Morgunblaðið - 16.04.1987, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987
Fríkirkjan í Hafnarfirði:
Kvöldvaka við krossinn
Á föstudaginn langa verður að
venju kvöldvaka í Fríklrkjunni í
Hafnarfirði og hefst hún kl.
20.30. Þessi samverustund í
kirkjunni hefur verið nefnd
kvöldvaka við krossinn enda
tengist efni hennar atburðum
föstudagsins langa og er flutt í
tali og tónum undir stórum krossi
í kórdyrum.
Hildigunnur Halldórsdottir flytur
tvö einleiksverk á fiðlu og að venju
munu fermingarböm lesa síðustu
orð Krists á krossinum. Lesinn verð-
ur passíusálmur og kór safnaðarins
syngur sálma sem tengjast efni
dagsins.
I lok samverustundarinnar verða
ljós kirkjunnar slökkt og kirkjan
yfírgefin myrkvuð.
Páskavaka
í Laugar-
neskirkju
í ÖNDVERÐU var páskahátíðin
höfuðhátíð kristinna manna. Á
þeirri hátíð minntust þeir og end-
urlifðu að vissu marki í guðs-
þjónustunum upprisu Jesú Krists
frá dauðum og fögnuðu jafnframt
þeirri von um nýtt upphaf, sem
upprisan boðaði hijáðum heimi.
Þungamiðja guðsþjónustidífsins á
páskum var löngum páskavaka á
aðfaranótt páskadagsins, þar sem
söfnuðurinn kom saman og hyllti
hinn upprisa Krist sem ljós lifsins,
hlýddi á helgitexta páskanna og
sýndi samstöðu sina með gjör-
vallri kristninni með þvi að
endurnýja skirnarheit sitt og
neyta hinnar heilögu kvöldmáltíð-
ar, sem Kristur stofnaði til á
síðustu páskahátíðinni, sem hann
átti með lærisveinum sinum.
Hér á landi hefur það einkum ver-
ið kaþólska kirkjan, sem varðveitt
hefur helgihaldið á páskanótt, eins
og svo margt annað úr hinu sameig-
inlega guðsþjónustustarfi kirkjunn-
ar. I ár gefst hins vegar kostur á
að taka þátt í páskavöku í Laugar-
neskirkju í Reykjavík og hefst hún
kl. 23.00 laugardagskvöldið fyrir
páska og stendur nokkuð fram yfir
miðnætti.
Er fólk hvatt til þátttöku til að
endurlífga leyndardóm páskanætur-
innar og sýna samstöðu sína með
þeim mörgu meðal annarra kirkju-
deilda og þjóða, sem vaka á páska-
nótt.
(Frá Laugarneskirkju.)
A'' 09 '?A
Skirdag^nu V\.£ a°a9o9 ^-3°
'SS^sWda9'o0ognp^Kada9>
Gledilega páska
Khiklii^aslaðurínn
SOUTHERN FRIED
CHICKEN
SVAKIA
PAI>!\An
Hraöréttá veitingastaöur
í hjarta bongarinnar
O
ahorm
Tryggvagötu og Pöslhusstrætis
Simi 16480
• •
Oxnadalsheiði ófær,
en fjallvegir færir
víðast annars staðar
SLÆMT veður var á norðvestan-
verður landinu í gær og Óxna-
dalsheiði ófær og illfært um
Holtavörðuheiði af þeim sökum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerð ríkisins var sæmileg
færð annars staðar á landinu og
fjallvegir víðast hvar opnir.
í gær var fært um suðurströnd
landsins og austur á firði, þrátt
fyrir nokkra hálku á Hellisheiði og
víðar. Austanlands var víðast góð
færð og fjallvegir færir svo sem
Vatnsskarð, Fjarðarheiði, Odds-
skarð, Fagridalur og vegurinn um
Möðrudalsöræfí var fær bæði að
austan og norður í Mývatnssveit
og niður í Vopnaflörð. Ágæt færð
var einnig um austanvert Norður-
land í gær, frá Akureyri til Ólafs-
fjarðar, um Þingeyjarsýslur og
strandveginn til VopnaQarðar.
Hins vegar var mikið hríðarveður
á Öxnadalsheiði í gær og hún koló-
fær. Vegargerðin fékk ekki að gert
í gær vegna veðurs og var norður-
leiðin því ófær af þeim sökum. Hins
vegar var fært um Skagafjörð út á
SigluQörð og um vestanvert Norð-
urland og stórir bílar og jeppar
komust norður Strandir til
Hómavíkur og Drangsnes. Á Holta-
vörðuheiði var hins vegar þæfíngsó-
færð.
Ágæt færð var á Vesturlandi í
gær, um Borgarfjröð, Snæfellsnes,
Dalina austur í Saurbæ í Dalasýslu,
en þar þyngdist færðin nokkuð og
aðeins fært jeppum og stórum bílum
fyrir Gilsfjörð í Reykhólasveit.
Brattabrekka var ófær í gær, en
mokað var á milli Þingeyrar og
Flateyrar. Hins vegar var hætt við
mokstur á Botnsheiði og Breiða-
dalsheiði vegna veðurs. Fært var
frá Isafírði til Bolungarvíkur og inn
í Djúp.
Ráðgert er að moka flesta vegi
í dag, skírdag, og eins verður mok-
að á laugardag og á annan í páskum
eftir því sem þurfa þykir. Mokstur
á vegum Vegagerðarinnar fellur
hins vegar niður á föstudaginn
langa og páskadag.
Islendingar á faraldsfæti:
Um 10 þúsund manns hafa
bókað far með Flugleiðum
Mikil aðsókn í fjallaferðir
LANDSMENN verða á faralds-
fæti hér innanlands nú um
páskahelgina svo sem endranær.
