Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
96. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkin:
Fyrsta ákæran í
vopnasölumálinu
Washington, Reuter.
CARL „Spitz“ Channell, yfirmað-
ur bandarisks fjáröflunarsjóðs,
var i gær ákærður um að hafa
reynt að féfletta Bandarikjastjórn
í sambandi við vopnasöluna til ír-
ans og játaði hann sekt sfna.
Dómari spurði Channell hvort
hann hefði haft samstarfsmenn
og kvað hann Oliver North, fyrr-
um aðstoðarmann i Hvíta húsinu,
samsekan sér.
Channell er yfirmaður bandarísks
sjóðs til „eflingar frelsis" (NEPL).
Lawrence Walsh sakaði hann og
aðra ónefnda samstarfsmenn hans
um að hafa ætlað að svíkja fé, sem
Ný stjóm mynd-
uð í Finnlandi
Hclsinki, AP.
Frammámenn í fjórum flokk-
um hafa orðið ásáttir um að taka
saman höndum i stjóm og þar
með er i burðarliðnum fyrsta
finnska ríkisstjómin í rúm 40 ár,
sem hægrimenn hafa forystu
fyrir.
Harri Holkeri, fyrrum formaður
Hægriflokksins og nú einn af
bankastjórum finnska seðlabank-
ans, lagði síðustu hönd á stjómar-
myndunina í fyrradag og ráðgert
er, að hann leggi í dag ráðherra-
lista stjómarinnar fyrir Mauno
Koivisto forseta. Stjómin mun hafa
að bakhjarli 131 mann af 200 á
þingi.
Kalevi Sorsa, fráfarandi forsæt-
isráðherra, hefur ákveðið að segja
af sér formennsku í Jafnaðar-
mannaflokknum á sumri komanda
en er fús til að gegna embætti ut-
anríkisráðherra í nýju stjóminni.
Verður hún skipuð átta jafnaðar-
mönnum, sjö hægriflokksmönnum,
Harri Holkeri
tveimur ráðhemim úr Sænska þjóð-
arflokknum og einum úr Lands-
byggðarflokknum.
safnað var fyrir vopnum og annarri
aðstoð við skæruliða í Nicaragua,
undan skatti. í ákærunni á hendur
Channell sagði að 2,1 milljón Banda-
rflqadollara hefði verið skráð í
bókhald NEPL sem frádráttarbær
frá skatti. Aftur á móti væri féð
ekki frádráttarbært þar sem það
hefði ekki verið ætlað til mannúðar-
málefna heldur vopnasendinga til
skæruliða. Channell kvað já við þeg-
ar dómari spurði hvort hann væri
sekur um samsæri. Hefur Channell
lofað að vera hjálplegur við rannsókn
málsins.
Walsh lýsti yfir því í Bandaríkja-
þingi á þriðjudag að rannsóknin á
vopnasölumálinu væri nú orðin jafn
viðamikil og rannsóknin á Water-
gate-málinu, sem lyktaði með því að
Richard Nixon sagði af sér árið 1974.
Sagði Tower að verið væri að rann-
saka hvort háttsettir embættismenn
stjómarinnar hefðu brotið af sér.
Walsh sagði að rannsóknin næði
m.a. til Hvíta hússins, embættis Ge-
oige Bush varaforseta, bandarísku
leyniþjónustunnar (CIA), utanríkis-,
landvamar- og dómsmálaráðuneytis.
Suður-Afríka:
Reuter
Æft fyrir fyrsta maí
Sovéskir hermenn taka sér stöðu á Rauða torginu í Moskvu. í
gær fór fram æfing fyrir skrúðgönguna, sem farin verður í
höfuðborg Sovétríkjanna fyrsta maí. I baksýn ber turna kirkj-
unnar, sem kennd er við heilpgan Basil, við himin.
Vaxandi ókyrrð og
horfur á verkföllum
Jóhannesarborg, Reuter.
VOPNAÐIR lögreg’lumenn réð-
ust í gær inn í aðalstöðvar
Noregur:
Eftirlit við sovésku
landamærin aukið
Osló, Reuter.
NOMÐMENN lýstu yfir þvi í
gær að þeir ætluðu að bæta
alla aðstöðu til að fylgjast með
athöfnum Sovétmanna við
norsku landamærin. Sagði að
þetta yrði gert til þess að úti-
loka það sem embættismenn
kalla alvarlegar gloppur í ör-
yggisgæslu og eftirliti.
