Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 60
^-Yuglýsinga-
siminn er 2 24 80
STERKTEORT
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
VERÐ f LAUSASÖLU 50 KR.
Hætta
fóstrur
störfum
í kvöld?
ÞRJÁTÍU og sjö bama-
heimili sem rekin em af
Reykjavíkurborg munu
loka þegar 190 fóstrur
og forstöðumenn, sem
hafa sagt upp frá og með
mánaðamótum, ganga út
í kvöld. Fóstrur sem
vinna hjá ríkinu á bama-
heimilum við spítalana
hafa einnig sagt upp
störfum frá 1. maí. Við-
ræður vom milli aðila í
allan gærdag.
Að sögn Bergs Felixsonar
framkvæmdastjóra dagvist-
ar bama, lamast að auki
starfsemin á ellefu heimil-
um, en starfsemi á jafn
mörgum raskast ekki. „Við
lifum í þeirri von að samn-
ingar takist fyrir 1. maí en
erum þó viðbúin því að það
takist ekki,“ sagði Bergur.
Hann sagði að forstöðumenn
á þeim heimilum þar sem
starfsemin raskast hefðu
yfírleitt ráðið fram úr vand-
anum en á öðrum heimilum
hefði verið óskað eftir fundi
með foreldrum um hvemig
hægt væri að bregðast við.
„Við emm með ákveðna
vinnuáætlun sem gripið
verður til og stofnunin mun
tilkynna foreldmm um það
strax í dag,“ sagði Bergur.
Bömin á Grænuborg léku sér áhyggjulaus í gær.
Morgunblaðið/RAX.
Erlend ítök í íslenzkum
sjávarútvegi aukast:
Skozka byggða-
stofnunin á hlut í
íslenzku fyrirtæki
Fyrirframgreiðsla afurða tryggir forkaupsrétt
ÍTÖK útlendinga í íslenzkum sjávarútvegi fara nú vaxandi.
Skozka byggðastofnunin á hlut í fyrirtæki, sem flytur út
íslenzkan fisk, Belgar, Danir og Þjóðverjar tengjast fyrirtækj-
um á sama sviði og fyrirframgreiðsla fyrir afurðir frystiskipa
tryggir ákveðnum kaupendum erlendis forkaupsrétt á afurð-
unum. Eðvarð Benediktsson, einn eigenda fyrirtækjanna
Isskotts og Icescot, segir að eðlilegt sé að menn sæki lánafyr-
irgreiðslu og hlutafé til útlanda, þar sem verulegur skortur
sé á því hér. Hann segir ennfremur, að fyrirtækið sé ekki
skuldbundið til að selja hluthöfum erlendis fiskinn, sem það
flytur út. Fiskurinn sé seldur hæstbjóðanda hveiju sinni.
Eðvarð á 43% í fyrirtækinu Ice-
scot, sem aftur á 49% í ísskotti,
sem flytur út ferskan fisk og íhug-
ar nú tilraunafrystingu á físki til
útflutnings. Skozka byggðastofn-
unin lagði fram fé til stofnunar
Icescot, en er ekki skráð fyrir
hlutabréfum og á ekki fulltrúa í
stjóm. Eðvarð sagði að fískinum
væri landað í Mallaig á vestur-
strönd Skotlands og við það
skapaðist nokkur vinna þar, þó
selt væri á markaðnum við Hum-
berfljótið í flestum tilfellum. Hann
sagði fyrirtæki sitt og fjármögnun
liggja fyllilega ljósa fyrir og hann
hefði ekkert að fela. Menn yrðu
að gera sér grein fyrir því, að
auðvitað sæktu útlendingar í físk-
inn okkar og reyndist það auðvelt
vegna skorts á lánsfé hér á landi.
Útlendingar væm hluthafar í nær
öllum fískeldisstöðvum og fyrir-
tækjum af ýmsu tagi, en þegar
fréttist af því, að þeir legðu fé í
sjávarútveginn, yrði allt vitlaust.
Hann sjálfur ætti erfítt með að
skilja hvers vegna.
V esturlandskj ördæmi:
Atkvæðin fundust en
Jbreyta engn um úrslit
TÝNDU atkvæðaseðlamir í Vesturlandskjördæmi komu fyrir tilviljun
í leitirnar í Borgaraesi skömmu fyrir klukkan 21 í gærkveldi. Seðlarn-
ir voru 47, en talning þeirra breytti engu um niðurstöður kosninganna.
Lögreglumaður rakst á seðlana í kjörkassa, sem var ásamt öðrum
kössum í fangageymslu lögreglunnar. Voru þetta ótalin atkvæði úr
einum sveitahreppi. Yfiriyörstjórn kjördæmisins var þegar kölluð
saman til fundar vegna þessa og lágu úrslit fyrir um kl. 1 i nótt.
Skipting atkvæðanna var á þá
lund að A listi hlaut 5, B listi 19, D
listi 7, G listi 4, M listi 3, S listi 5
^ ^ iisti 3. Einn seðill var auður.
