, sagði í gær. Dollarinn hélt áfram að falla gagnvart japanska jeninu og kostaði um tíma 140,55 jen í Tókýó, en hækkaði síðan aftur. Gjaldeyriskaupmenn í Tókýó sögðu að seljendur hefðu verið áfj- áðir í að losna við dollara eftir að Bandaríkjamenn tilkynntu að 15,1 milljarðs dollara halli hefði verið á viðskiptum í febrúar. Búist hafði verið við að hallinn yðri 12 til 13 milljarðar dollara. Hatano sendiherra sagði eftir fund í ráði GATT (samkomulag umtolla og viðskipti): „Við höfum með tregðu samþykkt umræðu- nefndina. Við vildum ekki standa í vegi fyrir þessari leið til að jafna ágreining." Þau tólf ríki, sem aðild eiga að Evrópubandalaginu, segja að í sam- komulaginu frá 1986 sé brotið í bága við allar viðskiptareglur þar sem Japönum sé leyft að setja upp lægra verð en réttlátt teljist fyrir .hálfleiðara, sem seldir eru í öðrum ríkjum en Japan og Bandaríkjunum. Framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins í Brussel hefur gefið nú fyrirskipun um að rannsakað verði hvort Japanar hafi sett prent- ara til notkunar með tölvum á markað í Evrópu undir kostnaðar- verði, að því er talsmaður fram- kvæmdastjórnarinnar tilkynnti í gær. Horfur á viðskiptastríði jukust talsvert þegar aðildarríki Evrópu- bandalagsins samþykktu fyrr í vikunni að grípa til refsiaðgerða gegn Japönum ef þeir opnuðu ekki markað sinn fyrir innflutningi hið snarasta. Japanar eiga þegar yfir höfði sér refsitolla á vörur, sem þeir flytja til Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn saka Japana um að hafa skellt tölvukubbum á markað undir kostn- aðarverði í trássi við samkomulag ríkjanna um verðlagningu. í London kostaði sterlingspundið 1,6290 dollara á hádegi í gær. Gengi annarra helstu gjaldmiðla var á þann veg að dollarinn kostaði: 1,3175 kanadíska dollara, 1,8085 vestur-þýsk mörk, 2,0390 hollensk gyllini, 1,4900 svissneska franka, 37,43 belgíska franka, 6,0150 franska franka, 1289 ítalskar lírur, 142, japönsk jen, 6,3050 sænskar krónur, 6,7725 norskar krónur og 6,8250 danskar krónur. Únsa af gulli kostaði 445,75 doll- tunni gegn alnæmi. Efni þetta nefnist thymidin og er mikil- vægt hráefni í gerð lyfsins AZT (azidotliymidin), sem talið er lofa árangri í baráttunni gegn Alnæmi. Haraldur Briem, sérfræðingur í smitsjúkdómum var inntur álits á þessari frétt og mögulegri þýðingu hennar. Hann sagðist kannast við lyfið AZT og vita að thymidin væri unnið úr sviljum síldar. Hins vegar væri óljóst hvaða árangri lyf þetta skilaði í baráttunni við al- næmi. Hann vissi heldur ekki með hvaða hætti thymidin væri unnið úr síldinni og hvert verð fyrir það væri, þannig að honum væri alls óljóst hvaða möguleika við hefðum á framleiðslu thymidins. Hér fer á eftir stytt endursögn úr greinarstúf blaðsins Seafood International: „Nú berast fregnir um að síldin geti veitt þeim von, sem þjást af einum hættulegasta veirusjúkdómi vorra daga, alnæmi. Greint hefur verið frá því að eina lyfið, sem lofar árangri í bar- áttunni gegn alnæmi, nefnist AZT (azidothymidin). Mikilvægt hrá- efni í þessu lyfi er thymidin. Erfitt er að afla thymidins, en það er þó hægt að vinna úr sviljum síldar og af henni finnst gnótt á Norðurl- öndum og í Vestur-Evrópu.“ Sovétríkin: Endurmóta hugarfar milljóna verkamanna Moskvu, Reuter. SOVÉZK yfirvöld skýrðu í gær frá nýrri áætlun um að endur- móta hugarfar milljóna verka- manna þar í landi. Verða verkamennirnir látnir setjast á skólabekk til þess að tileinka sér nútíma hugsun, sem sam- ræmist umbótastefnu stjórnar Mikhails Gorbachev. Tilskipanir birtust í Prövdu, málgagni Kommúnistaflokks Sov- étríkjanna, þar sem skýrt var frá því að námskeiðahald í verksmiðj- um og skrifstofum yrði endur- skipulagt í því markmiði að auka framlag verkamannanna til fé- lags- og efnahagslegra umbóta. „Það er lykilatriði að endur- móta hugarfar milljóna verka- manna, breyta hugarstarfsemi þeirra og fá þá til að hugsa í anda umbótanna," sagði í Prövdu. Tilgangurinn með umbótastefnu Gorbachevs er að bæta efnahags- ástandið, auka lífsgæðin og auka stjórnmálaþátttöku almennings. Menntamenn hafa stutt stefnuna en almenningur hefur látið sér fátt um finnast og embættismenn hafa lagst gegn henni af ótta við að missa viss forréttindi. Að sögn Prövdu einkennist hið pólitíska fræðslukerfi af aftur- haldssemi og ekki í takt við raunveruleikann. Hefði mistekist að koma mönnum í skilning um umbótatilraunir stjórnarinnar. Öllum embættismönnum, verka- mönnum og unglingum er skylt að sækja pólitíska kennslutíma í hveijum mánuði, burtséð frá því hvort þeir eru félagar í kommúni- staflokknum eða ekki. Kennsla snýst um stefnu stjómarinnar, hugmyndafræði kommúnista og kenningar Marx og Lenins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.