Morgunblaðið - 16.04.1987, Side 68
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
50 milljónír
í flugvöll á
Egilsstöðum
SEÐLABANKI íslands hefur
rTwamþykkt að útveg-a lán allt að
50 milljónum, sem varið verði til
flugvallargerðar á EgUsstöðum.
Að sögn samgönguráðherra,
Matthíasar Bjamasonar, er þessi
lánveiting í samræmi við samþykkt
Alþingis á þingsályktunartillögu um
framkvæmdir við nýjan flugvöll á
Egilsstöðum. „Samgönguráðuneyt-
ið óskaði eftir því í samráði við
fjármálaráðherra, að Seðlabankinn
hefði milligöngu um ^árútvegun
allt að 50 milljónum króna," sagði
Matthías. „Nú hefur Seðlabankinn
orðið við þeirri beiðni, en lagaheim-
ildar verður aflað við afgreiðslu
næstu fjárlaga og lánsfjárlaga. Ég
^•^geri ráð fyrir því að heimildin verði
notuð að fullu. Nú þarf að semja
við þá sem eiga land þar sem leggja
á flugbrautina og ég á von á að
framkvæmdir geti hafíst um leið
og slíkur samningur er kominn á,“
sagði samgönguráðherra.
„Elstu leigu-
^bílstjórar
muna ekki ann-
að eins álag“
MIKLAR annir voru þjá leigubíl-
stjórum í Reykjavík í gær, en
vagnstjórar SVR lögðu þá niður
vinnu. Á sumum bifreiðastöðv-
unum voru kallaðar út auka-
vaktir og á einni stöðinni
fengust þær upplýsingar að
elstu menn myndu ekki annað
eins álag.
„Síminn hefur ekki stansað
',"’"'*síðan klukkan níu í morgun", sagði
símastúlka á einni stöðinni, er
Morgunblaðið leitaði upplýsinga
þar síðdegis í gær. Kvaðst hún
hafa verið lengi í starfínu og ekki
muna sambærilega örtröð. „Þetta
hefur þó allt gengið vel og okkur
hefur tekist að afgreiða flesta sem
hringt hafa án þess að fólk hafi
þurft að bíða lengi,“ bætti hún við.
Mikil umferð var í Reykjavík í
gær en að sögn lögreglu gekk hún
þó áfallalítið fyrir sig.
Morgunblaðið/Helgi Benediktsson
A FJOLLUMIFOGRU VEÐRI
Á Tindfjallajökli, Vestmannaeyjar í baksýn, en margir munu eflaust leggja land undir fót um páskahelgina nú sem endranær.
Skoðanakönnun Félagsví sindastofnunar fyrir Morgnnblaðið:
Sjálfstæðisflokkur 29,6%
— Borgaraflokkur 12,2%
- Kvennalistinn hefur jafn mikið fylgi og Alþýðubandalagið
13*
Morgunblaðið kemur næst út
miðvikudaginn 22. apríl.
SAMKVÆMT skoðanakönnun
sem Félagsvísindastofnun gerði
fyrir Morgunblaðið dagana 10.
til 14. apríl ætla 29,6% kjósenda,
sem afstöðu hafa tekið, að greiða
Sjálfstæðisflokknum atkvæði í
alþingiskosningunum 25. apríl
nk. Alþýðuflokkurinn nýtur fyig-
is 15,5% kjósenda, Framsóknar-
flokkurinn 14,6%, Alþýðubanda-
lagið 11,9%, Kvennalistinn 12,1%
og Borgaraflokkurinn 12,2%
Aðrir flokkar hafa innan við 2%
í Reykjavík nýtur Sjálfstæðis-
flokkurinn stuðnings 31,9% kjós-
enda, Alþýðuflokkurinn 16,2%,
Framsóknarflokkurinn 6,7%, Al-
þýðubandalagið 12,3%, Kvennalist-
inn 16,2% og Borgaraflokkurinn
14%. í Reykjanesi nýtur Sjálfstæð-
isflokkurinn stuðnings 31% kjós-
enda, Alþýðuflokkurinn 19%,
Framsóknarflokkurinn 13,4%, Al-
þýðubandalagið 8,2%, Kvennalist-
inn 11,2% og Borgaraflokkurinn
15sl%.