Porkell Helgason prófessor tjáði
blaðinu í nótt að þessi úrslit breyttu
ekki skipan þingsæta í kjördæminu,
þar sem skipting atkvæða væri svip-
uð og heildarskipting.
Á þriðjudagskvöld sneri yfírkjör-
stjóm sér til sýslumanns Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu og óskaði eftir
opinberri rannsókn, þar sem 48 at-
■^Kvæðaseðlar hefðu ekki komið fram
við talningu. Málinu var vísað til
rannsóknarlögreglu ríkisins og í
gærmorgun fóru menn á hennar
vegum til Borgamess. Bogi Nilsson,
rannsóknarlögreglustjóri, stjómaði
rannsókn málsins. Yfirheyrslur
stóðu yfír í allan gærdag, en að sögn
Boga kom ekkert þar fram sem varp-
að gæti ljósi á það hvar kjörseðlamir
væm niður komnir.
Um klukkan 20.45 fór Bjöm Þor-
bjömsson, lögreglumaður, að huga
að kjörkössunum í fangageymslu
lögreglunnar, þar sem rannsóknar-
lögreglan hafði hug á að skoða
kjörbækur, sem í þeim vom. „Þegar
ég opnaði þriðja kassann og tók
bókina úr honum, blasti þetta við
mér,“ sagði Bjöm. „Ég áttaði mig
ekki strax á því hvað þetta væri,
hélt helst að þetta væru einhverjar
pappírsræmur og tók þær upp. Sá
ég þá hvers kyns var. Ég ætlaði
ekki að trúa mínum eigin augum,
en það lyftist brúnin á mönnum hér
í húsi þegar þetta fréttist."
Bjöm sagði að innsigli kassans
hefði verið rofíð á talningarstað og
gengið frá honum til endursendingar
í kjördeild. Hann var læstur og lykill-
inn límdur ofan á lok hans. Kjörkass-
amir biðu endursendingar í
fangageymslu lögreglunnar ( Borg-
amesi og var reyndar búið að senda
hluta þeirra til baka. Um leið og
atkvæðin fundust boðaði Jón Magn-
Eggjárn í
hjónaeijum
LÖGREGLAN var kölluð að fjöl-
býlishúsi við Hátún síðdegis {
gær. Komið hafði til ryskinga á
milli hjóna og mun konan hafa
slæmt til mannsins með eggjárni
svo skurður kom á öxl hans.
Var farið með fólkið í fanga-
geymslur, en yfírheyrslur gátu ekki
farið fram hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins í gær vegna ölvunar fólks-
Hlutdeild útlendinga mun vera
með misjöfnum hætti. í sumum
tilfellum er um hrein hlutafélög
að ræða, í einhveijum um lánafyr-
irgreiðslu að ræða og ennfremur
er algengt að greitt sé fyrirfram
fyrir afurðir, sem í raun hlýtur að
teljast lán. Með þessu móti virðist
sem erlend fyrirtæki og aðilar
tryggi sér í einhveijum mæli fersk-
an físk og frystan til kaups og
greiði fyrir hann í samræmi við
markaðsverð.
ússon, formaður yfírkjörstjómar, til
kjörstjómarfundar, sem hófst
skömmu eftir miðnættið.
Grunur um
tvö tilfelli
páfa-
gauksveiki
GRUNUR leikur á að upp séu
komin tilfelli af svokallaðri
páfagauksveiki, psittacosis.
Páfagauksveiki er veirusjúk-
dómur sem berst frá fuglum
til manna. Að sögn Skúla
Johnsens, borgarlæknis, hef-
ur tilfelli af þessu tagi ekki
verið staðfest hér á landi í
áratugi. Sjúkdómurinn berst
um andrúmsloftið frá sýkt-
um fuglum, en smitast sjald-
an á milli manna.
Þau tilfelli af páfagauksveiki
sem hér hafa greinst lýsa sér
sem bronkítis, lungnakvef, en
algengt er að sýkingunni fylgi
lungnabólga. Um er að ræða
feðga sem hafa fengið þann
úrskurð læknis að veikindi
þeirra stafí af víms frá páfa-
gauk á heimili þeirra.
Sjúkdómurinn psittacosis,
páfagauksveiki, greindist fyrst
árið 1879 sem óvenjuleg
lungnabólga og var hún þá rak-
in til suðrænna fugla, en á
ámnum 1929-30 kom upp al-
varlegur lungnabólgufaraldur í
Evrópu og Ameríku. Hann
reyndist eiga rætur að rekja til
páfagauka sem fluttir vom inn
frá Suður- Ameríku. Þessi far-
aldur leiddi til nánari þekkingar
á sjúkdómnum og hafa síðarí
rannsóknir sýnt að yfír 90 teg-
undir fugla geta verið smit-
berar, þótt páfagaukar séu
algengustu smitberamir.