Fimm eftirlitsstöðvar eru í
Finnmörku og em þær starfrækt-
ar allan sólarhringinn. Þaðan
fylgjast Norðmenn með flutning-
um sovésks herliðs og sjóherstöð
Sovétmanna í Murmansk á Kóla-
skaga.
Johan Jörgen Holst vamar-
málaráðherra sagði í ræðu, sem
birt var í gær, að hann ætlaði að
bæta aðstöðu þeirra þijú hundruð
manna, sem vinna í stöðvunum,
en hermenn hafa verið tregir til
að starfa þar vegna þess hversu
hijóstrugt er í Finnmörku og ein-
manalegt.
Talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins sagði I viðtali við
Reuter-fréttastofuna að í tillögum
ráðherrans væri m.a. lagt til að
laun og aðbúnaður manna, sem
allajafna vinna í eftirlitsstöðvun-
um þijú til fimm ár, verði bætt.
Stöðvarnar fimm eru fyrstu
hlekkimir í viðvörunarkeðju, sem
liggur um öll aðildarríki Atiants-
hafsbandalagsins, allt til Tyrk-
lands.
Tyrkland og Noregur eru einu
NATO-ríkin, sem eiga landamæri
að Sovétríkjunum.
„Það væri hættulegt ef gloppur
yrðu á eftirlitinu," sagði norskur
embættismaður, sem ekki vildi
láta nafns getið. „Enn hefur það
ekki gerst, en það gæti gerst ef
mennimir, sem vinna í Finn-
mörku, eru ekki ánægðir."
Stöðvamar, sem standa á fjalls-
tindum við strandlengju Noregs,
senda mikilvægar upplýsingar til
annarra Atlantshafsbandalags-
ríkja. „Stöðvamar eru mikilvægar
vegna þess að helsti herafli Norð-
manna er lengra frá landamærun-
um og viðvörun verður að berast
samstundis til þess að senda megi
liðsauka í tæka tíð,“ sagði emb-
ættismaður Atlantshafsbanda-
lagsins.
stærsta verkalýðssambands
svartra manna í Suður-Afríku
og voru sjö menn handteknir.
Nokkru áður höfðu frammá-
menn þess og aðrir andstæðingar
aðskilnaðarstefnunnar hvatt til
mótmæla um land allt í næstu
viku þegar hvítir menn einir
ganga að kjörborðinu.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
sjö félagar í verkalýðssambandinu
hefðu verið handteknir þegar lög-
regluþjónar réðust tugum saman
inn í bygginguna, sem er í Jóhann-
esarborg.
Fjölmennt lögreglulið girti af
aðalstöðvamar og nálægar götur
og var allt starfsfólkið rekið út.
Vom fjórir grímuklæddir menn með
í för og er talið, að þeir hafi átt
að benda á þá, sem kunna að bera
ábyrgð á morði fjögurra verkfalls-
bijóta. í yfirlýsingu lögreglunnar
sagði, að mennimir hefðu verið
teknir með valdi á vinnustað sínum,
fluttir í aðalstöðvar verkalýðssam-
bandsins og síðan myrtir á villi-
mannlegan hátt.
Mikil ókyrrð hefur verið meðal
svartra manna í Suður-Afríku að
undanfömu og verkföll tíð. í síðustu
vikuvoru 16.000 járnbrautarstarfs-
menn í verkfalli reknir úr starfí og
sex svartir menn féilu í átökum við
lögregluna. Verkalýðsleiðtogar
svertingja búast við, að um ein
milljón manna muni leggja niður
vinnu í næstu viku til að mótmæla
kosningum hvítu mannanna.
Tyrknesk knatt-
spyrna:
Ugluspegill
afhjúpaður
Ankara, Reuter.
ÞAÐ vakti óneitanlega undrun
áhorfenda i bænum Mardin
þegar tyrkneski knattspymu-
maðurinn Ismail Kayar setti
tuðruna f netið og hrópaði:
„mark“. Kayar er nefnilega
miðheiji liðs mál- og heyrnar-
lausra.
í Tyrklandi keppa mál- og
heymarlausir knattspymumenn í
sérstakri deild. Þegar forráða-
menn knattspymusambandsins
heyrðu að ekki var allt með felldu
var boðað til fundar þar sem
ákveðið var að víkja liði Kayars
úr deildinni í eitt ár. Leikurinn
gegn heimaliðinu í Mardin var
einnig dæmdur tapaður. Máli
Kayars hefur verið vísað til aga-
nefndar.