Um 10 þúsund manns hafa bókað
far með Flugleiðum fram á
mánudag og á annamestu dögun-
um verður þotuflug til Akur-
eyrar til að anna eftirspurninni.
Þá hefur verið mikil aðsókn i
fjalla- og óbyggðaferðir á vegum
Ferðafélags Islands og Útivistar
nú um páskahelgina.
Annamesti dagurinn hjá Flug-
leiðum verður næstkomandi
mánudag, annan í páskum, en þá
eru fyrirhuguð 28 flug auk einnrar
ferðar með Boeing-þotu til Akur-
eyrar. Til samanburðar má nefna
að á venjulegum mánudegi eru að
jafnaði 14 flug innanlands. í gær
voru fyrirhugaðar 24 flugferðir, en
einhveijar tafír urðu á þeim vegna
ófærðar. Ekkert verður flogið inn-
anlands á föstudaginn langa og
páskadag.
Utivist verður með tvær ferðir í
Þórsmörk, fímm daga ferð sem
hefst í dag og þriggja daga ferð
sem hefst á laugardag. Þá verður
fímm daga ferð í Öræfi, Skaftafell
og Kálfafellsdal. Fimm daga
gönguskíðaferð verður farin á Esju-
§öll í Vatnajökli. Þá verða tvær
ferðir, fímm daga og þriggja daga,
á Snæfellsnes og Snæfellsjökul þar
sem einnig verður boðið upp á sigl-
ingu um Breiðafjarðareyjar. Útivist
býður einnig upp á dagsferðir alla
bænadagana.
Á vegum Ferðafélagsins verða
famar tvær ferðir í Þórsmörk, fimm
daga og þriggja daga. Þá verður í
dag farið í Landmannalaugar í
fímm daga ferð, þar sem ekið verð-
ur í Sigöldu og gengið þaðan á
skíðum í Landmannalaugar. Fjög-
urra daga ferð verður á Snæfells-
nes, þar sem gengið verður á
Snæfellsjökul. Auk þess býður
Ferðafélagið upp á dagsferðir alla
dagana yfir páskahelgina.
Viðbrögð stjórnmálaflokkanna við tillög-
um Sigtúnshópsins:
Aðeins Fram-
sókn svaraði ekki
ÁHUGAMENN um úrbætur í
húsnæðismálum, Sigtúnshópur-
inn svokallaði, kynnti í gær
viðbrögð flokkanna við tillögum
þeirra um meðferð áfallinna
verðbóta í staðgreiðslu skatta.
í tillögum hópsins, sem birtar
Yfirlýsing
að gefnu
tilefni
Herra Pétur Sigurgeirsson
biskup íslands var ekki meðal
þeirra sem skrifuðu undir undir-
skriftaskjal til Alberts Guð-
mundssonar alþingismanns og
fv. ráðherra, eins og látið var
að liggja í Helgarpósti í liðinni
viku og tekið var upp í grein í
Morgunblaðinu í gær, 15.4.
Helgi Vigfússon
bókaútgefandi.
voru í heild í Morgunblaðinu 31.
mars, er bent á leið sem ætti að
geta jafnað hag þess fólks sem illa
hefur komið út úr misgengi launa
og lánskjaravísitölu, en hún felst í
því að í stað gjaldfallinna verðbóta
sem nú er heimilt að nýta til frá-
dráttar verði áfallnar verðbætur
frádráttarbærar og mætti jafna
þeim niður á næstu 6 ár í stað-
greiðslukerfi skatta.
Viðbrögð flokkanna voru þau að
svör bárust frá öllum flokkum,
nema Framsóknarflokknum. Al-
þýðuflokkurinn lýsir yfir vilja sínum
til að skoða nánar hugmyndir hóps-
ins, en telur tillögu sína um jöfnun
húsnæðiskostnaðar afdráttar-
lausari og líklegri til að gagnast
betur þeim sem verst hafa orðið
úti við öflun íbúðarhúsnæðis á árun-
um 1980-85.
Þjóðarflokkurinn bendir á að stór
hluti af vanda landsbyggðarinnar
sé vegna greiðsluerfiðleika hús-
næðiskaupenda sem tafarlaust
verði að leysa.
Friðrik Sophusson.Sjálfstæðis-
flokk, lýsir vantrausti á tillögn
hópsins, en vísar til samþykktar
Landsfundar Sjálfstæðisflokks þar
sem segir að gefa þurfí þeim hópum
sem lent hafi í verulegum greiðslu-
erfíðleikum kost á að sameina
Byggingarsjóðslán sín og skuld-
breyta þeim til lengri tíma.
Alþýðubandalagið bendir á að í
stefnuskrá þess sé gert ráð fyrir
að framkvæmd verði leiðrétting
vegna misgengis launa og lána
1983-84 og fellst á það sem grund-
vallarsjónarmið að eðlilegt sé að
greiða skaðabætur fyrir misgengið
á þeim árum.
Bandalag jafnaðarmanna er
einnig með leiðréttingu þessara
mála á stefnuskrá sinni og hefur
eindregið tekið undir sjónarmið
hópsins. Flokkur mannsins hefur
einnig lýst stuðningi við tillögumar.
Borgaraflokkurinn telur að allar
tillögur um úrbætur séu athugunar-
verðar, að engri undanskilinni.
Kvennalistinn, sem telur að leið-
rétta beri misgengið, lýsir yfír
stuðningi við tillögumar. Kvenna-
listinn hefur fjallað um tillögumar
í umræðum á Alþingi og lagt fram
tillögur um skattaafslátt vegna öfl-
unar íbúðarhúsnæðis.