í könnun DV sem birt var á
Líffræðingar í Blóðbank-
anum ráða sig til 1. júní
LÍFFRÆÐINGAR, sem störfuðu
i Blóðbankanum, en sögðu upp
störfum frá og með 1. apríl, hafa
ráðið sig aftur til starfa til 1.
júní næstkomandi, en þá á að
vera lokið röðun starfsmanna í
launaflokka samkvæmt nýjum
kjarasamningi Félags íslenskra
náttúrufræðinga og ríkisvalds-
jns.
Ólafur Jensson, yfírlæknir í Blóð-
bankanum, sagðist búast við að
starfsemi Blóðbankans yrði með
eðlilegum hætti strax eftir páska-
helgina og hann vissi ekki annað
en að allt það starfsfólk, sem sagt
hefði upp þar, kæmi aftur til starfa.
Hann sagði að mjög mikið yrði að
gera, þar sem verkefni hefðu hlað-
ist upp að undanfömu og stórum
skurðaðgerðum verið slegið á frest.
Hluti sjö starfsstétta háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna á
ríkisspítölunum sagði upp störfum
1. apríl og hyggjast aðrir starfs-
hópar athuga sinn gang yfír
páskana og hyggja að því hvað felst
í nýgerðum kjarasamningum.
mánudaginn fékk Sjálfstæðisflokk-
urinn 30,9% atkvæða, Alþýðuflokk-
urinn 14,3%, Framsóknarflokkur-
inn 17,2%, Alþýðubandalagið
12,9%, Kvennalistinn 9,5% ogBorg-
araflokkurinn 11,7%. Samkvæmt
því hafa Framsóknarflokkurinn og
Kvennalistinn styrkt stöðu sína, en
lítillega dregið úr fylgi annarra
flokka. Ef miðað er við fyrri könnun
Félagsvísindastofnunar fyrir Morg-
unblaðið hefur fylgi Framsóknar-
flokks, Sjálfstæðisflokks og
Kvennalista aukist, en fylgi Al-
þýðubandalags og Borgaraflokks
minnkað talsvert.
í kosningunum 1983 fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn 38,7% atkvæða,
Alþýðuflokkurinn 11,7%, Fram-
sóknarflokkurinn 19%, Alþýðu-
bandalagið 17,3%, Bandalag
jafnaðarmanna 7,3% og Kvennalist-
inn 5,5%. Ef þau úrslit eru borin
saman við hina nýju könnun Fé-
lagsvísindastofnunar hafa Fram-
sóknarflokkurinn og Alþýðubanda-
lagið tapað umtalsverðu fylgi, en
Alþýðuflokkurinn og Kvennalistinn
bætt verulega við sig. Þá hefur
Sjálfstæðisflokkurinn tapað fylgi,
en Borgaraflokkurinn bauð ekki
fram í kosningunum 1983.
Úrtakið í könnuninni var 1.500
manns á aldrinum 18 til 75 ára um
land allt. Svör fengust frá 1.069
eða 71,3% þátttakenda. 2,7% ætl-
uðu ekki að kjósa, 1,6% ætluðu að
skila auðu, 4,7% neituðu að svara
og 5,2% sögðust ekki vita hvað
þeir kysu.
Sjá nánar á bls. 36.
Kennarar
sam-
þykktu
FÉLAGAR í Hinu íslenska kenn-
arafélagi hafa samþykkt ný-
gerða kjarasamninga við
ríkisvaldið í almennri atkvæða-
greiðslu með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða eða yfir 80%
atkvæða.
Niðurstaða talningar lá fyrir í
gærdag. Á kjörskrá voru 1125 og
atkvæði greiddu 950 eða 84% fé-
laga. Já sögðu 791 eða 83% og nei
121 eða 13%. Auðir seðla og ógild-
ir voru 38 eða 4%.