Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 20
Fatlaðir og aidraðir hafa ekki látið sitt eftir liggja í íþróttaiðkun á ýmsum sviðum, eins og sést á þessum svipmyndum frá liðnum árum og er því búist við góðri þáttbku 1 Norræna trimminu nú sem endranær. Norræn trimmlandskeppni fatlaðra: Sigrar ísland í fjórða sinn? Norræn trimmlandskeppni fatlaðra hefst á morgnn 1. mai og er vonast til að um 1000 íslend- ingar taki þátt í keppninni sem nú er haldin í fjórða sinn, en Island hefur sigrað í hin þijú skiptin ÞRISVAR sinnum hefur Norræn trimmlandskeppni fatlaðra verið haldin og þrisvar sinnum hafa ís- lendingar borið sigur úr býtum, 1981, 1983 og 1985, en með þriðja sigrinum unnum við til eignar veg- legan bikar sem keppt hafði verið um frá upphafi. Nú er svo að sjá hvort landinn leggur ekki sitt af mörkunum til að eignast annan verðlaunabikar, en Norræna Trimmlandskeppni fatlaðra hefst á morgun, föstudaginn 1. maí og stendur yfir til 31.maí, en að henni standa hérlendis, íþróttafélag fatl- aðra og Morgunblaðið. Þáttökurétt hafa allir sem eru félagsbundnir í íþróttafélögum fatlaðra, sem og ófélagsbundnir fatlaðir. Þá er öldr- uðum enfremur boði að taka þátt í keppninni, en keppendur eru frá íslandi, Færeyjum, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. En til að ísland geti sigrað á nýjan leik og lagt drög að því að nýji verðlaunagripurinn, sem er silf- urskreytt hom, smíðað af Sigmari Maríusyni gullsmið, standi við hlið bikarsins sem hér er fyrir, þurfa sem flestir að taka þátt í keppninni og eru menn bjartsýnir á að svo fari. Þegar keppnin var haldin hér 1985 tóku 800 manns þátt í henni og stefnt er að því að fjöldi þáttak- enda fari nú yfir 1000 manns. Reglumar em einfaldar og allir fatlaðir geta verið með, en þar að auki hefur íþróttasamband fatlaðra sent þáttökuskírteini til aldraðra og hvetur þá til þáttöku. Keppnin fer þannig fram að um er að ræða sjö keppnisgreinar, göngu, hlaup, sund, róður, hjólreiðar, hestamennsku og hjólastólaakstur og til að hljóta stig í keppninni þarf hvert trimm að standa yfir í a.m.k. 30 mínútur. Eitt stig fæst fyrir hvert trimm og einungis er hægt að fá eitt stig á degi hveijum. Þáttökuskírteini, eins og það sem er hér á síðunni hafa verið send út til mögulegra keppenda, en einn- ig má klippa þáttökuskírteinið sem er í blaðinu út og nota það. Hver þáttakandi skráir þá á skírteinið dagsetningu, auðkennir greinina sem hann trimmaði í og notar eitt hólf fyrir hvert trimm. Að trimminu loknu senda svo þáttakendur skírteini sín til íþróttásambands fatlaðra, eftir að trúnaðarmaður hefur staðfest það. Trúnaðarmaður getur verið hver sem er, vinur, að- standandi eða starfsmaður á skóla, stofnun eða vistheimili, sem vottar með undirskrift sinni að skírteinið sé rétt. Útfylltum þáttökuskírtein- um á svo að skila til íþróttasam- bands fatlaðra fyrir 15 júní. Þegar skírteinin hafa borist kem- ur svo í ljós hveijir sigra, en keppnin er þríþætt, þ.e. Norðurlandakeppni, innanlandskeppni og einstaklings- keppni. í Norðurlandakeppninni sigrar sú þjóð sem sýnir mesta aukningu á þáttöku, miðað við meðaltal þriggja síðustu keppna og hreppir sú sem sigrar homið góða, sem gefið er af Flugleiðum. Innan- landskeppnin fer hins vegar þannig fram að það héraðsssamband sigrar sem hlýtur flest stig og hlýtur í verðlaun bikar sem gefinn er af Morgunblaðinu. Einstaklings- keppnin verður á hinn bóginn þannig að í lok keppninnar verða nöfn tíu einstaklinga, sem hafa trimmað að minnsta kosti 20 sinn- um, dregin úr og þeim veitt sérstök verðlaun. Allir þáttakendur fá svo árituð verðlaunaskjöl til minningar um þáttöku í Norrænu Trimmland- skeppninni. Það er því til mikils að vinna í þessari þríþættu keppni, þó svo að stæðsti vinningurinn sé að vera með Morgunblaðið/Bjami Verðlaunagripurinn veglegi sem Flugleiðir gefa til keppninnar, en hann er smíðaður af fötluðum manni, Sigmari Maríussyni, gull- smið. Um þennan grip keppa nú þátttakendur frá íslandi, Dan- mörku, Noregi, Sviþjóð, Finnl- andi og Færeyjum. og láta sitt ekki eftir liggja í íþrótta- iðkun, eins og Markús Einarsson í útbreiðslunefnd íþróttafélags fatl- aðra kemst að orði. Hann hvetur alla sem rétt hafa til að taka þátt í keppninni og stuðla að glæsilegri framgöngu íslands í henni nú sem endranær. -VE Þátttökuskírteini Norræn trimmlandskeppni MAÍ 1987 ( hvert sinn sem þú tekur þátt færist dagsetning (reit ásamt merki hverrar greinar. Nafn Heimili Fd. Ar ÞÁTTTÖKUGREINAR ganga = g hlaup = hl sund = * hjólrel&ar = hj róður = r hjólastólaakstur = ha hestamennska = he Reyndu a& ná einu stigi á dag, þá hefur þú gert þitt til þess að færa fslandi slgur. Til a& fá stig þarf a& trimma f a.m.k. 30. mín. TRÚNAÐARMAÐUR Nafn Heimili Eftir að keppni lýkur viljum við bi&ja þig um a& fylla eftirfarandi töflu út: Hve oft gengið?................... ........ Hve oft hlaupið?.................. ........ Hveoftsynt?....................... _____ Hve oft hjóiað? . ................ ........ Hve oft hjólastólaakstur?......... ........ Hve oft hestamennska?............. ........ Hve oft kajakróður? .............. ........ Samtals fjöldi trimma: ........... ........ Að lokum þökkum við þér fyrir þátttökuna og vonumst tii a& þú hafir haft gaman af. fþróttasamband fatlaðra/Morgunblaðiö. Athugið. Þátttökuskírteinin þurfa að berast skrifstofu IF fþróttamlðstöðinni Laugardal fyrir 15. júní. __ V3. Þannig lítur þáttökuskírteinið út og geta menn hvort heldur er notað skírteini sem þeim hefur verið sent eða klippt þetta út úr blaðinu. Fyrir hvert trimm, sem þarf að taka a.m.k. 30 mínútur, er fylltur út einn kassi og í lok keppninnar skrifar þáttak- andi svo hversu oft hann hefur trimmað í hverri grein og samanlagðan fjölda trimma. Þvinæst er að láta trúnaðarmann kvitta um að allar færslur séu réttar og senda svo skirteinið til íþróttasambands fatlaðra, sem er til húsa i íþróttamiðstöðinni í Laugard- al fyrir 15. júní.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.