Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Grunnskólanemar
keppa í hj ólreiðum
í framhaldi af spurninga-
keppni 12 ára nemenda um
umferðarmál, sem haldin var i
marsmánuði í öllum grunnskól-
um landsins, verður efnt til
hjólreiðakeppni í Reykjavík og á
Akureyri.
Keppendur verða þeir nemendur
sem bestum árangri náðu í spum-
ingakeppninni. Keppt verður í
góðakstri í raunverulegri umferð
og í hjólreiðaþrautum á afmörkuðu
svæði. Keppnin í Reykjavík verður
haldin á Laugardalsvelli og hefst
kl. 14 laugardaginn 2. maí. í góð-
aksturskeppninni verður meðal
annars hjólað eftir Sigtúni, Gullteigi
og Kirkjuteigi. Síðan verður hjólað
á hlaupabraut Laugardalsvallar,
þar sem keppendur glíma við 12
þrautir á hjólum.
Verðlaun verða afhent að lokinni
keppni. Meðan stigaútreikningur
fer fram skemmta félagar úr
Camivaibandi Kópavogs, kór úr
Árbæjarskóla og nemendur úr
nokknim skólum fara í reiptog.
Keppendur em víðs vegar að af
landinu, allt frá Vestfjörðum til
Austfjarða og verða 70-80 talsins.
Norðlendingar keppa í sérstökum
riðli á Akureyri laugardaginn 9.
maí kl. 14, í og við nýju Iþrótta-
höllina á Akureyri.
Samkór Selfoss ásamt stjómanda sínum.
Vortónleikar
Samkór
Selfoss
Selfossi.
SAMKÓR Selfoss hefur fengið
til liðs við sig óperusöngkonuna
Elinu Ósk Oskarsdóttur. Hún
mun syngja einsöng með kórnum
á vortónleikum hans. Elín kennir
söng við Tónlistarskóla Rangæ-
inga og á síðastliðnu ári söng hún
aðalhlutverkið í Tosca.
Tónleikar Samkórsins verða i
Selfosskirkju föstudaginn 1. maí
kl. 15.00 og í Njálsbúð Vestur-
Landeyjum sunnudaginn 3. maí kl.
21.00. Stjómandi Samkórs Selfoss
er Jon Knstinn Cortes og undirleik-
ari Krystyna Cortes. sig. Jóns.
Réttur
dagsins
í „íslenskum orðskviðum" segir.
„Hjá þeim skal ráðs leita
sem vel ræður fyrir sjálfum sér."
— forsjálnisregla —
Nýja innimálningin frá Slippfélaginu hentar
allsstaðar.
Milltex innimálningin er auðveld í með-
höndlun og fæst í því gljástigi sem hentar
hverju herbergi. Milltex málningin er
slitsterk, einstaklega þvottheldin og hefur
jafna og fallega áferð.
Q] Milltex hefur 7% gljáa og er fyrir flesta
fleti. Hún er góð í stofur og herbergi.
[2j Milltex 20 hefur 20% gljáa og hentar
vel í barnaherbergi, forstofur og ganga.
Eins hentar MILLTEX 40 sem hefur meiri
gljáa.
[3] BETT vatnsþynnta plastlakkið þolir
mjög mikla áníðslu og hentar vel þar sem
rakamyndun er t.d. í eldhúsi, baðherbergi,
þvottaherbergi og stigagöngum. BETT
plastlakkið fæst í tveimur gljástigum, 20%
og 35%. BETT plastlakkið er einstaklega
auövelt í meðhöndlun og hefur mjög jafna
og fallega áferð. Aðalkosturinn er hve
vel málningin ver sig gegn óhreinindum.
Litaval
0PNUM NÝJAVERSLUNISIÐUMULA 32, S. 689656
Reglan er ekki síður gullvæg eftir
kosningar en fyrir þær.
Reglunni er hér fylgt úr hlaði með
gömlum góðum rétti,
— tungumjúku
gullasch
(fyrir 4—6)
700 gr nautakjöt
l/a bolli hveiti
1—2 tsk. paprika
1 tsk. salt
25 gr smjörlíki
2 matsk. matarolía
malaður pipar
2 stórir laukar
250 gr gulrætur
1 lítil dós tómatkraftur
U/2 bolli vatn
2 lárviðarlauf
1 teningur kjúklingakraftur
(eða 2 matsk. sherry)
1. Kjötið er skorið í fremur litla
teninga og feitin hituð á pönnu.
2. Blandað er saman hveiti, papr-
iku, salti og pipar. Kjötbitunum er
velt upp úr hveitinu, þeir eru síðan
brúnaðir í feitinni og settir í pott.
3. Gulrætumar er hreinsaðar og
skomar f bita. Laukurinn er saxaður
og steiktur á pönnunni lítið eitt
ásamt gulrótunum.
4. Tómatkrafti, vatni og kjúkl-
ingakrafti er bætt á pönnuna og er
suðan látin koma upp. Sósunni með
grænmetinu er sfðan hellt yfír kjötið
í pottinum og lárviðarblöðum, brotn-
um í tvennt, er bætt í sósuna og
salti ef þurfa þykir.
5. Kjötið og grænmetið er soðið
í u.þ.b. 1 klukkustund eða þar til
það er vel stoðið. Hrærið í öðm hvom
á suðutfma svo sósan festist ekki
við botn pottsins. Þessi réttur er
bragðmildur en þeir sem vilja
bragðmikla sósu geta bætt papriku
við uppskriftina.
Með þessum einfalda helgarlqot-
rétti em bomar fram stappaðar
kartöflur.
Margrét Þorvaldsdóttir
Verðáhráefni
Nautakjöt
(700 gr) ..... kr. 450,00
2 laukar ..... kr. 15,00
gulrætur ..... kr. 20,00
tómatkraftur ... kr. 14,00
Kr. 499^00
Á'kriftarsimim er 83033
'Við' wtálum
n